Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 38

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 38
Skrúðganga frá Laugarneskirkju í gegnum hverfið á leið niður á heimavöll Þróttar - Eimskipsvöllinn 12. maí 2019. Boðið var upp á afmælistertur þann 12. maí 2019 í Þróttarheimiiinu þegar um 400 manns komu við í húsinu. Skemmtanir og viðburðir í Þrótti Það er samdóma álit flestra að Þróttur sé einn skemmtilegasti klúbbur landsins ef ekki sá allra skemmtilegasti. Þróttur nýtur góðs af þvi að eiga mikið af öflugum sjálfboðaliðum og þekktum einstaklingum í tónlistar-og afþreyinga- bransanum þegar kemur að skemmtunum og viðburðum. Skemmtanir og viðburðir hafa ávallt skipað ríkulegan sess í sögu Þróttar og um leið er þetta frábær leið til fjáröflunar fyrir félagið. Skemmtanir og viðburðir tengja líka foreldra, sjálfboðaliða og aðra saman í góðri stemningu, í öðruvísi umhverfi fyrir utan hið hefbundna starf, sem er nauðsynlegt til þess að styrkja böndin, vinskapinn og kynnast nýju fólk. Félagið fjárfesti í febrúar í markaðs-og viðburðastjóra sem mun vinna náið með öllum deildum og aðalstjórn í að skipuleggja viðburði og skemmtanir til að hámarka tekjur Þróttar af þessum viðburðum. Árið í ár hefur verið mjög farsælt þegar kemur að skemmtunun og viðburðum. Hinn 16. mars hélt knattspyrnudeild Þróttar hið árlega Herrakvöld Þróttar. Kristján Kristjánsson sá um veislustjórn, Saga Garðarsdóttir mætti og var með uppistand sem sló í gegn og Dóri Gylfa sló á létta strengi af sinni alkunnu snilld. Boðið var upp á trufflusveppamarinerað lambalæri og kjúklingaupplæri í rósmarín og hvítlauk. Síðan var happdrætti með veglegum vinningum og uppboð á glæsilegum varningi. Þátttaka var góð og fín stemning í húsinu og allirskemmtu sér vel. í byrjun maí hélt knattspyrnudeildin Köttarakvöld, upphitunarpartý fyrir sumarið þar sem þjálfarar meistaraflokksliðanna fóru yfir liðin og sumarið en auk þess var boðið upp á glæsilegar Þróttarvörur til sölu, ársmiðar á tilboði, geggjað barsvar ofl. Dóri Gylfa tók lagið og boðið var upp á sjóðandi heit rif og vængi og ískalda drykki til að skola öllu niður. Það var fín mæting og góð stemning og kvöldið styrkti félagsandann fyrir komandi átök sumarsins. Þann 10. maí var Konukvöldið haldið í annað sinn. Að þessu sinni var það “Konukvöld Laugardals” I Þróttarheimilinu. Konur innan félagsins voru duglegar að skipuleggja og hvetja aðrar konur til að mæta, konur í hverfinu og konur utan Þróttar og þrefaldaðist aðsóknin I ár frá I fyrra. Sett var bæði upp myllumerkið #divurnaridalnum og e-mailið divurnaridalnum@gmail.com sem mæltist vel fyrir. Ein nýjungin var að við buðum eiginmönnum, kærustum og aðdáendum að koma eftir kl. 23 til að samgleðjast öllum konunum og mæltist það vel fyrir. Tjörnes sá um skemmtiatriði, uppistand og leiki og einnig var slegið upp I happdrætti með glæsilegum vinningum og Jóna Hrönn Bolladóttir sá um veislustjórn. Kvöldið heppnaðist svo vel að flest allar konur í dalnum góða, hjarta Reykjavíkur geta ekki beðið eftir Konukvöldinu 2020. Þetta ár markar auðvitað sögulegan tíma í félaginu því Þróttur er 70 ára í ár. Þann 12. maí var vorhátíðin “Laugarnes á Ijúfum nótum” haldin á Þróttarsvæðinu til að samgleðjast Þrótti á afmælisárinu. Hátíðin var sett af sr. Davíð Þór Jónssyni sóknarpresti í Laugarneskirkju