Fréttablaðið - 12.06.2021, Síða 82

Fréttablaðið - 12.06.2021, Síða 82
Sænski rithöfundurinn Camilla Läckberg er þekktust fyrir glæpasögur sínar og fetar nokkuð framandi slóðir í Storytel-hljóðbókinni Jökull, sem er alls engin morðgáta heldur ástarsaga fólks í ban- vænum heimsfaraldri þar sem nánd og snerting eru í raun stóru glæpirnir. Samstarf Camillu Läckberg og Storytel leiddi hana út fyrir þægindaramma rithöf-undarins þegar hún skrifaði hljóðbókina Jökull, eða Glaciär, sérstaklega fyrir veituna upp úr eigin kvikmyndahandriti. Sænski leikarinn og rithöfundur- inn Alexander Karim skrifaði hljóð- bókina með Camillu, en fer auk þess með annað aðalhlutverkið í bókinni og kvikmyndinni sem Baker Karim, bróðir hans, leikstýrir. „Þetta var ný upplifun fyrir mig og þarna byrjaði ég frekar seint á starfsævinni að vinna með öðru fólki. En mér fannst það æðislegt. Við unnum vel saman og sköp- unarkrafturinn milli okkar þriggja er algerlega frábær,“ segir Camilla. Hún segist þarna hafa farið í gegn- um lærdómsríkt ferli og hún hafi lært mikið um handritaskrif og kvikmyndagerð af þeim bræðrum. Camilla og Alexander kynntust við tökur á sænska sjónvarpsþætt- inum Stjärnorna på slottet, eða Stjörnurnar í kastalanum, fyrir nokkrum árum og „smullu saman“, eins og hún orðar það, þegar þau ræddu skapandi skrif fyrir sjónvarp og kvikmyndir. Jökullinn logar Camilla segir þau Alexander hafa fengið margar hugmyndir, en þegar heimsfaraldurinn skall á og þau horfðu á Stokkhólm tæmast, byrjaði Jökullinn að loga og þeim fannst þau verða að gera bíómynd. „Við vildum gera ástarsögu í þessum aðstæðum,“ heldur Camilla áfram og úr varð saga Önnu og Erics sem koma úr ólíkum áttum en hitt- ast og verða ástfangin á sóttvarna- hóteli þar sem öll snerting og sam- neyti er bannað. „Hugmyndin varð til þegar við horfðum í kringum okkur og sáum að við höfðum skyndilega verið svipt einhverju sem við höfum alltaf gengið að sem gefnu. Að geta snert aðrar manneskjur. Það er ekki fyrr en þetta er allt í einu tekið frá okkur sem við gerum okkur grein fyrir því hversu mikilvægt þetta er. Sagan fjallar í raun um þetta. Örvæntingarfulla þörf fólks fyrir að elska einhvern annan, finna nálægð og snertingu. Þannig að í raun snýst þetta ekki um faraldurinn heldur um mikilvægi ástarinnar. Ástin sigr- ar allt. Vonin er miklu mikilvægari en við gátum ímyndað okkur og það hefur áhrif að fá ekki að snerta og vera með þeim sem við elskum,“ segir Camilla, staðföst í trúnni á ástina. Glæpir og Covid Veirufaraldurinn er þarna bak- grunnur ástarsögu, en fyrir þig sem glæpasagnahöfund hlýtur þetta ástand ekki síður að vera freistandi efniviður fyrir slíkar bækur? „Já, ég er auðvitað alltaf með það í huga,“ segir Camilla og gengst við því að vera glæpa fíkill. „Ég er alltaf að lesa og horfa á eitthvað um sönn sakamál og nú þegar eru komin upp mál í Bandaríkjunum þar sem fólk hefur reynt að drepa maka sinn og kennir svo Covid um. Þannig að já, þetta opnar að sjálfsögðu á ýmsa möguleika.