Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 18
Tíu ára farsælt samstarf
VÍS og Þróttar
Eitt stærsta knattspyrnumót hvers árs fyrir
yngstu flokkana er VÍS-mót Þróttar sem
haldið er síðustu helgina í maí á hverju ári
á svæði félagsins í Laugardal. Saga mótsins
nær aftur til ársins 2005 en það var fyrst
haldið undir merkjum VÍS árið 2010. Mótið í
ár markaði því tíu ára farsælt og skemmtilegt
samstarf VIS og Þróttar.
Mótið er, eins og áður segir, eitt það stærsta á
hverju ári í mikilli og góðri flóru knattspyrnu-
móta fyrir yngri kynslóðina. VÍS-mót
Þróttar er fyrir stelpur og stráka í 6., 7. og
8. flokki og markar að mörgu leyti upphaf
knattspyrnusumarsins fyrir marga iðkendur.
Gríðarlegur fjöldi leikmanna af báðum
kynjum leggur leið sína á mótið og hefur
þátttökufjöldinn verið á bilinu 1.800 til
2.100 þátttakendur á hverju ári. Þarna sýna
framtíðarhetjur knattspyrnunnar allar sínar
bestu hliðar og litrík tilþrif innan vallar sem
utan gleðja gesti dalsins.
VlS-mótið er auðvitað ekki bara knattspyrnu-
mót því staðsetningin, í miðjum Laugar-
dalnum, býður upp á svo margt utan leikj-
anna fyrir leikmenn og fjölskyldur þeirra.
Mikil áhersla hefur verið lögð á að draga sem
flesta í Laugardalinn þessa helgi og eitt af
aðalsmerkjum mótsins er jákvæður andi og
Elísabet Ásmundsdóttir (Lísa) í góðum gír og
söluham á VÍS mótinu 2019
aðstaða til skemmtunar fyrir alla fjölskylduna.
VIS er stolt af samstarfinu við Þrótt enda
hefur þetta mót sannað sig sem eitt allra
skemmtilegasta knattspyrnumót ársins. Það
er vel skipulagt og allt snýst um að leikmenn
og foreldrar gangi af velli og yfirgefi Laugar-
dalinn með bros á vör og góða upplifun í
farteskinu.
VÍS óskar Þrótturum öllum innilega til
hamingju með 70 árin og velfarnaðar í
framtíðinni.
Jón Jónsson hélt uppi fjörinu á VÍS mótinu
Sögu
- og minjanefnd
Sögu og minjanefnd f.v. Sigurður K Sveinbjörnsson, Helgi Þorvaldsson, Sigurlaugur Ingólfsson,
Sölvi Óskarsson og Gunnar Baldursson.
í lok árs 2018 skipaði aðalstjórn félagsins eftirtalda
menn í minja- og sögunefnd félagsins: Helga Þor-
valdsson, Sölva Óskarsson, Jón Birgi Pétursson,
Gunnar Baldursson, Sigurð K. Sveinbjörnsson og
Sigurlaug Ingólfsson sem var jafnframt falið að
vera formaður nefndarinnar. Jón Birgir gat því
miður ekki starfað í nefndinni. Nefndin setti sér
það markmið að hlúa betur að þeim munum og
Ijósmyndum sem félagið á en jafnframt safna fleiri
munum og myndum tengdum félaginu. Árið 2019
hefur verið viðburðaríkt, enda afmælisár. Fyrsta
verkefni nefndarinnar var að tilnefna Þróttara
vikunnar, vikulega. Hafa nefndarmenn skipt með
sér verkum að skrifa um Þróttara sem með einum
eða öðrum hætti hafa komið að starfi félagsins, en
að öðrum ólöstuðum hefur Helgi Þorvaldsson verið
drjúgur við skrifin. Jafnframt ákvað nefndin að
standa að sögusýningu um sögu félagsins, í tilefni
afmælisins. Sú sýning mun verða formlega opnuð
Þrótturum 28. september n.k. Gunnar Baldursson
á heiðurinn að útliti sýningarinnar. Mest vinna
hefur þó farið í að safna, skanna inn og skrá
myndasafn félagsins. Einnig að búa þeim munum
sem félagið á betri stað innan félagsheimilisins.
Starf nefndarinnar mun ekki enda í lok þessa árs,
enda nefndin tilnefnd til tveggja ára, og er stefnan
sett á að halda áfram að skrifa vikulega pistla um
Þróttara vikunnar árið 2020, auk þess sem mikið
verk er enn framundan við innskönnun mynda.
Félagar eru hvattir til koma myndum á nefndina,
eins ef fólk lumar á hlutum sem tengjast sögu þess
og vill að félagið varðveiti þá.
Sigurlaugur Ingólfsson
18