Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 32

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 32
Öflugir foreldrar Berglind Ingvarsdóttir er móðir tveggja iðkenda hjá Þrótti. Hún hefur tekið þátt í foreldrastarfmu af krafti og áhuga og það er frábært að fólk eins og hún sé tilbúið að vinna með börn- unum sínum, þeim sjálfum og félaginu til heilla. Hún er ekki uppalin Þróttari og var ekki heldur í fótbolta þar sem hún ólst upp í Hafnar- firðinum. „Ég hélt hvorki með FH né Haukum þó að afi minn hafi verið einn af þeim sem stofnuðu Hauka.” En nú er hún semsagt búsett í Þróttarhverfinu og hefur sogast inn í foreldrastarfið hjá BUR í gegnum dætur sínar sem eru grjótharðir Þróttarar. Ég hitti hana á vellinum þegar stelp- urnar í meistarflokki tryggðu sér sigur á FH og þar með í Inkassódeildinni árið 2019. Hún heldur á dóttur sinni, henni Steinunni Klöru og ég spyr hana hvernig upplifun það er að vera foreldri í Þrótti. Svona á fólk að vera - hugsa ég - og vind mér í næstu spurn- ingu því ég vil alltaf reyna að gera Þrótt að betra félagi: Hvað getum við gert betur sem félag svona þegar kemur að foreldra- starfinu? „Mér fannst pínu erfitt að koma mér inn í hlutina svona fyrst. Mér fannst upplýsingar ekki sérstaklega aðgengilegar með svona hvernig maður á að haga sér sem foreldri bæði á hliðarlínunni og á mótum þar sem foreldrar skiptast á að taka að sér liðsstjórahlutverk. Ég vissi náttúrlega ekkert og það hefði verið mjög gott að hafa handbók fyrir foreldra. Ég hef séð að önnur félög eru með svoleiðis.” Þetta finnst mér frábær hugmynd og beini henni hér með til stjórnar BUR. Ég er með aðra spurningu, meitlaða spurningu sem mun breyta framtíð félagsins en nú hallar Steinunn Klara sér að vanga mömmu sinnar og hvíslar í eyra hennar: „Getum við komið núna? „Það er bara rosalega gaman. Ég hef nú engan samanburð þar sem við höfum ekki verið í neinu öðru liði. Eldri dóttir mín fann sig í fyrsta sinn í einhverri íþrótt þegar hún prófaði fótbolta og ég fann að henni fannst þetta gaman. Hún þekkti þó ekki mjög margar stelpur í fótbolt- anum og ég hugsaði með mér að ef ég gæti hjálpað henni með ein- hverjum hætti þá ætla ég að gera það. Það vantaði einmitt eitthvert foreldri af yngra árinu í foreldraráðið og ég hugsaði bara: af hverju ekki?” Búmm! Viðtali lokið! Ég þakka Berglindi fyrir spjallið og hvet um leið alla foreldra til að láta sjá sig meira á Þróttarsvæðinu, mæta á leiki hjá konum og körlum með börnum sínum og sömuleiðis koma á hátíðir félagsins eins og Köttarakvöldið, Sveitaballið, Herra- og Konukvöld og auðvitað Októberfestið. Félagið getur aðeins orðið betra og heilsteyptara með aukinni þátttöku ykkar. 32

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019
https://timarit.is/publication/1578

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.