Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 54
54 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021
Meistaradeild kvenna
8-liða úrslit:
París SG – Lyon ....................................... 0:1
- Sara Björk Gunnarsdóttir var á vara-
mannabekk Lyon allan tímann.
Bayern München – Rosengård .............. 3:0
- Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var á vara-
mannabekk Bayern allan tímann.
- Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Barcelona – Manchester City ................. 3:0
Chelsea – Wolfsburg................................ 2:1
Undankeppni HM karla
Tyrkland – Holland .................................. 4:2
Belgía – Wales .......................................... 3:1
Kýpur – Slóvakía ...................................... 0:0
Eistland – Tékkland................................. 2:6
Finnland – Bosnía .................................... 2:2
Frakkland – Úkraína ............................... 1:1
Gíbraltar – Noregur................................. 0:3
Lettland – Svartfjallaland ....................... 1:2
Malta – Rússland...................................... 1:3
Portúgal – Aserbaídsjan.......................... 1:0
Serbía – Írland.......................................... 3:2
Slóvenía – Króatía .................................... 1:0
Úrslitakeppni EM U21 karla
A-riðill:
Ungverjaland – Þýskaland...................... 0:3
Rúmenía – Holland .................................. 1:1
B-riðill:
Tékkland – Ítalía ...................................... 1:1
Slóvenía – Spánn ...................................... 0:3
4.$--3795.$
Þýskaland
B-deild:
N-Lübbecke – Bietigheim .................. 27:27
- Aron Rafn Eðvarðsson varði 6 skot (18
prósent) í marki Bietigheim.
Gummersbach – Hamm ...................... 30:21
- Elliði Snær Viðarsson lék ekki með
Gummersbach vegna meiðsla. Guðjón Val-
ur Sigurðsson þjálfar liðið.
Emsdetten – Aue ................................. 35:28
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði ekki
fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 5
skot (21 prósent) í marki liðsins. Rúnar Sig-
tryggsson þjálfar Aue.
Pólland
Kielce – Zaglebie Lubin...................... 44:23
- Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 5
mörk fyrir Kielce en Haukur Þrastarson er
frá keppni vegna meiðsla.
Svíþjóð
Átta liða úrslit, annar leikur:
Kristianstad – Skara .................. (frl.) 23:24
- Andrea Jacobsen skoraði 5 mörk fyrir
Kristianstad.
_ Staðan er 2:0 fyrir Skara.
Alingsås – Skövde ............................... 22:27
- Aron Dagur Pálsson lék ekki með Al-
ingsås.
_ Staðan er 2:0 fyrir Skövde.
%$.62)0-#
Meistaralið Los
Angeles Lakers
tapaði þriðja
leik sínum í röð
í NBA-deildinni í
körfuknattleik í
fyrrinótt þegar
það mætti New
Orleans Pelic-
ans. Um var að
ræða þriðja leik-
inn í röð án
Anthonys Davis og annan leikinn
án LeBrons James en liðið mátti
illa við því að missa Davis út, hvað
þá þegar LeBron bættist á sjúkra-
listann.
New Orleans hafði að lokum
sigur, 128:111, þar sem Brandon
Ingram átti stórleik og skoraði 36
stig. Liðsfélagi hans, hinn tvítugi
Zion Williamson, skoraði 27 stig
og tók níu fráköst. Lakers er nú
dottið niður í fjórða sæti Vestur-
deildarinnar með 28 sigra í 44
leikjum á tímabilinu.
Þriðja tap
Lakers í röð
Zion
Williamson
FRÉTTASKÝRING
Víðir Sigurðsson
Bjarni Helgason
Óhætt er að segja að íþróttahreyf-
ingin sé í uppnámi eftir þá ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að banna æfingar
og keppni í íþróttum barna og fullorð-
inna frá og með miðnætti í gærkvöld
og til 15. apríl.
Fram undan var lokasprettur á Ís-
landsmótum í mörgum greinum þar
sem úrslit áttu að ráðast í hinum
ýmsu deildum og mótum. Páskarnir
áttu nánast að vera íþróttahátíð í
greinum eins og handknattleik og
körfuknattleik þar sem spila átti alla
dagana, m.a. heilar umferðir í deild-
um á skírdag, föstudaginn langa,
páskadag og öðrum degi páska.
Vetrargreinarnar svokölluðu í
liðsíþróttum, eins og handknattleik,
körfuknattleik og blaki eiga það sam-
eiginlegt að leika átti þétt næstu vik-
urnar til að ljúka deildakeppnum en
síðan taka við úrslitakeppnir seinni
hluta aprílmánaðar og fram eftir maí.
Mörg mót voru eftir á vetr-
artímabilinu í innanhússíþróttum. Til
dæmis átti Skíðamót Íslands að hefj-
ast í Hlíðarfjalli í dag, Íslandsmót í
öllum flokkum í kraftlyftingum átti
að fara fram um næstu helgi, einnig
bikarkeppnin í frjálsíþróttum innan-
húss og Íslandsmót unglinga í bad-
minton var á dagskrá 9. til 11. apríl.
