Fréttablaðið - 12.06.2021, Page 74
Hafnarstræti 1–3 > fjallkona.isfjallkonan.rvk fjallkonan
FJALLKONAN FAGNAR ÞÉR!
Nánar á fjallkona.is
BRJÁLÆÐISLEGA GÓÐUR
BRUNCH
LAUGARDAGA & SUNNUDAGA
11.30-14.30
NÝR OG SPENNANDI SEÐILL!
njall@frettalbadid.is
Opel hefur sent frá sér fyrstu mynd-
ir af nýjum Opel Astra, sem sýna þó
aðeins hluta bílsins. Þær sýna þó
að bíllinn mun fá svipað útlit og
nýr Mokka, með hinum áberandi
Vizor framenda. Einnig fær ný Astra
sama tvöfalda upplýsingaskjáinn
og Mokka, en hann samanstendur
af 10 tommu upplýsingaskjá og 12
tommu skjá í mælaborði. Engar
tækniupplýsingar eru fáanlegar enn
þá, en búast má við að bíllinn noti
sama EMP2 undirvagn og Peugeot
308. Þess vegna er líklegt að bíllinn
verði í boði sem rafbíll, tengiltvinn-
bíll og einnig með bensín- og dísil-
vélum. Bíllinn verður frumsýndur
síðsumars. ■
Fyrstu myndir af áttundu kynslóð
Opel Astra birtar á netinu
Vizor framendinn er orðinn áberandi hjá Opel en andlitslyfting Opel
Grandland, sem frumsýnd var á dögunum, fær sterkan svip af honum.
njall@frettalbadid.is
Næsti Renault Megane verður einn-
ig rafdrifinn og kallast sú útgáfa
E-Tech. Renault hefur sent frá sér
fyrstu myndir af bílnum í litlum
felubúningi og sést vel að bíllinn
verður meira í laginu eins og Captur.
Renault áætlar að frumsýna sjö nýja
raf bíla til og með 2025 og er þetta
fyrsti bíllinn í röðinni. Bíllinn bygg-
ir á CMF-EV undirvagninum frá
Renualt-Nissan sem einnig verður í
Nissan Ariya. Hann verður búinn 60
kWst rafhlöðu og með 215 hestafla
rafmótor, og drægið verður allt að
450 km. Renault segir að togið verði
300 Nm og að upptakið verði undir
átta sekúndum í hundraðið. Áætlað
er að framleiða útgáfu með meira
drægi. Rafhlaðan verður sú þynnsta
á markaðinum, eða aðeins 110 mm
á þykkt. ■
Renault með fyrstu myndir af
rafvæddum Megane E-Tech
Renault Megane E-Tech er líkur E-Vi-
sion tilraunabílnum eins og sjá má.
Kia hefur frumsýnt nýjan
Sportage sem fer á markað
í lok ársins. Bíllinn fær nýtt
útlit, ásamt fullkomnari
tæknibúnaði í innréttingu.
njall@frettalbadid.is
Sérstök Evrópuútgáfa verður kynnt
í september en bíllinn sem nú er
frumsýndur er alþjóðleg útgáfa
hans. Auðvelt er þó að sjá að bíllinn
líkist nokkuð nýja EV6 raf bílnum,
með sams konar C-laga dagljósum
og ákveðinni línu þar sem vélarhlíf
og grill mætast. Engar stærðartölur
hafa verið birtar enn þá, svo við
vitum ekki hvort hann er stærri
en fyrri kynslóð, þó það sé venju-
lega vaninn. Innréttingin er alveg
ný og með stórum, bogadregnum
skjá sem nær yfir miðjustokk bíls-
ins. Af myndinni að dæma er það
sami búnaður og í nýjum Hyundai
Tucson, með tveimur 10,25 tommu
skjáum.
Sérstök X-Line sportútgáfa verður
einnig kynnt í framhaldinu. Engar
tækniupplýsingar hafa heldur
komið fram, en nánast öruggt er að
sami vélbúnaður og í Tucson verði í
boði að langmestu leyti. ■
Kia frumsýnir fimmtu
kynslóð Sportage
Nýr Sportage verður fáanlegur tvílitur, en Evrópuútgáfa verður kynnt í september.
Nýr Kia Sportage ber
sterkan svip af nýja
Kia EV6 rafbílnum og
er tígursnefs-framend-
inn svokallaði mjög
áberandi ásamt C-laga
dagljósum.
Renault Megane E-
Tech verður svipaður
af stærð og Renault
Captur.
38 Bílar 12. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