Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 24
Old Boys lið Þróttar á Stadium of Light í Sunderland í maí 2019
þetta því ég vildi alls ekki missa af ferðinni. Hugsaði að ég gæti alltaf
beðið um skiptingu. Liðið byrjaði leikinn vel og mér var svo skipt inn
á. Var búinn að vera inn á í svona 5-10 mínútur og ekki komið við
boltann nema einu sinni. Mér gekk það illa að ég var farinn að hugsa
um að biðja bara um skiptingu þvi ég hefði ekkert að gera þarna inn á.
Svo náum við sókn upp hægri kantinn og boltinn kemur fyrir og ég
ákveð að fara út í teiginn því boltinn gæti lent þar. Sem hann og
gerir, ég næ að leggja hann fyrir mig og skýt á markið. Sé hann stefna
hátt í stöngina og veit ekki fyrr en hann lendir þarna hátt í stönginni
og þeysist yfir í hitt hornið. Þó ég segi sjálfur frá, glæsilegt mark.
Þetta var ansi óvænt, ég jafna þarna leikinn 1-1. Þetta var alveg
ólýsanleg tilfinning að skora á þessum stóra velli.“
Berti gerði sér svo lítið fyrir og jafnaði metin öðru sinni eftir að Silfur-
refir höfðu náð forystunni aftur. Hann viðurkennir þó að seinna
markið hafi ekki verið eitt af hans bestu.
„Frá því að vera ekkert inni í leiknum er ég skyndilega búinn að skora
tvö mörk. Þetta mark var kannski ekki mikið fyrir augað. Samt
geggjuð tilfinning en það var svo enn betri tilfinning að við skyldum
vinna leikinn. Við náum svo að skora sigurmarkið 1-2 mínútum áður
en flautað var af. Það voru gífurleg fagnaðarlæti og mikil stemning
í liðinu. Við fögnuðum vel inni á vellinum og fögnuðum vel inni í
klefa. Það var búið að byggja upp mikinn ríg milli liðanna í aðdrag-
andanum. Menn að kítast og skjóta á hvern annan þannig það var
mjög gaman að hafa unnið. Þetta var bara mjög skemmtileg reynsla
og eitthvað sem maður mun varðveita lengi,“ segir Berti.
Leikurinn endaði með 3-2 sigri Guðfeðra og var það hinn knái Indriði
Björnsson sem skoraði sigurmarkið aðeins nokkrum mínútum fyrir
leikslok. Þá hafði legið nokkuð á liði Guðfeðra og Silfurrefir sótt stíft
en markvörður fyrrnefnda liðsins, Agúst Tómasson, varði allt sem á
mark kom og var í leikslok valinn maður leiksins. Hvernig tilfinning
skyldi það hafa verið?
„ Jú, jú fyrst þú spyrð. Auðvitað varð ég svakalega ánægður með mig
eftir sigurleikinn á Stadium of Ligth. Ég var og er rígmontinn af
því að hafa verið valinn maður leiksins. Það voru margir, sérstak-
lega í liði Guðföðurins, sem gerðu tilkall til þessa vegsauka en það
voru Sunderlandmenn sem völdu og þeir voru hlutlausir. Þetta var
náttúrulega Leikurinn í ferðinni og bæði liðin ætluðu sér sigur. Þó
að fótboltinn sé bara leikur þá verður bara að viðurkennast að það er
alltaf miklu skemmtilegra að vinna," segir Ágúst.
Hann segir það forréttindi að geta farið út að leika sér nánast alla
daga vikunnar. „En það er einmitt leikurinn sem gefur fótboltanum
gildi. Að geta reimað á sig fótboltaskó, hjólað niður í Þrótt og gleymt
sér algerlega í klukkutíma. Allt annað víkur út huganum og þú kemur
eins og nýhreinsaður hundur heim. Það er ótrúlegt að horfa yfir
hópinn á æfingum, fjörutíu kallar á aldrinum frá þrjátíu ára til sjötugs
en fyrirmynd okkar allra verður einmitt sjötugur í sumar. Þetta er
þverskurður af samfélaginu; barnakennarar, háskólakennarar, raf-
virkjar, píparar, héraðsdómari, gróssérar, smiðir, löggur, lögfræðingar,
líffræðingar, flugumferðarstjóri og blaðamenn. Menn sem hafa spilað
fótbolta allt sitt líf og aðrir sem hófu kannski ferilinn í Old boys eins
og ég. Þetta er rándýr félagsskapur sem ég er óendanlega þakklátur
fyrir að fá að tilheyra."
Helgi Þorvaldsson fylgist meö gangi mála íbygginn á svip
24