Ég er mjög svekktur
Á Íslandsmótinu í körfubolta átti
að spila síðustu sex umferðirnar í úr-
valsdeildum karla og kvenna, Dom-
inos-deildunum, frá gærdeginum og
til 17. apríl. Í kjölfarið á því á að leika
í VÍS-bikar karla og kvenna seinni
hluta aprílmánaðar og síðan á úr-
slitakeppni Íslandsmótsins að fara
fram í maímánuði.
„Ég er mjög svekktur enda hefði
ég viljað sjá okkur halda áfram að
spila án áhorfenda. Við bjuggumst við
að það yrði sett áhorfendabann og við
erum alveg tilbúin í það sem og öll
íþróttahreyfingin myndi ég halda. Ég
held að ég tali fyrir alla íþróttahreyf-
inguna þegar ég segi að það sé mjög
vont að stoppa allar keppnir því fólk
er líka að reyna ná ýmiss konar lág-
mörkum fyrir Evrópumót, heims-
meistaramót og Ólympíuleika í öðr-
um greinum,“ sagði Hannes S.
Jónsson, formaður Körfuknattleiks-
sambands Íslands, við mbl.is í gær.
Ekkert sem liggur á
Á Íslandsmótinu í handknattleik
átti að leika fjórar af síðustu sjö um-
ferðum Olísdeildar karla á næstu
þremur vikum, sem og tvær síðustu
umferðirnar í Olísdeild kvenna.
„Það er ekkert sem liggur á að
taka ákvörðun um framhaldið einn
tveir og þrír. Við vitum að við erum
ekki að fara að æfa eða spila hand-
bolta næstu þrjár vikurnar. Við mun-
um funda í næsta viku og þá verður
tekin ákvörðun um framhaldið. Tím-
inn er knappur og allt okkar plan
miðaði að því að við værum að klára
okkar keppnir í kringum 17. júní,“
sagði Róbert Gíslason fram-
kvæmdastjóri HSÍ við mbl.is í gær.
Íslandsmótið í blaki er í svipaðri
stöðu og í hinum greinunum en þar
átti stærstum hluta deildakeppninnar
að vera lokið um miðjan apríl. Óli Þór
Júlíusson mótastjóri Blaksambands-
ins sagði við Morgunblaðið í gær að
næstu dagar yrðu notaðir til að skoða
nokkrar sviðsmyndir en allt benti til
þess að ýta þyrfti úrslitakeppni Ís-
landsmótsins fram eftir maímánuði.
Í íshokkíinu er þegar ljóst hvaða lið
leika til úrslita um Íslandsmeist-
aratitlana þótt nokkrum leikjum sé
ólokið í hefðbundinni deildakeppni.
Þar myndi því ekki koma að sök þótt
síðustu deildaleikjunum yrði aflýst.
Hvernig á að ljúka mótum?
Það vandamál sem liðsíþrótta-
greinarnar innanhúss eru allar að
glíma við er hvernig eigi að ljúka
tímabilinu við þessar aðstæður. Er
hægt að ákveða að deildakeppni sé
lokið á þessari stundu og hefja úr-
slitakeppni þegar leyft verður að
stunda íþróttir á ný? Eða á að fella
niður úrslitakeppnir, einbeita sér að
því að ljúka deildakeppnum í apríl og
maí og krýna Íslandsmeistara á þann
hátt? Ef það þá brýtur ekki í bága við
lög og reglur viðkomandi sér-
sambanda.
Ýmsar leiðir í boði
Róbert Gíslason hjá HSÍ sagði að
ýmislegt kæmi til greina.
„Við getum klárað deildakeppnina
og bikarkeppnina og sleppt úr-
slitakeppninni. Við gætum líka stopp-
að deildina núna og farið beint í úr-
slitakeppnina. Við gætum líka
minnkað úrslitakeppnina og spilað
hana á færri liðum. Það eru margar
leiðir sem við getum farið og valið.
Það er erfitt að fabúlera um hvaða
leið er hentugust akkúrat núna því
við þurfum bara að sjá hvernig málin
þróast.
Það er alveg ljóst að það verður
alltaf einhver ósáttur, sama hvað við
gerum, og við þurfum fyrst og fremst
að sjá hvaða leiðir eru færar fyrir
okkur,“ sagði Róbert.
Staðan mikil vonbrigði
Í knattspyrnunni er deildabikar
karla og kvenna, Lengjubikarinn, í
gangi þessa dagana en þar átti að
leika undanúrslit beggja kynja á skír-
dag og úrslitaleikinn í karlaflokki á
öðrum degi páska. Þá átti fyrsta um-
ferðin í bikarkeppni KSÍ, Mjólk-
urbikarnum, að fara fram dagana 8.
til 11. apríl og marka upphaf sum-
artímabilsins í fótboltanum, en ljóst
er að henni verður frestað.
