Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Blaðsíða 30
1 Hvert stefnirðu í boltanum?
Ég stefni á þann stað sem ég er á núna, spila
heima með Þrótti á meðan ég er í námi og svo er
bara spennandi að sjá hvert maður stefnir seinna.
2 Manstu eftir fyrstu æfingunni hjá Þrótti
Ég var 9 ára og mætti ein á fyrstu æfinguna og
var ein fyrstu mánuðina en fannst samt ótrúlega
gaman að læra blak hjá Silla sem var þá að
þjálfa. Silli hafði tekið upp krakkablak í Þrótti sem
sjálfboðaliðastarf og þrátt fyrir að ég hafi verið
eini þátttakandinn í nokkurn tíma þá gafst hann
ekki upp og smám saman náði ég að fá vini mína
með mér á æfingar, þeirfengu vini sína og svo
framvegis. Ég myndi segja að Silli sé stór ástæða
þess að krakkablak í Þrótti er í dag stærra en
nokkru sinni fyrr.
3 Er maður/kona stressaður/stressuð á fyrstu
landsliðsæfingunni?
Ég var alla vega virkilega stressuð en á sama tíma
mjög spennt að fá tækifæri til að spila með hóp af
bestu blakkonum á landinu. Er það ekki draumur
flestra i íþróttum að komast á landsliðsæfingu, það
var alla vega draumurinn minn en ég hef smám
saman áttað mig á því að þetta sé ekki eins og
lottó þar sem einhverjir heppnir fái drauminn sinn
rættan heldur er þetta markmið sem allir geta náð
ef þeir leggja það á sig.
4 Hver er lykillinn að góðu blakliði?
Samvinna! Eins og i öðrum hópíþróttum þá þarf
lið að geta unnið saman, ekki sem einstaklingar
heldur sem heild og blak er engin undantekning.
Hver einasta manneskja í liðinu hefur sinn tilgang,
sama hvort það sé innan vallar eða utan, þjálfari
eða leikmaður, sóknarmaður eða varnarmaður og
svo framvegis.
5 Hver hefur kennt þér mest á ferlinum?
Mér finnst ég læra eitthvað nýtt á hverri æfingu
og ég veit ekki hversu margir hafa gefið mér
leiðbeiningar eða ráð en ef ég þyrfti að nefna einn
sem hefur mótað mig sem mest væri það án efa
Ingólfur Hilmar, þjálfari meistarflokks Þróttar.
6 Hver er uppáhalds blakarinn þín?
Stelpurnar sem ég æfi með í Þrótti eru uppáhalds
blakararnir mínir.
7 Hvað borðarðu fyrir leiki
Oft fæ ég mér steikt egg á brauði. Mjög misjafnt.
8 Af hverju er Þróttur besta lið í heimi?
Af því að Þróttur tekur á móti öllum, það er eitthvað
fyrir alla og ekki síst því allir sem eru í Þrótti, leik-
menn, þjálfarar, sjálfboðaliðar og formenn leggja
sig allir fram til að gera Þrótt að besta liði í heimi.
Tinna Arnardóttir
1 Hver er munurinn á að spila eða æfa með
Þrótti og landsliðinu?
Við í Þrótti erum allar mjög nánar og góðar
vinkonur, við þekkjum allra styrkleika og veikleika
og höfum haft langan tíma til þess að læra hver á
aðra, alltaf grin og gaman á æfingum. í landsliðinu
hefur maður stuttan tíma til þess að læra inná hina
leikmennina, en lang oftast verður hópurinn náinn
og því auðveldara að lagfæra sín á milli. Það er
frábært að fá tækifæri til þess að spila með land-
sliðinu, maður þroskast mikið bæði sem leikmaður
og persóna.
2 Hvert stefnirðu í boltanum?
Ég stefni á halda áfram að æfa eins og ég get,
enda í öldungablaki einn daginn;)
3 Manstu eftir fyrstu æfingunni hjá Þrótti
Nei það eru svo mörg ár síðan! En fyrsta æfingin
mín hjá Þrótti var reyndar handboltaæfing, það var
rosa fjör.
