Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.09.1979, Page 21

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.09.1979, Page 21
NORRÆN BÆJARSTARFSMANNARAÐSTEFNA Dagana 27.—31. ágúst s.l. var norræn bæjarstarfsmannaráð- stefna haldin í Noresund í Nor- egi. Fulltrúar voru 45. 14 frá Sví- þjóð, 10 frá Danmörku, 9 frá Noregi, 8 frá Finnlandi og 4 frá íslandi. Þeir voru: Elsa Lilja Eyjólfsdóttir frá Keflav.k, sem var fulltrúi stjórnar BSRB, Ey- þór Fannberg frá Rvík, Agnar Árnason frá Akureyri og F.rna Eggertsdóttir úr Kópavogi. Ráðstefnan var sett 27. ágúst og var rætt um ráðningarfoim og verkfallsrétt fyrsta daginn. Annan daginn var rætt um sjálf- virkni hagræðingu og tölvu- tækni. Þennan dag var veður mjög gott og var ákveðið að flýta fyrirhugaðri ferð upp á Norefjell, sem er 1400 m hátt og mjög fallegt. Á þriðja degi var rætt um skyldur opinberra starfsmanria. Seinni h'luta dags var farið með rútu að skoða Hadeland gler- verksmiðjuna og í bakaleið var komið við í Ringerikesvslu. Var hópnum boðið í fundarsali sýslu- nefndar. Hélt sýslumaður töiu fyrir hópinn og bauð svo öllum til kaffidrykkju. Á fjórða degi var rætt um stefnumið samtaka norræntia starfsmanna og unnið í sam- starfshópum. Síðasta daginn var rætt um launamál frá sjónar- horni atvinnurekenda og laun- þega. Var ráðstefna þessi fróðleg og ánægjuleg í alla staði. fslending- ar og finnar hafa nokkra sér- stöðu á svona ráðstefnum, þar sem þeirra mál er ekki talað og vill ýmislegt fara forgörðum hjá þeim, þegar mikið tæknimál er notað. Finnar hafa leyst sín mál á þann veg að þeir hafa með sér túlka og kemst þá allt til skila hjá þeim. íélcigQfréllir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar Síðastliðið sumar tók St. Rv. upp þá nýbreytni, að bjóða fé- lögum 14. deildar, ellilífeyrisþeg- um, ásamt mökum sínum í dags- ferð um Borgarfjörð. Send voru boðsbréf til félaganna, og alls þágu um 70 manns boðið. La^ var upp frá Reykjavík að morgni 11. júlí með Akraborginni ti' Akraness. Þaðan var haldið með langferðabílum upp breiða byggð Borgarfjarðar til Munaðarness. Þar var snæddur hádegisverður, hlýtt á byggingar- og fram- kvæmdasögu staðarins og b-' staðir skoðaðir. Síðan var ekið um sveitir Borgarfjarðar, áð að Reykholti og við Skorradalsvatn, þar sem nestis var neytt í feg- ursta veðri. Heimleiðis var ekið um Dragann og fyrir Hvalfjörð. Þær góðu undirtektir, sem þessi tilraun hlaut, hljóta að örva félagið til að nýta sér þá reynslu, sem fékkst af þessari ferð og hvetja það til frekari dáða á þessu sviði. ASGARÐUR 21

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.