Morgunblaðið - 25.03.2021, Qupperneq 64
20%
kynningarafsláttur
af öllum
sumarvörum
25. mars - 5. apríl
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Mánudaga - föstudaga 11-18:30
laugardaga og sunnudaga 12-18
Sumarid-
CLEO skemill.
Ø50 x H44,5 cm.
Áður 18.900 kr. NÚ 15.120 kr.
CANNES garstóll.
Ýmsir litir. Áður 19.900 kr.
NÚ 15.920 kr.
PAVIA 2 fellistólar og felliborð.
Áður 29.900 kr.NÚ 23.920 kr.
er komið
ESSENSA
ESSENZA útimotta. Ø200 cm. Áður 39.900 kr.
nú31.920
Borgarmyndun er yfirskrift erindis sem Guðbrandur
Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafns, heldur um
ljósmyndun borgar í breytingum í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur á 6. hæð Grófarhúss kl. 12.10 í dag. Erind-
inu verður einnig streymt á facebooksíðu safnsins.
Erindið tengist yfirstandandi sýningu í safninu „Hið
þögla en göfuga mál“ með ljósmyndum eftir Sigurhans
Vignir. Sigurhans myndaði Reykjavíkurborg markvisst
um miðja síðustu öld og fjallar Guðbrandur um hvað
ljósmyndin hentar vel til að skynja og skilja sögu borga.
Fjallar um ljósmyndun borga út frá
myndum sem Sigurhans Vignir tók
FIMMTUDAGUR 25. MARS 84. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Íslensku karlalandsliðin í knattspyrnu verða í sviðsljós-
inu síðdegis í dag og í kvöld. Strákarnir í 21 árs liðinu
mæta Rússum í fyrsta leik úrslitakeppni EM í Ungverja-
landi og A-landsliðið leikur gegn stórveldinu Þýskalandi
í Duisburg. Nýir þjálfarar, Davíð Snorri Jónasson og
Arnar Þór Viðarsson, stjórna liðunum í fyrsta skipti og
á íþróttasíðum blaðsins er fjallað um leikina og skoðað
hvernig uppstillingar íslensku liðanna gætu verið. »55
Landsleikirnir í dag og kvöld
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Edda Kristveig Indriðadóttir og Gísli
Hrafn Þórarinsson, eigendur Hunda-
hússins í Kópavogi, opnuðu nýja og
bætta aðstöðu á Kársnesbraut 114
fyrir skömmu eftir að hafa unnið að
endurbótum á húsnæðinu frá ára-
mótum. „Þetta er mun betra og
rýmra en húsnæðið sem við leigðum í
Smiðjuhverfinu,“ segir Gísli, en þar
hófu þau reksturinn 2019.
Margvísleg þjónusta fyrir hunda
er í boði hjá Eddu og Gísla, eins og til
dæmis klipping, snyrting, bað og
blástur, meðferð vegna hárloss og
klóaklipping. „Við höfum líka hug á
að selja hollt hráfæði fyrir hunda og
erum að hefja framleiðslu þess úr ís-
lensku hráefni í samvinnu við kjöt-
iðnaðarmeistara við hliðina á okkur,“
upplýsir Gísli.
Vel fer um starfsemina á Kársnes-
inu. „Við erum ánægð hérna og til
stendur að leigja út tvö vinnuborð,
svo hægt verði að taka á móti fleiri
hundum á sama tíma,“ undirstrikar
Gísli. Þau vinna alltaf saman með
hvern hund og þar sem Gísli starfar
sem geislafræðingur á Landspítal-
anum á mánudögum og fimmtudög-
um bæta þau upp fjarveru þá daga
með því að hafa Hundahúsið opið um
helgar (tímabókanir á http://
hundahusid.simplybook.it/v2/).
Fjölbreytt nám
Edda átti hugmyndina að rekstr-
inum. Þau fóru til Englands, þar sem
hún útskrifaðist úr Groom Art-
hundasnyrtiskólanum í London. Síð-
an stunduðu þau bæði nám í í breska
Posh Pets-hundasnyrtiskólanum á
Malaga á Spáni. Þau hafa líka farið á
fjölmörg námskeið, m.a. í skyndi-
hjálp hunda, um sýkingar í eyrum og
loppum, hvernig fjarlægja á sníkju-
dýr úr feldi og sjúkraþjálfun hunda,
svo eitthvað sé nefnt.
„Gísli ólst upp við hunda og eftir að
hann talaði mig inn á að fá okkur
hund langaði mig til þess að læra
meira um þá,“ segir Edda. „Við höf-
um verið áhugasöm um tamningu
hjálparhunda og vorum með í að
stofna Hjálparhundafélag Íslands.
Upphaflega var hugsunin sú að þetta
hundastand væri fyrst og fremst
áhugamál en síðan vatt það upp á sig
og varð að atvinnu.“ Hún segir að
upplifunin í skólanum í London hafi
verið ótrúleg og eftir það hafi ekki
orðið aftur snúið. Þau eigi sjálf hund,
sem er að verða átta ára, heiti Loppa
og sé blendingur af Labrador Border
Collie-kyni sem þau tóku að sér eftir
að tíkinni hafði verið bjargað úr illri
meðferð.
Gísli segir að þótt þau hafi lært
sömu handbrögðin sé ákveðin verka-
skipting hjá þeim. „Ég sé um rakst-
urinn og Edda klippir með skærum
og sér um allar fínsnyrtingar. Það er
hennar sérgrein, en þetta er sam-
vinnuverkefni.“
Nostra við hundana
- Eigendur Hundahússins í Kópavogi í samvinnu við kjöt-
iðnaðarmann hefja framleiðslu á hollu hráfæði fyrir hunda
Ljósmyndir/Lísbet Guðný Þórarinsdóttir
Í Hundahúsinu Eigendurnir Edda Kristveig Indriðadóttir og Gísli Hrafn Þórarinsson kunna vel við hunda.
Saman Réttu handtökunum beitt.