Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 36

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 36
BUR - Barna og unglingastarf Þróttar Bama og unglingaráð knattspyrnudeildar (BUR) ber ábyrgð á starf- semi allra flokka barna og unglingaflokka, frá 8. flokki upp í 3. flokk. Iðkendur eru þannig allt frá 3 ára til 16 ára. Markmið BUR er að búa til öflugt barna og unglingastarf fyrir iðk- endur í Þrótti. Starfið miðað að því að hafa jákvæð áhrif á iðkendur, efla líkamlegan og sálrænan þroska sem og félagslega færni. BUR ber ábyrgð á ráðningu allra þjálfara yngri flokka. Þjálfararáð, skipað íþróttastjóra, yfirþjálfara og fulltrúa BUR, sér um ráðningu þjálfara og aðstoðarþjálfara í samráði við þjálfara hvers flokks. Nú á haustmánuðum hefur BUR unnið að innleiðingu nýs skipulags fyrir barna og unglingaflokka. Ráðinn hefur verið yfirþjálfari 3. - 8. flokks kvenna og stendur til að ráða yfirþjálfara fyrir drengjaflokkana. Yfirþjálfari, í samráði við þjálfara og stjórn BUR, skipuleggur faglegt starf yngri flokka og styður við þjálfara í þeirra starfi. Með þessum breytingum er stigið mikilvægt skref í eflingu barna og unglingastarfs innan félagsins og aukinn stuðning við þá frábæru þjálfara sem starfað hafa í barna og unglingastarfinu undanfarin ár. BUR styður við foreldraráð einstakra flokka sem sér um starfið kring- um hvern flokk. Mikilvægt er að foreldrar taki virkan þátt í starfsemi flokkanna og efli þannig í starfið í félaginu í heild. BUR stendur fyrir fjölda atburða bæði til að efla félagsanda og til fjáröflunar fyrir ráðið. Síðastliðinn vetur var haldið dómaranámskeið með góðri þátttöku foreldra sem hafa tekið að sér dómgæslu í sumar. Stefnt er á að endurtaka leikinn í vetur. Meðal annarra viðburða má nefna að BUR mun í vetur standa fyrir knattspyrnuskóla í skólafríum, vetrarfríum, jóla og páskafríi fyrir iðkendur í 6. og 7. flokki. Stærsti viðburðurinn á vegum BUR er VÍS mótið fyrir 6, 7 og 8. flokk sem er stærsta einstaka fjáröflun, ekki bara á vegum ráðsins heldur knattspyrnudeildar í heild. Mótið hefur vaxið undanfarin ár og í ár tóku þátt tæplega 300 lið með nær 2000 iðkendum. Stefnt er að því að efla mótið enn frekar á komandi árum. Slíkt mót er ekki mögulegt án öflugrar aðkomu foreldra og sjálfboðaliða í veitingasölu, dómgæslu og öðrum störfum og er BUR þakklátt þeim sem lögðu hönd á plóg í VÍS mótinu sem og öðrum viðburðum á vegum BUR. Starfið innan BUR hefur verið öflugt undanfarin ár samhliða því að hverfið hefur verið að yngjast. Staðan í dag er sú að Knattspyrnudeild Þróttar er með flesta iðkendur allra félaga í Reykjavík og frekari fjölgun fyrirsjáanleg. Stærsta áskorun sem BUR stendur nú frammi fyrir er fjöldi iðkenda. Það er i sjálfu sér lúxus-vandamál, en gera verður úrbætur í aðstöðumálum strax og bæta við gervigrasvöllum til að bæta aðstöðu til vetraræfinga. Núverandi aðstaða er löngu sprungin og á álagstímum eru allt að 200 iðkendur á gervigrasinu á sama tíma. Ástandið nú skapar áskorun í þjálfun og skerðir jafnframt endingar- tíma núverandi aðstöðu. Verði ekki brugðist við kann að að vera nauðsyn að setja skorður við fjölgun nýrra iðkenda í framtíðinni. BUR trúir því að með samstilltu átaki foreldra og forrráðamanna félags- ins verði hægt að knýja á um bætta aðstöðu fyrir iðkendur í náinni framtíð. #lifi. 36

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019
https://timarit.is/publication/1578

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.