Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 22

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 22
Gísli, Friðrik, Stefán og Magnús í baráttunni. Fyrirtiðinn fylgist með. Old boys í Þrótti Hið margrómaða Old boys lið Þróttar er það langfjölmennasta á landinu og þótt víðar væri leitað. Tæplega 200 leikmenn, 30 ára og eldri, eru skráðir iðkendur og mæta oft tæplega 50 á æfingar sem eru fjórum sinnum í viku allt árið um kring, auk hádegisæfinga fyrir þá allra hörðustu. Island er augljóslega ekki nógu stórt fyrir þennan metnaðarfulla og öfluga hóp. Á síðasta ári var því riðið á vaðið og haldið í keppnisferð til Skotlands og Englands. Heppnaðist ferðin afar vel en tæplega 30 leikmenn tóku þátt. Þegar ákveðið var að endurtaka leikinn síðasta vor var skráningin svo góð að skipta þurfti hópnum upp í tvö lið sem mættust svo innbyrðis í Sunderland. Það voru því 40 leikmenn sem mættu í rútuna við Þróttarheimilið að morgni föstudagsins 17. maí. Til að tryggja að allt færi sómasamlega fram var Helgi Þorvaldsson fenginn til að vera sérstakur heiðursfararstjóri í ferðinni. Með honum í för var svo David Moyes eldri sem hefur vafalaust verið að leita að leikmönnum til að styrkja eldri lið Glasgow Rangers og Everton, þar sem hann hefur starfað. Skotinn Marc Boal sem hefur gefið út tímarit um íslenskan fótbolta var Þrótturum innan handar með skipulagningu ferðarinnar. Marc kynntist Þrótti árið 2016 í einni af mörgum ferðum sínum til Islands. „Ég hjálpaði til við að skipuleggja æfingaleik í Edinborg í fyrra. Svo þegar ég var hér síðasta haust í tengslum við útgáfu tímaritsins fóru þeir að ræða um aðra ferð við mig. Ég er búinn að vera í síma- og tölvupóstsamskiptum við ferðanefndina frá því í janúar. Það er heil- mikil vinna að skipuleggja svona fjölmenna ferð.“ Marc, sem þótti efnilegur knattspyrnumaður á sínum yngri árum, reimaði á sig skóna og lék með öðru liði Þróttar í ferðinni. koma til fslands. Hápunkturinn fannst mér að sjá svipinn á sumum eldri leikmannanna. Þarna voru menn á sextugsaldri að ganga inn á risafótboltaleikvang og þeir voru varla að trúa þessu. Þetta gerist ekki á hverjum degi.“ Marc hefur einnig aðstoðað fleiri íslensk félög sem farið hafa í keppnis- ferðir til Skotlands og hafði mifligöngu um þátttöku Ross County á Rey Cup í sumar. „Ég hef eignast vini í þessum hópi til lífstíðar. Það er magnað hvað bolti úr leðri fullur af lofti getur gert til að sameina fólk.“ Auk þess að spila leikinn í Sunderland spiluðu Þróttarar þrjá æfinga- leiki við skosk lið en leikið var gegn Falkirk, Cumbernauld Colts og Stenhousemuir. Allt voru þetta hörkuleikir þar sem Þróttarar áttu í fullu tré við harðsnúna andstæðinga sem sumir hverjir höfðu lokið atvinnumannaferlum sínum örfáum árum áður. Hápunktur ferðarinnar var hins vegar innbyrðisviðureign Guðfeðranna og Silfurrefanna. Stadium of Light, heimavöllur enska knattspyrnu- liðsins Sunderland, rúmar 49 þúsund áhorfendur. Þann 13. apríl 2002 var sett áhorfendamet þegar 48.353 sáu heimamenn tapa 0-1 fyrir Liverpool. Áhorfendurnir voru örlitlu færri þegar fjörutíu leik- menn úr Old boys liði Þróttar gengu inn á völlinn. Breskir veðbankar voru flestir á því að Silfurrefimir myndu standa uppi sem sigurvegarar en skoðanir voru skiptari meðal sérfræðinga. Það voru leikmenn Guðföðurins sem byrjuðu leikinn betur og áttu nokkur álitleg færi án þess að boltinn færi inn. Það var því nokkuð gegn gangi leiksins að Silfurrefirnir komust yfir með marki Kiflersins. Þá var hins vegar komið að Berta þætti Andréssonar. Gefum honum orðið: „Þessi ferð heppnaðist ótrúlega vel og nú stefnir eitt skoska liðið á að „Ég var búinn að vera meiddur í þrjá mánuði en vildi láta reyna á Ágúst handsamar knöttinn eftir hörkuskot frá Ótthari. Kristján og Júlíus berjst um knöttinn 22

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019
https://timarit.is/publication/1578

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.