og síðan var haldið í skrúðgöngu frá Laugarneskirkju með skólahljómsveitina í broddi fylkingar og var gengið í gegnum Laugarneshverfið niður á Eimskipsvöll. Þar bauð Finn- bogi Hilmarsson, formaður Þróttar alla velkomna og hélt stutta tölu. Eftir það byrjaði gríðarlega metnaðarfull dagskrá þar sem boðið var upp á pylsusölu á vegum foreldrafélags Laugarnessskóla, andlitsmálun fyrir yngstu kynslóðina, knattþrautir úti á velli á vegum Þróttar, skylmingaatriði á vegum Dalheima og Laugarsels og Ármann bauð upp á Takewondo sýningu. Einnig voru hoppu- kastalar og klifurveggur úti fyrir börnin. Inni í sal í Þróttarheimilinu var einnig glæsileg dagskrá. Boðið var upp á glæsilega afmælistertu sem kláraðist, svala, kaffi ofl. Laugarneskirkja bauð upp á tónlistaratriði þar sem Konráð tók nokkur lög á gítarinn, leikhópurinn Óðamálafélagið frá Laugarneskirkju setti upp stuttan leikþátt og kór Laugarnesskóla söng nokkur lög. Að lokum hélt BUR, Barna-og unglingaráð Þróttar, fjáröflunarbingó þar sem leikarinn góðkunni, Jóhannes Haukur Jóhannesson lék á alls oddi og stýrði bingóinu eins og herforingi. Veðrið hélst þurrt og mæting var gríðarlega góð en um 400 manns komu á einhverjum tímapunkti til að taka þátt í fjörinu og samgleðjast Þrótti á afmælisárinu. Sveitaballið I dalnum var haldið 17. ágúst. Þetta var í annað sinn sem knattspyrnudeildin hélt Sveitaballið en það mæltist mjög vel fyrir í fyrra. Fram komu Helgi Björns, Hildur Vala, Dóri Gylfa, Böddi Reynis, Jón Ólafs, Sigurður Ingi ásamt Jóhanni Bjarna Kolbeinssyni sem var DJ. Það myndaðist gríðarleg stemning í Þróttarheimilinu og mættu um 300 manns á Sveitaballið. Allir skemmtu sér gríðarlega vel á svakalegasta stuðballi ársins. Hluti af dagskrá á 70 ára afmælisári Þróttar var knattspyrnuveislan sem boðið var upp á 6. september á Eimskipsvellinum. Þann dag spiluðu báðir meistaraflokkar félagsins I knattspyrnu i fyrsta skipti leik á sama degi á sama velli. Tjaldið góða var skreytt og sett í afmælisbúning. Boðið var upp á vöfflur með rjóma, pizzur, grillaða Konnaborgara og fleira. Meistaraflokkur kvenna reið á vaðið kl 17.00 og sigraði FH 2-0 og tryggði um leið sigur í Inkasso-deild kvenna 2019. Stelpurnar voru verðskuldað hylltar í leikslok. Meistaraflokkur karla háði hörkuleik við nágranna okkar úr Safamýri, Fram, en urðu að lúta í lægra haldi 1-2 eftir hetjulega baráttu. Yngri flokkar félagsins voru hylltir í hléum beggja leikja og á milli leikja. 5. flokkur kvenna sýndi verðlaunaatriði sitt frá TM-mótinu í Eyjum frá því fyrr í sumar við góðar undirtektir. Hápunktur 70 ára afmælishátíðar Þróttar á árinu var án efa glæsileg afmælishátíð og dansleikur í Laugardalshöll 7. September. Boðið var upp á fordrykk og glæsilegt hlaðborð frá Kjötkompaníinu. Jón Jónsson var syngjandi veislustjóri og hátíðarræðuna flutti Gísli Einarsson, fréttamaður. Sýnt var myndbrot úr heimildarmynd um Þrótt sem verður frumsýnd 18. október. Gestir fluttu ávörp, sem og formaður Þróttar, Finnbogi Hilmarssonar auk ávarps borgarstjóra Reykjavíkur, Dags B. Eggertssonar. Viðurkenningar voru veittar frá Þrótti og sérsamböndum og meistarflokkur kvenna var hylltur fyrir sigur í 38

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019
https://timarit.is/publication/1578

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.