Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 4

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 4
Erum á réttri leið Núverandi aðalstjórn félagsins tók við á aðalfundi félagsins 15. júlí 2015. Ný stjórn setti strax í forgang aðstöðumál og lagfæringar á umhverfi félagsins sem og að styrkja íjárhag félagsins. Það má segja að svæðin okkar á þessum tíma hafi ekki litið vel út. Stúkan ónýt og í niðurníðslu við Valbjarnarvöll, stúkan við gervigrasið að ryðga í sundur, allar girðingar meira og minna ónýtar o.s.frv. Öll mannvirkin sem Þróttur notar eru eign Reykjavíkurborgar og það er því á ábyrgð borgarinnar að veita þeim eðlilegt viðhald, sjá til þess að girðingar séu í lagi o.s.frv. í hönd fóru fjölmargir fundir með Reykjavíkurborg sem heilt yfir gengu vel og má segja að nú sé mjög margt í mun betra ástandi og allt önnur ásýnd á félagssvæðinu en áður var, þótt vissulega megi alltaf gera betur. Haustið 2015 var sett nýtt gervigras á aðalvöll félagsins, Eimskipsvöll- inn. Grasið var stærra en það sem áður var. Nú eru fjögur ár liðin og því miður kominn aftur tími á að endurnýja grasið á nýjan leik. Iðkendur okkar eru það margir að grasið eyðileggst mun hraðar en telst eðlilegt. Það segir sig sjálft að þegar hátt í 900 iðkendur nota eitt og sama grasið eyðileggst það hratt. Ekkert gervigras í Reykjavík er notað jafn mikið og okkar gras. Iðkendum hefur fjölgað jafnt og þétt sl. ár og nú er raunverulega hætta á að við getum ekki tekið við fleirum vegna aðstöðuleysis yfir vetrartímann. Ljósin á gervigras- vellinum eru löngu úrelt og er komið samþykki á að setja upp ný ljós við völlinn nú í vetur. Þau eyða minni orku og ljósmengun frá þeim er mun minni en frá núverandi ljósum. Stúkan við gervigrasið hefur verið endurnýjuð og er nú hið glæsileg- asta mannvirki. Þetta var mikil framkvæmd sem tók langan tíma, en allt burðarvirki var fjarlægt og stúkan byggð upp að nýju. Komið var fyrir góðri aðstöðu fyrir fjölmiðlafólk og keypt fullkomið hljóðkerfi. Stúkan tekur um 900 manns í sæti eftir breytingar. Árum saman hafði stóri salurinn í kjallaranum verið leigður út. Við ákváðum að taka hann undir starfsemi félagsins og breyta honum í lyftinga- og endurhæfingasal. Við höfum fjárfest í töluvert af búnaði og er aðstaðan mikið notuð af öllum deildum og fjölda fiokka. Þetta kemur sér vel fyrir deildirnar sem þurfa ekki lengur að kaupa aðstöðu af líkamsræktarstöðvum í nágrenninu. Félagið keypti 200 fm tjald sem staðsett er við austurenda gervi- grasvallarins. Ráðast þurfti í töluverðar framkvæmdir til að jarðvegs- skipta og helluleggja jarðveginn undir tjaldinu. Tjaldið hefur verið mikið notað i kringum heimaleikina og einnig á knattspyrnumót- unum okkar. Einnig voru keyptir bekkir og stólar fyrir 200 manns. Nú í sumar gáfu svo eldri leikmenn félagsins hljóðkerfi til að hafa í tjaldinu. Búið er að skipta um alla stóla og borð í hátíðarsalnum okkar sem er með mun betri ásýnd en áður var. Einnig er komið nýtt hljóðkerfi og gott svið sem hægt er að nota líka í tjaldinu okkar. Einnig hefur verið fjárfest í öflugu myndavéla- og eftirlitskerfi frá Securitas. Tugir myndavéla hafa verið settar upp bæði úti og inni, en talsvert bar á þjófnuðum á svæðinu. Kerfið hefur strax sannað sig því eftir að það kom upp hefur varla komið upp þjófnaðarmál. Valbjarnarsvæðið hefur tekið miklum breytingum eftir að það náðist í gegn að fjarlægja gömlu steinstandana og stúkuna. Við þetta stækkar æfinga- og keppnissvæðið umtalsvert og er nú hægt að leika þvert á tveim löglegum völlum auk þess sem til varð verulegt aukið æfinga- svæði. í áætlun félagsins til næstu fimm ára gerum við ráð fyrir að á svæðið komi allavega tveir nýir upplýstir og upphitaðir gervigras- vellir. Okkar von er sú að strax á næsta ári hefjist framkvæmdir við gerð þessara nýju valla þannig að þeir verði tilbúnir til notkunar veturinn 2020 - 2021. Þegar aðstaða okkar er skoðuð í samanburði við önnur hverfisfélög í Reykjavík, hafa þau öll eigið íþróttahús og sum tvö eða þrjú og sama á við um gervigrasvelli. Það er ekki sanngjarnt á neinn hátt að börn og íbúar við Laugardalinn hafx ekki sömu tækifæri til að stunda inniíþróttir og íbúar annarra hverfa. Við Þróttarar búum í hverfi sem hefur stækkað og mun stækka enn frekar á næstu árum í kjölfar þéttingu byggðar. Aðalstjórn félagsins setti sér skýra framtíðarsýn sem er til umþöllunar hjá Reykjavíkurborg. Samkvæmt henni mun félagið fá nýtt íþróttahús, sem einnig nýtist Laugamesskóla og Laugalækjarskóla, og a.m.k tvo nýja gervigrasvelli á Valbjamarsvæðið. 4

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019
https://timarit.is/publication/1578

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.