4 Er maður/kona stressaður/stressuð á fyrstu
landsliðsæfingunni?
Já ég var það allavega, en um leið og maður mætir
og sér að það eru flestir á sama stað og í sömu
sporum og þú þá fer stressið og þú gerir bara þitt.
Það þekkjast flestir jafnaldrar í blaki á ísiandi
þannig að ég var ekkert að æfa með ókunnugu fólki.
5 Hver er lykillinn að góðu blakliði?
Liðsheildin. Lið vinnur ekki leik á einum eða
tveimur frábærum leikmönnum sem spila bara sín
á milli. Lið vinnur þegar allir hjálpast að og vinna
saman að sama markmiði.
6 Hver hefur kennt þér mest á ferlinum?
Það eru svo margir! Allir mínir þjálfarar í Þrótti
hafa kennt mér eitthvað, en ég held að Ingó sem
þjálfar okkur núna hafi kennt mér mest, sérstak-
lega varðandi mína stöðu sem uppspilari.
7 Hver er uppáhalds blakarinn þín
Eins lélegt og það er að segja það þá á ég engan
uppáhalds blakara, en það eru margir flottir blak-
arar sem maður lítur upp til hérna á íslandi.
8 Hvað borðarðu fyrir leiki
Pestópasta með grænmeti, alltaf!
9 af hverju er Þróttur besta lið í heimi?
Það eru bara allir Þróttarar svo frábærir;)
Katla Hrafnsdóttir
1 Hver er munurinn á að spila eða æfa með
Þrótti og landsliðinu?
Mesti munurinn er að i landsliðinu er ég ekki
að spila með þeim sem ég æfi með á næstum
hverjum degi. Einnig er mikill heiður að vera valin
1 landsliðið og ég er þakklát fyrir það.
2 Hvert stefnirðu í boltanum?
Ég er ekki alveg búin að ákveða það en ég ætla
örugglega að halda áfram að spila hér heima.
3 Manstu eftir fyrstu æfingunni hjá Þrótti
Já, ég man vel eftir henni. Ég var 7 ára og var
ekkert smá spennt að prófa blak. Æfingin var í
íþróttahúsi Langholtsskóla sem rétt rúmar einn
barnablakvöll. Ég man að á einni æfingunni var
kastað á okkur bolta og við áttum að taka á móti
honum með fleyg. í stað þess að taka venjulega
á móti honum skaut ég honum eins fast og ég gat
upp svo hann snerti loftið. Silli þjálfari var ekkert
ánægður en ég var rosa góð með mig, hélt ég
væri búin að læra þetta fullkomlega strax á fyrstu
æfingu.
4 Er maður/kona stressaður/stressuð á fyrstu
landsliðsæfingunni?
Já ég var svolitið stressuð. Þjálfarinn talaði ensku
og ég skildi voða lítið af því sem hann var að segja
því ég varsvo ung.
5 Hver er lykillinn að góðu blakliði?
Góður vinskapur, virðing og samskipti.
6 Hver hefur kennt þér mest á ferlinum?
Ég hef verið með marga þjálfara frá því ég byrjaði
og fengið leiðbeiningar frá ótal mörgum en sá þjálf-
ari sem hefur kennt mér mest er Ingólfur Hilmar
Guðjónsson. Hann hefur verið þjálfarinn minn i
næstum 3 ár.
7 Hver er uppáhalds blakarinn þín
Get bara ekki ákveðið hver er i uppáhaldi. Pass.
8 Hvað borðarðu fyrir leiki
Ég bý mér oftast til samloku með bönunum eða
með eggjum og káli og fæ mér líka ávöxt með.
9 Af hverju er Þróttur besta lið í heimi?
Því þar hjálpast allir að og gera sitt besta.
30