Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.09.1979, Síða 3

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.09.1979, Síða 3
BLAÐ BSRB XXVIII. ARG. • SEPT. 1979 • 7. TOLUBL. Útgefandi: Bandalag starfsmanna ríkis og bœia. — Ritstjóri: Haraldur Steinþórsson. — Ritnefnd: Jón ívarsson, Óli Vestmann Einars- son, Sigrún Stefónsdóttir, Þorsteinn Óskarsson. — Afgreiðsla: Grettisgötu 89 — Sími 2 66 88. — Ritstjórnarfulltrúi: Guðni Björn 'Kjœrbo. Kóputeikning: Auglýsingastofan Gísli B. Björnsson. — Prentun: Alþýðuprentsmiðjan h.f. við Vitastíg. VAXTA- STEFNAN LEIÐIR TIL GJALDÞROTS Enn einu sinni hefur stjórnvöldum mistekist að hafa hemil á verðbólgunni, og ef að líkum lætur stefnir allt að því, að nýtt verðbólgumet sé framundan. Engin meginstefnubreyting hefur orðið í efnahagsmálum þó skipt hafi um ríkisstjórn. Ein höfuðmeinsemdin er, að allt er látið vaða á súðum í fjárfestingarmálum. Svo er reynt að leysa vandann með sífelldum bráðabirgðaráðstöfunum, án nokkurr- ar heildarstefnu eða ætlana fyrir framtíðina. Nýjasta dæmið um skottulækningar stjórnvalda eru vaxta- málin. Sú stefna að miða vexti við hækkun framfærsluvísitölu og byggingarvísitölu, án hliðarráðstafana jafnhliða til stöðvun- ar verðbólgunnar, hlýtur að leiða til gjaldþrots jafnt einstak- linga sem fyrirtækja innan örskamms tíma. Launafólk sem skuldar vegna íbúða, húsmuna, heimilistækja eða annars, stendur ekki undir 40% vöxtum, hvað þá enn hærri vaxtagreiðslum, sem við blasa, ef svo heldur fram sem horfir. Ríkisstjórnin sjálf leggur á nýja skatta til að greiða aukin vaxtaútgjöld ríkissjóðs, stöðugt gengisfall bjargar útflutnings- framleiðslunni í bili. En allur bagginn lendir að lokum á launa- fólki. Vafalaust er of mikil bjartsýni að búast við stöðvun verð- bólgunnar á næstunni, hvað þá minnkun hennar. En stjórnvöld verða án tafar að snúa við blaðinu og breyta til í vaxtamálum áður en almennt gjaldþrot skellur yfir. Kristján Thorlacius. ÁSGARÐUR 3

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.