Fréttablaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 18
Fjallalæknarnir og félag- arnir Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson hafa ferðast um Ísland í fjölda ára og kynnst mörgum perlunum sem þeir deila nú með heim- inum á nýstofnaðri vefsíðu sinni, fokusahjartalandsins.is. Tómas og Ólafur fóru báðir í sérfræðinám  í útlöndum  en á námsár-unum var ekki mikið ferðast um Ísland. „Ég var í ellefu ár í sérnámi, bæði í Svíþjóð og Bandaríkjunum, og þegar ég kom heim árið 2005 var áhuginn á fjalla- mennsku sprottinn upp hér á landi sem aldrei fyrr,“ segir Tómas sem starfað hafði sem fjallaleiðsögu- maður áður en hann fór utan. „Við Ólafur kynntumst fljótlega eftir heimkomu en ég hafði séð myndirnar hans.“ Ólafur hefur lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun og tekið tilkomumiklar myndirnar sem birst hafa með greinum þeirra félaga. „Ég hef verið að mynda frá því ég var sjö ára og pabbi gaf mér myndavél en þegar stafræna bylt- ingin fór á skrið jókst áhugi minn enn frekar.“ Tómas k y nntist hálendinu snemma enda faðir hans jarð- fræðingur. Hann hafði því gaman af því að kynna augnlækninn Ólaf, nýkominn frá sérnámi í Noregi, fyrir hverri perlunni á eftir annarri. „Við fundum tóninn og höfum farið ansi víða saman,“ segir Ólafur og Tómas bendir á að þeir hafi orðið virkir félagar í FÍFL, Félagi íslenskra fjallalækna, þar sem f lestir voru læknar en eina skilyrðið til þátttöku var að hafa einhvern tímann farið til læknis. Eftir að Tómas tók sæti í stjórn Ferðafélags Íslands hafa þeir beint kröftum sínum meira þar og í vaxandi mæli að náttúruvernd. Enginn svaka áróður „Við fórum að birta myndir af nátt- úruperlum sem fólk hafði ekki séð og stóð jafnvel til að fórna fyrir virkjanir. Við ákváðum að vera ekk- ert með neinn svaka áróður heldur reyna að gefa þessum perlum andlit á samfélagsmiðlum,“ segir Tómas. Þeir félagar hafa notað ýmsar leiðir til að vekja athygli á verndun náttúrunnar og ein leiðin var að gefa út Fossadagatal og Fossabækling með myndum af fossunum upp af Ófeigsfirði á Ströndum sem stóð til að virkja með Hvalárvirkjun. Útgáf- an var á eigin kostnað. „Svo stóðum við bara niðri í bæ fyrir ein jólin og seldum. Fyrsta upplagið rokseldist svo við þurftum að prenta annað enn stærra, sem líka rauk út.“ Þeir ákváðu strax að veita fjöl- miðlum og einkaaðilum aðgang að myndum sínum til að bera út fagnaðarerindið og fengu ein- mitt Jarðarberið, fjölmiðlaverð- laun umhverfisráðuneytisins, árið 2018. Félagasamtök eins og Ferða- félag Íslands hafa einnig getað nýtt myndirnar óspart. Fókusinn og hjartað Í dag fer svo í loftið glæný og glæsi- leg heimasíða þeirra félaga, fokusa- hjartalandsins.is. „Heimasíðan er í raun framhald af því sem við höfum verið að gera,“ segir Tómas en eftir þá hafa birst greinar í fimmtudags- blöðum Fréttablaðsins í þrjú ár og segir Tómas nafnið hafa komið af sjálfu sér. „Fókusinn er vísun í augnlækninn sem jafnframt á flestar myndirnar og svo skrifa ég, hjartalæknirinn, greinarnar frá hjartanu. Það var svo dóttir mín, Guðbjörg Tómasdóttir, sem hannaði lógóið,“ segir Tómas og Ólafur bætir við; „Ég segi nú alltaf að við verðum að hafa sjónina í lagi því heimurinn er svo fallegur.