“ Camilla segir aðspurð að hana hafi ekkert munað um að stökkva frá krimmum yfir í ástarsögu. „Nei, fyrir mér er það ekkert svo framandi vegna þess að ég hef alltaf litið á mig sem sögumann frekar en glæpasagnahöfund. Það er ekki merkimiðinn sem ég hengi á sjálfa mig. Ég hef líka gert ýmislegt annað. Matreiðslubækur, barnabækur og Faye-bækurnar eru til dæmis svo- lítið öðruvísi en glæpasögurnar. Mér fannst þetta frábært tækifæri til þess að geta virkilega sökkt tönn- unum í dásamlega ástarsögu.“ Sterk glæpahneigð Þótt Camilla líti ekki sérstaklega á sig sem reyfarahöfund hneigðist hún ung til skáldaðra glæpa og hefur verið farsæl á glæpabrautinni og notið mikilla vinsælda víða um heim. Ekki síst fyrir Fjällbacka- bókaflokkinn sem kenndur er við æskuslóðir hennar í Svíþjóð, sem verða þar ítrekað vettvangur morða og annarra ódæðisverka. „Ég hef verið heltekin af glæpa- sögum alveg síðan í æsku og þetta byrjaði reyndar á bók sem ég fann uppi í bókahillu hjá pabba mínum. Það var Dauðinn á Níl eftir Agöthu Christie og þegar ég var sjö eða átta ára var ég þegar búin að lesa allt eftir hana. Ég elskaði þetta þannig Banvæn ást Hljóðbókin Jökull, eftir Ca- millu Läckberg og Alexander Karim, segir frá Önnu og Eric sem fella saman hugi við nánast vonlausar aðstæður í miðjum heimsfaraldri, sem hefur þegar fellt helming mannkyns. Hver snerting getur leitt til dauða og allur samgangur fólks getur skapað bráða lífshættu. Fólk úr efri lögum samfélags- ins hefur því flúið öngþveitið á lúxushóteli í Stokkhólmi. Anna hefur dvalið þar í tvo mánuði þegar Eric kemur og þrátt fyrir algert bann liggja leiðir þeirra saman og ástin kviknar. Á meðan veiran fer ham- förum um samfélagið og óöld ríkir utan hótelveggjanna tala Anna og Eric saman með tal- stöð á milli herbergja. Ástin sigrar allt en getur hún sigrað í heimi sem er að hruni kominn? Hljóðbókin byggir á sam- nefndri sænskri kvikmynd, Glaciär, sem var frumsýnd í apríl á þessu ári og er aðgengi- leg á efnisveitunni Viaplay. Camilla Läckberg skrifar handrit myndarinnar, sem hún og Alexander Karim lögðu síðan til grundvallar hljóð- bókinni, en bróðir Alexanders, Baker Karim, leikstýrir. Alexander er ekki síður þekktur sem leikari en rit- höfundur og fer sjálfur með hlutverk Erics í bæði bíó- myndinni og sænskri útgáfu hljóðbókarinnar. Leikkonan Elsa Engström leikur Önnu en hún er líklega þekktust hér sem Erika Berger í Millennium-þríleiknum. Halldóra Geirharðsdóttir og Hjörtur Jóhann Jónsson ljá Önnu og Eric raddir sínar í íslenskri útgáfu Jökuls, en hljóðbókin verður aðgengileg á Storytel á þriðjudaginn, samtímis á Íslandi, í Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Póllandi og Búlgaríu. Þórarinn Þórarinsson thorarinn @frettabladid.is að engilsaxneska hefðin yfirleitt hefur verið mér mikill innblástur.