Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.09.1979, Qupperneq 5

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.09.1979, Qupperneq 5
Samninganefnd BSRB svaraði, að hún teldi eðli- lega starfsaðferð, að ríkið gerði bandalaginu sem allra fyrst gagntilboð. 24. ágúst 1979 Samningamálin rædd í stjórn og samninganefnd BSRB. Tillaga um fundi í félögunum flutt af for- manni og varaformanni nefndarinnar. 14 manna nefnd kosin til að undirbúa næsta fund. 12. sept. 1979. Samþykkt tillaga um almenn fundahöld félag- anna um samningamálin og önnur tillaga, þar sem m. a. er lögð áhersla á nauðsyn þess, að ákvæðum laga um 2 ára samningstímabil verði breytt, þann- ig að það verði samningsatriði. Báðar þessar til- lögur eru birtar hér á eftir. Félögin halda fundi „Sameiginlegur fundur stjórnar og samninganefndar BSRB beinir því til aðildarfélaga bandalagsins, að þau haldi á næstunni fundi um samningamálin, þar sem kröfugerðin verði kynnt og fjallað um gerð nýrra kjarasamninga. Er þess vænst, að félög bæjarstarfs- manna utan Keykjavíkur hafi samráð við ríkisstarfsmenn á viðkomandi stöðum um sameiginlega fundi bæjar- starfsmanna og ríkisstarfsmanna.“ /■----------------------------------------------------------------------------—\ Krafa um vísifölubæfur, óbundið samningsfímabil og gildi nýs samnings frá 1. júlí s.l. „Sameiginlegur fundur stjórnar og samninga- nefndar BSRB skorar á ríkið og sveitarstjórnir að hefja sem allra fyrst viðræður til undirbún- ings næstu samningagerð. Að gefnu tilefni ítrekar fundurinn þá af- stöðu samtakanna, að afnám vísitölubóta komi ekki til greina, enda sýnir reynslan, að það læknar ekki verðbólgumeinið. Er því eindregið mótmælt þeim hugmyndum stjórnmálamanna, sem fram hafa komið, um afnám verðbóta á laun. Þá mótmælir fundurinn enn einu sinni þeirri kjaraskerðingu, sem orðin er á samningstíma- bilinu, vegna samningsrofa stjórnvalda, en nú vantar 10—15% upp á að kaup sé í samræmi við samninga. Stjórn og samninganefnd BSRB leggja áherslu á, að ákvæðum kjarasamningalaga um lögbundið 2ja ára samningstímabil verði nú þegar breytt, þannig að samningstímabilið verði framvegis samningsatriði. Barátta samtakanna á næstu mánuðum hlýt- ur m. a. að ráðast af viðbrögðum ríkisstjómar- innar við kröfu samtakanna um slíka laga- breytingu. Loks ályktar fundurinn að sett verði fram krafa um, að kjarabætur í næstu samningum gildi frá 1. júlí 1979.“ ASGARÐUR 5

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.