“ – „En maður sér nú ekki mikið ef hjartað dælir ekki,“ bætir Tómas sposkur við. Greinar þeirra félaga hafa verið Hálendið þeirra hjartans mál Fögrufjöll við Langasjó, séð ofan af Sveinstindi. MYND/ÓLAFUR MÁR Tómas og Ólafur gengu auðvitað upp að gosinu í Geldingadölum. Á vefsíðunni fokusahjartalandsins.is má finna greinar og ljósmyndir. Þeir félagar hafa gengið víða um óbyggðir og myndað bæði á hefðbundinn hátt og úr dróna. Hér er gengið á Efrí-Dyrhamar í Öræfajökli. MYND/ÓLAFUR MÁR vinsælar og eiga þeir sér dygga lesendur í hverri viku. „Sjúklingar mínir, sumir yfir áttrætt, hafa verið að klippa greinarnar út og safna þeim,“ segir Ólafur og Tómas segir fólk jafnvel stoppa sig út í búð og þakka fyrir sig. „Þetta er fólk á öllum aldri en sumir segjast ekki treysta sér lengur í langar gönguferðir og ferðast því með okkur á þennan hátt á fimmtudögum.“ Greinarnar telja nú vel á annað hundraðið og segjast þeir enn ekki uppiskroppa með staði og hug- myndir. „Þegar við ferðumst erum við með þetta í huga. Ég er til að mynda örugglega búinn að koma fimmtíu sinnum í Kverkfjöll en það er alltaf hægt að finna nýja vinkla á slíkum stöðum til að fjalla um,“ segir Tómas og bætir við að grein- arnar virki hvetjandi á þá að finna fleiri staði sem þeir hafi ekki komið á nú þegar. „Það er alltaf smá grúsk í kringum hverja færslu og tekur sex til átta klukkustundir að setja text- ann saman. Við köfum í heimildir og árbækur og reynum yfirleitt að fá heimamenn til að lesa yfir varðandi örnefni og annað slíkt.“ Ólafur rifjar upp sögu frá síðasta sumri þar sem þeir voru fyrir aust- an, í Stafafelli í Lóni. „Okkur fannst við tjalda frekar nálægt hvor öðrum en þegar við svo komum til baka úr göngu sáum við að búið var að koma tjaldvagni fyrir á milli tjaldanna okkar, og vorum ekki sérlega sáttir við það. En þá kom út úr vagninum ung kona, sigri hrósandi með bunka af úrklippum af greinum okkar í Fréttablaðinu. Hún hafði þá keyrt alla þessa leið til að skoða það sem við höfðum skrifað um Lón og þetta tjaldstæði, og ómeðvitað tjaldað á milli okkar höfundanna,“ rifjar hann upp og hlær. Vildu koma öllu á einn stað Ólafur bendir á að myndataka hafi breyst mikið með tilkomu dróna og hann þannig farið að taka upp fleiri myndbönd. Þá langaði að koma öllum greinum sínum og þessu mikla myndefni saman á einn stað og hafa því varið ómældum tíma sl. ár í að útbúa glæsilega heimasíðu. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is En þá kom út úr vagn- inum ung kona, sigri hrósandi með bunka af úrklippum af grein- um okkar í Fréttablað- inu. Á heimasíðunni er einnig hægt að nálgast allar fimmtudagsfærslurnar í Fréttablaðinu og þar eru kort og GPS-hnit sem sýna hvar á landinu staðirnir eru. Fólk getur því farið á heimasíðuna til að fá hugmyndir fyrir ferðalög í sumarfríinu, og það eftir landshlutum. „Við erum að gera þetta af hug- sjón í frítíma okkar og það er gaman að halda þessu öllu saman á einum stað,“ segja þeir að lokum um leið og þeir skora á sem flesta að kíkja á fokusahjartalandsins.is sem er öllum opin. ■ HELGIN 12. júní 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.