Íslandsmótið á að hefjast 22. apríl
þegar keppni í úrvalsdeild karla,
Pepsi Max-deildinni, á að fara af stað
en aðrar deildir eiga samkvæmt
skipulagi að fara af stað í byrjun maí.
„Ég viðurkenni það fúslega að sú
staða sem er uppi í dag er mikil von-
brigði enda erum við komin á sama
stað og við vorum á fyrir ári síðan,“
sagði Klara Bjartmarz fram-
kvæmdastjóri KSÍ við mbl.is.
„Við þurfum að skoða næstu skref
vel varðandi bæði deildabikarinn,
Meistarakeppnina, bikarkeppnina og
svo fyrstu leiki Íslandsmótsins.
Ég á von á því að mótanefnd muni
leggja fram einhverjar tillögur um
deildabikarinn á næstunni, hvort
hann verði þá kláraður eða honum
verði ólokið. Þetta mun allt skýrast
betur á næstu dögum,“ sagði Klara.
Komum óskum á framfæri
Líney Rut Halldórsdóttir fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ kvaðst gera sér
vonir um að hægt yrði að stunda
íþróttir með einhverjum takmörk-
unum.
„Við erum búin að koma á fram-
færi óskum um eitt og annað og
senda inn ákveðnar fyrirspurnir til
heilbrigðisyfirvalda. Svo verðum við
bara að sjá hversu miklar takmark-
anirnar verða. Við óskum eftir því að
hægt verði að gera allt sem mögulegt
er að gera fyrir íþróttafólk, svo lengi
sem heilbrigðisyfirvöld telji það vera
ásættanlega áhættu.
Eins og ég hef áður sagt þá eru það
heilbrigðisyfirvöld sem taka loka-
ákvörðun um hvað er hægt að gera og
hvað ekki en við viljum að sjálfsögðu
ganga eins langt og hægt er,“ sagði
Líney við mbl.is.
_ Nánar er rætt við viðmælendur í
greininni á mbl.is/sport.
Íþróttirnar
í landinu
í uppnámi
- Gríðarlegur fjöldi leikja átti að fara
fram næstu vikur - Mikil óvissa um
lyktir Íslandsmóta í mörgum greinum
Ljósmynd/Árni Torfason
Frestað Heil umferð átti að fara fram í körfubolta kvenna í gærkvöld en
henni var aflýst þótt nýjar reglur hefðu ekki tekið gildi fyrr en á miðnætti.
Evrópumeistarar Lyon standa ágætlega að
vígi eftir fyrri leik sinn gegn erkifjendunum í
París SG í átta liða úrslitum Meistaradeildar
kvenna í knattspyrnu í gær.
Leikið var á hinum sögufræga velli Parc des
Princes í París og Lyon knúði þar fram sigur,
1:0. Fyrirliðinn Wendie Renard skoraði sig-
urmarkið úr vítaspyrnu rétt fyrir leikslok.
Sara Björk Gunnarsdóttir kom ekki við sögu
hjá Lyon að þessu sinni en hún var á meðal
varamanna allan tímann. Liðin mætast aftur í
Lyon á miðvikudaginn kemur og þá skýrist
hvort þeirra kemst í undanúrslit og leikur við
Barcelona eða Manchester City.
Bayern München er komið með annan fótinn
í undanúrslit eftir góðan 3:0 heimasigur á Ro-
sengård frá Svíþjóð. Linda Dallmann, Klara
Bühl og Lineth Beerensteyn skoruðu fyrir
Bayern. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var
varamaður hjá Bayern og kom ekki við sögu
en Glódís Perla Viggósdóttir lék að vanda all-
an leikinn í vörn sænska liðsins.
Chelsea er með undirtökin gegn Wolfsburg
frá Þýskalandi eftir sigur á „heimavelli“, 2:1,
en báðir leikir liðanna fara fram í Búdapest.
Sam Kerr og Pernille Harder komu enska lið-
inu í 2:0 í seinni hálfleik en Dominique Janssen
skoraði dýrmætt útivallarmark fyrir þýska lið-
ið úr vítaspyrnu.
Barcelona vann sannfærandi sigur á Man-
chester City, 3:0, en heimaleikur Katalóníul-
iðsins fór fram í Monza á Ítalíu. Asisat Os-
hoala, Mariona og Jennifer Hermoso skoruðu
mörkin.
Seinni leikir liðanna fara fram á miðvikudag
og fimmtudag í næstu viku. vs@mbl.is
Lyon lagði erkifjendur
AFP
Skoraði Wendie Renard fagnar sigurmarki Lyon
í París ásamt Eugenie Le Sommer.
NBA-deildin
Orlando – Denver ............................... 99:110
New York – Washington.................. 131:113
New Orleans – LA Lakers............... 128:111
Miami – Phoenix ............................... 100:110
Golden State – Philadelphia .............. 98:108
Portland – Brooklyn......................... 112:116
4"5'*2)0-#