Fréttablaðið - 12.06.2021, Síða 25

Fréttablaðið - 12.06.2021, Síða 25
Jón Arnór er hér að kveðja stuðningsmenn íslenska lands- liðsins í sínum síðasta leik fyrir íslenska liðið. Hann segir þátttöku liðsins á Euro Basket ógleymanlega. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR harki sem er í kringum körfubolt- ann og þráði að flytja heim. Mér leið eins og ég væri tíu árum eldri en ég var. Skrokkurinn var allur lurkum laminn og ég var andlega þreyttur. Það var mjög gott að koma heim í KR og vera nær fjölskyldu og vinum. Sú ákvörðun lengdi klárlega feril- inn og ég varð ferskur á nýjan leik. Við hefðum getað hugsað okkur að setjast að í Valencia þegar ég samdi þar því okkur fjölskyldunni leið mjög vel þar. Planið var hins vegar alltaf að f lytja heim þegar  elsta barnið byrjaði í skóla. Eftir síðasta leikinn núna með Val er ég kominn með algjörlega nóg af körfubolta og ætla ekki að snerta körfubolta næstu árin. Ég er ekki týpan sem fer í bumbubolta og ég er líklegri til þess að hóa saman hóp í innifótbolta eða fara í tennis. Ég hef líka mjög gaman af því að fara í golf,“ segir Jón Arnór sem lék upp yngri flokka Fram í fótbolta. Hefur áhuga á viðskiptum „Ég hef starfað sem ráðgjafi og umboðsmaður körfuboltamanna. Sú vinna fullnægir mér hvað körfu- boltann varðar. Svo getur vel verið að ég muni smitast af þjálfarabakt- eríu. Mér finnst líklegast að það verði einkaþjálfun eða afreksþjálf- un á smærri hópum. Þannig myndi ég sjá um einstaklingsþjálfun, ráð- gjöf ungra og efnilegra leikmanna og aðstoða þá við að komast á samn- ing í atvinnumennsku,“ segir hann. „Ég mun hefja MBA-nám í Háskól- anum í Reykjavík í haust. Ég er mjög spenntur fyrir því. Það er mikið frelsi og léttir sem fylgir því að hafa sett körfuboltaskóna á hilluna þó að ég muni klárlega sakna klefa- stemningarinnar og spennunnar sem fylgir því að vera í liði sem er að keppa að einhverju. Langtímamarkmiðið er svo að vinna eitthvað tengt viðskiptum og fjármálum. Ég hef mikla trú á því að körfuboltaferillinn muni nýtast mér mjög vel í að taka þátt í fyrir- tækjarekstri og verkefnastjórnun í viðskiptaheiminum. Næst á dagskrá er hins vegar að eiga gott sumar með fjölskyldunni. Það hefur lent á konunni minni hingað  til  að halda heimilinu gangandi meðan ég hef fengið að einbeita mér að körfunni. Sá stuðn- ingur er ómetanlegur og ég hlakka til að eyða meiri tíma með þeim. Ég man sjálfur vel eftir kvöldmáls- tímanum sem ég ólst upp við, þar sem öll fjölskyldan sat saman og átti góða stund. Það er dýrmætt en hefur oft verið erfitt að njóta saman þegar ég er að æfa eða keppa á sama tíma. Nú stendur til að bæta úr því og það er komið að mér að leggja meira í púkkið á heimilinu. Konan mín hefur verið kletturinn í fjölskyldunni og séð um að heim- ilislífið gangi smurt. Hún er algjör gullmoli og ég er ofboðslega hepp- inn að eiga hana að.  Það er frábært að fylgjst með börnunum mínum vaxa og dafna. Það sem er sorglegt þegar ég er að fylgjast með íþróttaiðkun eldri barnanna minna er að það hefur nánast ekkert breyst í aðstöðu- málum í Laugarnesinu. Sem gerir það að verkum að strákurinn æfir körfubolta hjá KR. Við keyptum okkur hús á æsku- slóðum mínum og aðstaðan hjá Þrótti og Ármanni er eiginlega alveg eins og þegar ég var að byrja minn feril. Það er lélegt og borgaryfirvöld og ríkið þurfa að spýta rækilega í lófana hvað það varðar,“ segir hann. Frábær tími í Berlín og Finnlandi Aspurður um hápunkta á ferlinum nefnir Jón Arnór fyrst til sögunnar þátttöku íslenska landsliðsins á Euro Basket 2015 og 2017. „Það var algerlega magnað að fara á þetta stóra svið með félögum manns sem maður hafði verið að spila mörgum hverjum með upp öll yngri landsliðin. Eftir að hafa verið að selja klósettpappír til þess að geta tekið þátt í mótum með yngri landsliðunum vorum við komnir á eitt af stærstu sviðunum. Við vorum smá stjörnustjarfir fyrst þegar við mættum og kannski meira samherjarnir sem voru ekki vanir að vera í kringum þessar stóru stjörnur. Við stóðum okkur svo frá- bærlega og þetta var mikil lyftistöng fyrir íslenskan körfubolta. Þetta var eitthvað sem við gátum ekki látið okkur dreyma um framan af lands- liðsferlinum mínum. Það var líka frábært að sjá félaga manns, fjölskyldu og vini úr körfu- boltasamfélaginu mæta til Berlínar og Finnlands og taka þátt í þessu af lífi og sál með okkur,“ segir lands- liðsmaðurinn fyrrverandi stoltur. n „Ég styð frelsi eldri borgara t i l að ákvarða sjálf ir eigin getu og vi l ja t i l atvinnuþátttöku.” „Ég vi l valfrelsi og nýsköpun í heilbrigðis– og menntamálum.“ „Ég vi l styðja við atvinnulíf ið með lágum sköttum, minnka umsvif í rekstri hins opinbera og útvista verkefnum.“ „Það er atvinnulífsins að leiða vöxt á vinnumarkaði og skapa ný störf.“ NÁNARI UPPLÝSINGAR WWW.SIGTHRUDUR.IS PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í SUÐVESTURKJÖRDÆMI Í DAG FRÁ KL. 9 - 18 Helgin 25LAUGARDAGUR 12. júní 2021
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.