Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Side 17

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Side 17
Knattspyrnudeitd Þróttar Nik Chamberlain þjálfari kvennaliðsins í Pepsí sturtu Inkassomeistarar kvenna 2019 Meistaraflokkur kvenna Nik Chamberlain stýrði liði m.fi. kvk á síðasta tímabili eins og hann hefur gert frá árinu 2016, honum til aðstoðar er Egill Atlason. Stelpurnar enduðu í fjórða sæti í Inkassodeildinni 2018 með 32 stig. Fyrir tímabilið var stelpunum spáð 4 sæti í Inkassó deildinni, en þær gerðu gott betur og enduðu sem íslandsmeistarar og munu því leika í Pepsi Max deildinni 2020. Ekki urðu miklar breytingar á leikmanna- hópi m.fl. kvenna frá því í fyrra en liðið samanstendur af ungum og mjög efnilegum leikmönnum þar sem uppaldar Þróttarstúlkur gegna veigamiklum hlutverkum en auk þeirra hafa bæst í hópinn afar efnilegar stelpur sem eiga framtíðina fyrir sér. Einnig fékk liðið til liðs við sig tvo erlenda leikmenn sem hafa átt afar gott tímabil með félaginu. Fyrir utan að hafa tryggt sig í Pepsi Max-deildina að ári þá urðu stelpurnar sigurvegarar Lengjubikarsins í C-deild. Tímabilið er ekki búið og er markmið m.fl. kvk að sigra í 1. deild kvenna. í ágúst 2019 var samningur við Nik Chamberlain framlengdur til tveggja ára og því mun hann stýra liðinu í komandi verkefnum í Pepsi Max-deild- inni, það er mat þeirra sem að koma að hann sé vel að því kominn og treystum við honum algerlega fyrir því verkefni. Meistaraflokkur karla Þórhallur Siggeirsson og Halldór Geir Heiðarsson stýra liði m.fl karla á yfirstandandi tímabili en þeir tóku við liðinu í febrúar 2019 þegar Gunnlaugur Jónsson lét af störfum en þeir höfðu áður verið aðstoðarþjálfarar Gunnlaugs. Þróttur endaði í 5.sæti í Inkasso deild- inni árið 2018 með 36 stig. Miklar breytingar urðu á leikmanna- hóp m.fl. karla fyrir tímabilið 2019. Leikmenn sem höfðu verið á láni snéru aftur til sinna félagsliða og aðrir fengu tækifæri á að spila í Pepsi Max-deildinni. Úr leik Þróttar og Leiknis í Inkassodeildinni I stað þeirra hefur m.fl. Þróttar fengið unga og efnilega leikmenn til liðs við sig auk þess sem þrír erlendir leikmenn eru á láni hjá félaginu. Þjálfarar m.fl fengu ærið verkefni að setja saman lið fyrir tímabilið en fyrirfram voru ekki gerðar neinar sérstakar væntingar til þeirra en þeim hafði verið spáð 5.sæti. Fram eftir móti var liðið um miðja deild en síðan kom sex leikja taphrina sem gerði það að verkum að liðið varð að ná í það minnsta stigi gegn Aftureldingu í lokaleiknum til að halda sætinu í Inkasso deildinni. Það tókst og liðið leikur því aftur í Inkassó deildinni á næsta ári. Vissulega vonbrigði að enda mótið svona illa en um leið mikil reynsla fyrir ungt lið. Sterkur 2. fl. tryggði sér nokkuð örugglega sæti í A deild fyrir kom- andi tímabil og er það mikið fagnaðarefni að Þróttur skuli hafa svo unga og efnilega leikmenn í sínum röðum. Þjálfararnir Þórhallur og Halldór hafa skýra framtíðarsýn sem snýr að því að byggja meistara- flokk upp á ungum og efnilegum Þrótturum og því er mikilvægt að við sem styðjum félagið sýnum þolinmæði í þeirri vegferð. 2. flokkur karla sigraði B deildina í sumar og leikur því í A deild að ári Að því sögðu vill stjórn knattspyrnudeildar þakka þeim fjölmörgu sjálf- boðaliðum sem hafa komið að ótal verkefnum í kringum klúbbinn og unnið ómetanlegt starf fyrir félagið, án ykkar væri Knattspyrnu- félagið Þróttur ekki á þeim stað sem það er í dag. Framtíðin er björt! LIFI Þróttur. 17

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019
https://timarit.is/publication/1578

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.