Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Side 27
KOTTARAVORUR
ERTU ALLSBER? ER ÞER KALT?
SKOÐAÐU 1>Á ÞCTTA: ZIZ
ÓTRÚLEGUR
KÖTTARAJÆKKI!
VIÐ ERUM AÐ PANTA NÝJA SENDINGU
SENDU PÖNTUN Á GUNNA HELGA Á
KOTTARAFACEBOOKSÍÐUNNl
Það var mikill hugur í mönnum og konum
í knattspyrnudeildinni vorið 2016. Þá var
Kaupfjelag Þróttar stofnað til að hjálpa
deildinni við að borga laun leikmanna, enda
karlaliðið að fara að spila í efstu deild. Hluti
af starfsemi Kaupfjélagsins fólst í þeirri
nýbreytni að kaupa inn stúkufatnað eða
hliðarlínuföt, Köttaraklæðnað, fyrir áhorf-
endur, aðdáendur og áhangendur Þróttar,
hvort sem fólk fór á leiki hjá yngri flokkunum
eða í meistaraflokki. Markmiðið var að vera
með flottustu og best klæddu stuðnings-
menn landsins. Ogþað tókst auðvitað. Fyrsta
árið var Köttarajakkinn frægi keyptur og árið
eftir var ákveðið að kaupa bæði regnhlíf og
regnjakka vegna þakleysis í stúkum liðanna í
næst efstu deild, þar sem karlaliðið
ákvað að spila árið 2017.
Auk þess var sixpensari framleiddur handa
þeim sem hafa betri fatasmekk en hinir og
svo hafa bæst við jakkar, peysur, derhúfur,
armbönd, treflar, hettupeysur og töskur. Enn
er eitthvað til af því sem við höfum pantað
í gegnum tíðina en yfirleitt hafa vörurnar
selst upp. Þó nokkuð margir foreldrar yngri
leikmanna hafa verið að átta sig á kostum
þess að vera klædd í Köttaraklæðnað á
leikjum barna sinna, sérstaklega á stórmótum
sumranna og vonandi eykst ásóknin í þessar
gæðavörur á næstu árum.
Fatanefnd Kaupfjelagsins liggur nú undir
feldi og hannar vorlínuna 2020. Er óhætt
að segja að mikill spenningur sé fyrir henni
meðal félagsmanna því við erum á leið í
efstu deild með kvennaliðið og ætlum að
vera flottust og flest í stúkunni næsta sumar.
Vorlínan verður afhjúpuð á Köttarakvöldinu
í byrjun maí 2020 og við hvetjum foreldra
yngriflokkabarna til að mæta þar með hinum
sauðtryggu Kötturum og tryggja það að hvar
sem Þróttur spilar verðum við alltaf flottust.
OG AFMÆLIS VARNIN GUR
Á afmælisári hefa verið til sölu númeruð barm-
merki, merkt frá 1-70 og kostar stk. aðeins
5.000 kr.
Einnig eru til sölu glæsilegir borðfánar á 4.900
kr. og 3.900 kr. (stakur fáni án stands). Þá er til
sölu afmælisbolli/kanna á 3.900 kr.
Varningurinn tengist 70 ára afmæli Þróttar og
er í takmörkuðu upplagi. 70 stk. af bollum, 70
stk. af borðfánum og 70 stk. númeruð barm-
merki. Allur varningurinn er með fyrsta merki
Þróttar og því um sögulega minjagripi að ræða
sem allir Þróttarar ættu að eiga.
Hægt er að kaupa þessa muni á skrifstofu
félagsins og einnig verða þeir til sölu á Sögu-
og minjasýningu Þróttar sem hefst 28.septem-
ber í hátíðarsal félagsins og stendur í tvær
vikur.
27