Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Side 31

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Side 31
„Lambalæri að Seint á síðustu öld, þegar Þróttur átti enn samastað í Sæviðarsund- inu, tóku nokkrir félagar að hittast í félagsheimilinu, yfir súpudisk og brauði. Siður þessi fiuttist með félaginu í Laugardalinn og hópurinn, þótt fámennur væri, tók nokkrum breytingum og með nýjum mönn- um komu nýjar áherslur. I einu hádeginu í september 2011 fannst mönnum tími til kominn að fara að gera eitthvert gagn og var ákveðið að stofna „Hádegishópinn" sem hefði það að markmiði að bjóða upp á „Lambalæri að hætti mömrnu" einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuð- ina. Skildi hagnaður, ef einhver yrði, renna til að styrkja góð málefni innan Þróttar. Verði er mjög stillt í hóf og hægt er að treysta því að tímasetning stendur, en byrjað er kl.12.00 og hringt út kl.13.00. Með „Lambalærinu" er boðið upp á ræðumann (oftast tengdum íþróttum) sem gestir fengju síðan að spyrja spjörunum úr. Þetta fyrirkomulag hefur vakið mikla lukku ekki aðeins meðal Þróttara heldur hafa gestir komið víða að. Fjöldi ræðumanna hafa heimsótt okkur. Einar Örn Jónsson handknattleiks- og fréttamaður reið á vaðið og síðan hafa margir fylgt á eftir. Allir hafa þeir staðið full- komlega undir væntingum og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Nokkrir hafa fyllt salinn en þeir eru: Guðjón Þórðarson, knattspyrnu- þjálfari, sem rann út á tíma og lofaði að koma aftur í framtíðinni, Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karla, Lars Lagerbaack, lands- liðsþjálfari karla sömuleiðis, David Moyes, f.v. knattspyrnustjóri Manchester United og Everton, sem ræddi við menn og sat fyrir á myndum í góðan hálftíma eftir að ræðu hans lauk, Guðmundur Þórður Guðmundsson, nýkominn heim frá HM, þar sem hann gerði Dani að heimsmeisturum í handbolta og að síðustu Eiður Smári Guðjohnsen, atvinnumaður sem tók með sér Sveppa vin sinn sem skemmdi ekki fyrir. I lok greinarinnar er listi yfir alla þá sem verið hafa gestir okkar og voru þeir allir með aðsókn vel fram yfir það sem við lögðum upp með. Fyrir jólin hvert ár hefur hópurinn boðið upp á hangikjötsveislu og þar hafa þeir Gunnar Helgason, Logi Bergmann Eiðsson, Sigmundur O. Steinarsson, Guðni Ágústsson, Ásmundur Friðriksson, Júlíus Brjánsson, Björn Bragi Arnarsson, Óskar Magnússon, Gísli Rúnar, Þórhallur Laddi Sigurðsson, Sævar Helgi Bjarnason, Ragnar Jónasson og Þorgrímur Þráinsson kynnt nýútkomnar bækur sínar. Hópurinn hefur nú þegar veitt nokkra styrki. Fyrsti styrkurinn fór til Sigurðar Hallvarðssonar heitins, í veikindum hans, í góðri samvinnu við Bónus og Nings, en Sigurður var einn af frumkvöðlum hópsins. Þá hefur hópurinn m.a. gefið félaginu dúka á borðin í veislusalnum og einnig tölvu fyrir öryggiskerfið í félagsheimilinu, styrkt meistara- fiokk kvenna, keypt stóla og borð í salinn í samvinnu við Skákklúbb félagsins, en gömlu borðin voru að hruni komin. Síðan var hljóðkerfið endurnýjað. ,í tilefni 70 ára afmælis Þróttar hefur HM hópurinn gefið félaginu nýjan félagsfána til