Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Page 41
Þorsteinn Steingrímsson og Jón Einarsson
kepptu á skautum á Tjörninni fyrir Þrótt um miðja síðustu öld.
Eyjólfur sundkappi stundaði sjósund sér til heilsubótar.
Bridge var stór þáttur í starfi Þróttar.
„Týndar greinar í Þrótti ?
Á stofnfundinum var rætt um hvort kalla ætti félagið
Knattspyrnu félagið Þróttur eða íþóttafélagið
Þróttur. Knattspyrnan varð ofan á enda var Ijóst
að hún yrði fyrsta grein hins nýstofnaða félags.
Fljótlega bættist við handbolti en á þessum fyrstu
árum voru fleiri íþróttir stundaðar af Þrótturum.
Á fyrstu árum félagsins kepptu nokkrir Þróttarar í
frjálsum íþróttum. Svavar Magnússon varð til að
mynda í 3. sæti 13000 m hlaupi á drengjamóti
Ármanns árið 1950, þá aðeins 14 ára gamall.
Meðal frjálsíþróttamanna var einnig Þorsteinn
Steingrímsson en hann átti eftir að ná miklum
árangari I annarri íþróttagrein, grein sem var
nokkuð vinsæl á þessum árum: Skautahlaupi.
Veturinn 1950-51 var íslandsmót I hraðskauta-
hlaupi endurvakið.
Á næstu árum áttu Þróttarar góðu gengi að fagna
og varð Þorsteinn Steingrímsson t.a.m. íslands-
meistari í öllum vegalengdum sem keppt var í eitt
árið. íslandsmót I skautahlaupi lagðist svo aftur
af, árið 1955; en Þorsteinn varð íslandsmeistari í
1500 m. á því móti.
Skák og bridge var stór þáttur í starfi Þróttar yfir
veturinn allt frá stofnun. Fyrsta veturinn sem
félagið starfaði voru skákæfingar haldnar tvisvar
í viku I bragganum, eða Skálanum. Síðar bættist
bridge við. Til að hafa smá keppni í skákinni
fyrsta veturinn var ákveðið að halda skákkeppni
milli félagsmanna af Holtinu og úr Skerjafirðinum.
Skerfirðingar höfðu sigur með fimm vinninga gegn
einum. í kjölfarið var efnt til keppni við nágranna-
félagið KR, og höfðu Þróttarar betur 10-2. Þegar
fram í sótti þá var það bridge sem átti meiri
vinsældum að fagna. Árið 1955 stóðu Þróttarar
fyrir keppni milli knattspyrnufélaganna í Reykjavík
í bridge. Bikarinn gaf Haraldur Snorrason, einn
af formönnum Þróttar. Aðeins var þó keppt um
þennan bikar í tvö ár, 1955 og 1956 en þá lagðist
mótið af.
Þó sjósund hafi aldrei orðið formleg grein
innan Þróttar þá eiga Þróttarar lang frægasta
sjósundskappa fyrr og síðar. Eyjólfur sundkappi,
annar stofnenda Þróttar, vakti mikla athygli með
sjósundsafrekum sínum. Hann tók upp sjósund
sem ungur maður til að styrkja sig eftir veikindi og
ekki var aftur snúið. Á glæstum íþróttaferli synti
hann m.a. úr Grímsstaðavörinni til Bessastaða,
Viðeyjarsund, milli lands og Eyja og Grímseyjar-
sund. Hann gerði tilraun til að synda Ermasundið
en þurfti frá að hverfa.
Á árunum 1991 til 1994 hélt Þróttur úti deild sem
nefndist júdó- og karatedeild, eða búdó. Deildin
tók þátt í nokkrum mótum en starfsemi hennar
lagðist að lokum niður. Yngsta deild félagsins er
krulludeild. Krulla, eða curling á ensku, er ung
keppnisgrein á íslandi en fyrsta íslandsmótið fór
fram árið 2002. Krulludeild var stofnuð I Þrótti
þegar Ijóst var að félagiö myndu færa sig um set
og flytjast I Laugardal. Því miður náði starfsemi
deildarinnar aldrei að komast á skrið, því lítið var
um lausa tíma á skautasvellinu í Laugardal og þeir
tímar sem deildinni buðust fáir og á heldur ókristi-
legum tímum. Þó starfsemi deildarinnar liggi niðri
sem stendur er deildin enn formlega til, eða hefur
að minnsta kosti ekki verið formlega lögð niður.
41