“ Norrænar rökkurstemningar Norrænn glæpaskáldskapur í sjón- varpi, kvikmyndum og bókum, stundum kenndur við Nordic Noir- bylgjuna, hefur notið mikilla og vaxandi vinsælda víða um lönd. Camilla hefur verið frek til fjörs- ins í þeirri útrás, en hefur hún ein- hverja kenningu um hvað það er við glæpasögur frá okkar almennt friðsæla heimshluta, sem höfði svo sterkt til alþjóðlegra lesenda? „Það er ómögulegt að segja en ég er með mína eigin kenningu og hluti af henni er að þetta hafi byrjað með Sjöwall og Wahlöö,“ segir Camilla og hlær þegar böndin berast að löndum hennar og óumdeildum brautryðjendum í skandinavískum krimmum með sögunum um lög- reglumanninn Martin Beck. „Þau mörkuðu stefnuna þegar þau tvinnuðu saman glæpasögur, samfélagsmál og pólitísk álitamál og lyftu þannig sakamálasögum á hærra plan. Margir hafi síðan viljað ná því,“ segir Camilla. „Nú ætla ég að fá lánað hjá sænsk- um kollega mínum, Lizu Marklund, sem ég heyrði einu sinni segja á fyr- irlestri að við fengjum ekki glæpa- sögur frá stríðshrjáðum löndum. Arnaldur er góður Vegna þess að fólkið þar er að upp- lifa hryllinginn allt í kringum sig og til þess að skapa sögur eins og þessar þá þarf að vera með auðan striga. Hún líkti Norðurlöndunum við þennan tóma striga. Það er frekar rólegt hérna þannig að við höfum svigrúm til þess að skapa þessar sögur.“ Í framhaldinu er vitaskuld óhjá- kvæmilegt að spyrja Camillu hvort hún hafi lesið eitthvað eftir íslenska krimmahöfunda og kannski eins og við mátti búast er hún vel að sér í Arnaldi Indriðasyni. „Ég ætla nú ekki að reyna að bera nafnið fram en hann er mest áberandi og ég hef lesið mikið af bókunum hans,“ segir Camilla og gerir síðan atlögu að nafninu með ágætis árangri. „Arnaldur. Hann er ljómandi góður höfundur. Ég á líka ættingja á Íslandi og hef eytt tíma þar, þannig að ég þekki frekar vel til á Íslandi og er alger- lega heilluð af því. Ég mun sennilega koma til Íslands í haust.“ Björt framtíð Hvað Covid varðar segir Camilla: „Ég er mjög bjartsýn. Ég er búin að fá fyrri sprautuna mína af tveimur og mamma er búin að fá sínar tvær. Hún kom að heimsækja mig og fjöl- skylduna um helgina í fyrsta skipti í eitt og hálft ár, þannig að samfélagið er að opnast aftur hægt og rólega.“ Camilla og Alexander skrifuðu Jökul sérstaklega fyrir Storytel og hún útilokar ekki að hún og bræð- urnir muni vinna meira með hljóð- bókaveitunni í framtíðinni. „Ég held að ánægjan og trúin á þetta verkefni sé gagnkvæm. Ég finn mikla spennu og gleði í kringum þetta verkefni þannig að ef þetta mun ganga jafn vel og við vonum þá er það vissulega möguleiki.“ Fyrri verk Camillu hafa gengið mjög vel sem hljóðbækur hjá Story- tel og ekki annað að sjá en bækur hennar falli vel að því formi. „Já, styrkur minn sem rithöfund- ar hefur alltaf legið í því að skrifa frekar einfaldan og aðgengilegan texta. Þetta er eitthvað sem bók- menntarýnar hafa látið fara í taug- arnar á sér, en lesendur og hlust- endur kunna vel við. Það skiptir mestu máli.“ n Í raun snýst þetta ekki um faraldurinn heldur um mikilvægi ástar- innar fyrir manneskj- una. Alexander Karim og Camilla eru byrjuð að huga að næstu mynd. Glæpsamleg ást og banvæn snerting LÍFIÐ 12. júní 2021 LAUGARDAGUR Sænska glæpadrottningin Camilla Läckberg heillaðist ung af bókum Agöthu Christie, sem leiddi hana út á glæpabrautina. MYNDIR/AÐSENDAR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.