að nota við hátíðleg tækifæri og aðra tvo til að nota á fundum og við önnur tækifæri. Þegar talað er um hópinn er ekki einungis átt við okkur í Hádegishópnum heldur einnig ykkur sem mætið í „Lambalærið" og leggið ykkar af mörkum til að gera þetta mögulegt. Hafið kærar þakkir fyrir. Ekki má gleyma hlut Nóatúns, en verslun þess í Austurveri sá um matseldina fyrstu árin og við þurftum aðeins að skera niður kjötið. Nú hefur verið skipt um birgi og kemur kjötið niðursneytt til okkar frá Söluturninum, Bæjarhrauni, ehf - Milli Hrauna, og kunnum við fyrirtækinu bestu þakkir fyrir. Eins og fram kemur hér á undan þá hefur "Lambalæri að hætti mömmu' gengið mjög vel og er ætlunin að hefjast ávallt handa strax eftir lok knattspyrnuvertíðar, þ.e. í lok september eða byrjun október. Margir ræðumenn eru komnir á listann hjá okkur fyrir næstu vertíðir og er greinilegt að þetta framtak okkar hefur vakið mikla athygli og er greinilega komið til að vera. Fyrsta „Lambalæri að hætti mömmu' í haust verður föstudaginn 27. september kl.12.00. hætti mömmu" F.v. Sigurður K Sveinbjörnsson, Helgi Þorvaldsson, Lára Dís Sigurðardóttir, Sigurður Hallvarðsson, Brynjólfur Grétarsson og Gunnar Baldursson. Við viljum benda þeim sem áhuga hafa á að komast á póstlistann hjá okkur að senda póstfangið sitt til Sigurðar K. Sveinbjörnssonar á sigurdurks@simnet.is. Hér að neðan er listi allra þeirra sem hafa verið ræðumenn á „Lambalæri að hætti mömmu“. Einar Örn Jónsson, BogiAgústsson, Halldór Henson Einarsson, Logi Berg- mann Eiðsson, Guðni Bergsson, Arnór Guðjohnsen, Ólafur Jóhannes- son, Rúnar Kristinsson, Guðni Agústsson, Heimir Guðjónsson, Einar Kárason, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, Aron Kristjánsson, Kristinn Jakobsson, Guðjón Þórðarson, Ólafur Kristjánsson, Arnar Páll Hauks- son, Hermann Hreiðarsson, Páll Einarsson, Helgi Daníelsson, Heimir Hallgrímsson, Jóhann Kristjánsson, EllertB. Schram, Hjörvar Hafiiðason, Guðmundur Benediktsson, Eyjólfur Sverrisson, Logi Ólafsson, Jón Steinar Gunnlaugsson, SigurðurValur Sveinsson, Páll Ólafsson, RúnarPáll Sigmundsson, Björn Berg Gunnarsson, Bjarni Felixson, Gunnar Felixson, Hörður Felixson, Magnús Gylfason, Hörður Magnússon, Logi Gunnarsson, Arnar Grétarsson, Viggó Sigurðsson, Þorbergur Aðalsteinsson, Kristján Gíslason, Lars Lagerbaack, Einar Bollason, Hjörvar Hafliðason, David Moyesyngri, Guðmundur Þórður Guðmundsson, Bjarki Sigurðsson, Guðjón (Gaupi) Guðmundsson, Júlíus Jónasson, Ómar Ragnarsson, Óskar Örn Þorvaldsson, Haukur Birgisson, Willum Þór Þórsson, Hans Steinar Bjamason, Gunnleifur Gunnleifsson, Sigurður Dúlla Þórðarson, Þorbjörn Jensson, Sólmundur Hólm, Tómas Þór Þórðarson, Elvar Geir Magnússon, Gísli Marteinn, Óskar Bjarni Óskarsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Atli Eðvaldsson, Eiður Smári Gudjonsen, Sverrir (Sveppi) Sverrisson ogAtli Viðar Björnsson. Atli Eðvaldsson var einn af ræðumönnum á „Lambalæri að hætti mömmu." 31

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019
https://timarit.is/publication/1578

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.