Fréttablaðið - 09.10.2021, Síða 26

Fréttablaðið - 09.10.2021, Síða 26
Það má ekki bugast yfir þeim verkefnum sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir, sem geta verið yfir- þyrmandi. Björg Þú þarft að gefa til baka líka, þú þarft að sýna að þú sért þátt- takandi í samfélag- inu. Þorsteinn Starfsmenn Marels hreyfðu sig sem jafngildir fjórum hringjum í kringum jörðina undanfarinn mánuð, með það að markmiði að safna fé fyrir verkefni Rauða krossins í Norður-Brasilíu. Marel og Rauði kross-inn hafa frá árinu 2019 unnið saman að samfélagsverk-efnum víða um heim. Í þeirri viðleitni stóð Marel fyrir átakinu Move the Globe meðal starfsfólks síns sem stóð frá 6. sept- ember til 4. október. Þá hreyfðu starfsmenn Marels um allan heim sig eins mikið og þeir mögulega gátu og ferðuðust þannig yfir 160 þúsund kílómetra, sem jafngildir fjórum hringjum í kringum jörðina. Um sjö þúsund manns starfa hjá Marel í meira en 30 löndum. Þorsteinn Kári Jónsson, forstöðu- maður sjálf bærni og samfélags- tengsla hjá Marel, segir fyrirtækið leggja mikla áherslu á sjálf bærni og samfélagslega ábyrgð í sínum rekstri og Move the Globe sé þáttur í því. Söfnuðu 37,2 milljónum Markmiðið var að safna fé fyrir verkefni Rauða krossins fyrir íbúa og fólk á flótta í norðurhluta Brasil- íu, en yfir 600 manns starfa fyrir Marel í landinu. Fyrir hvern hring í kringum jörðina lagði Marel til 50 þúsund evrur og 50 þúsund til við- bótar að átakinu loknu. Því söfnuð- ust 250 þúsund evrur, um 37,2 millj- ónir íslenskra króna. Meðal þess sem starfsmenn fyrirtækisins tóku sér fyrir hendur var sjósund við Íslandsstrendur, að hjóla í vinnuna, brimbretta- æfingar, göngutúrar með fjölskyld- unni og skokk á skrifstofunni. Til að mynda skoraði markaðsdeild fyrirtækisins hér á landi á mark- aðsdeildina í Kaupmannahöfn að halda hlaupabretti gangandi allan daginn, hlaupabretti var komið upp á báðum skrifstofum Marels og skiptust starfsmenn á að labba og hlaupa án þess að slökkva á brettinu í samfleytt sjö klukkutíma. Megum ekki bugast „Þetta var mjög gott framtak hjá Marel að samtvinna hreyfingu, lýðheilsu og ábyrgð,“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmda- Fóru fjóra hringi í kringum jörðina Hér var unnið í að koma vatni til íbúa í norðurhluta Brasilíu þar sem híbýli fólks eru ekki upp á marga fiska. MYND/B.MAST/CRC Ásgeir stundaði brimbretti. Eduardo hjólaði. Valdís gekk um fjöll og firnindi. Farandfólk í Brasilíu Vegna aukins fjölda farand- fólks til Brasilíu er aðstaða til móttöku þess löngu komin yfir hámarksgetu. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda á staðnum er nauðsynleg þjónusta eins og vatn og hreinlætismál enn áskorun. Alþjóðadeild Rauða krossins í Brasilíu styður við innflytjendur í norðurhluta Brasilíu, þar á meðal flótta- menn og fylgdarlaus börn og samfélögin sem taka á móti þeim, með því að uppfæra grunninnviði og bæta þannig hreinlætismál og aðgengi að öruggu og nægjanlegu vatni og annarri nauðsynlegri þjónustu. stjóri Rauða krossins. „Þetta er fal- legt samstarf og við erum þakklát því hvernig Marel nálgast sína sam- félagslegu ábyrgð með okkur.“ Rauði krossinn starfar um allan heim, segir Björg Kjartansdóttir, sviðsstjóri fjáröf lunar- og kynn- ingarsviðs Rauða krossins, enda fjölmennasta mannúðarhreyfing heims og samstarf við hana gefur fyrirtækjum tækifæri til að styðja við samfélög nánast alls staðar, líka á Íslandi. „Það má ekki bugast yfir þeim verkefnum sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir sem geta verið yfirþyrmandi,“ segir Björg. „Til- gangur Rauða krossins er að vernda líf og heilsu berskjaldaðra hópa og tryggja virðingu fyrir mannlegu lífi, í slíkum verkefnum skiptir allur stuðningur máli,“ bætir hún við. Hún segir að fyrirtæki á borð við Marel vilji styðja við verkefni sem Rauði krossinn stendur fyrir og fjár- magnið nýtist vel. Fjármagnið sem safnaðist með verkefninu Move the Globe hjá Marel mun sannarlega koma sér vel fyrir íbúa í norður- hluta Brasilíu. Mikil áhersla sé lögð á nákvæmt bókhald hjá Rauða krossinum, um hvernig fjármagnið nýtist. Gagnsæi og traust mikilvægt „Það er gagnsæið og traustið sem skiptir máli og að við sjáum að við séum að reyna að gera heiminn betri í dag en í gær, með framlagi frá Íslandi. Þörfin er mikil á heimsvísu en allt skiptir máli. Við erum með þetta glæsilega fyrirtæki Marel, sem er með skýra sýn á hvernig það vill vinna og tekur starfsfólkið með í mannúðarverkefni.“ Kröfur til fyrirtækja um að sýna samfélagslega ábyrgð aukast sífellt, frá hluthöfum, starfsfólki og þeim samfélögum þar sem þau starfa. Kristín segir mikinn feng í að fá fyr- irtæki til samstarfs. „Fyrirtækin eru með þekkingu, fjármuni og tíma starfsmanna, svo ýmsir möguleikar eru á samstarfi við Rauða krossinn til að gera heiminn betri í dag en hann var í gær,“ segir hún. „Við teljum nauðsynlegt að fyrir- tæki sem stundi alþjóðlega starf- semi séu með skýra sýn á það fyrir hvað þau standa,“ segir Þorsteinn. „Þú þarft að gefa til baka líka, þú þarft að sýna að þú sért þátttakandi í samfélaginu. Síðan ertu með sjálf- bærnimál, bæði innri málin á borð við f jölbreytileika og þátttöku starfsfólks og loftslagsmálin í okkar eigin rekstri. Áhrif okkar skipta okkur mjög miklu máli, hvaða áhrif við höfum á viðskiptavini okkar og þá sér í lagi hvernig við getum stuðlað að aukinni sjálf bærni og sjálf bærri þróun með starfsemi okkar. Það er okkar ábyrgð að fylgja eftir sýn okkar, sem er að umbylta því hvernig matvæli eru framleidd, gera það á sjálfbæran og hagkvæm- an máta. Þar sem við náum ekki að gera það með okkar vöruþróun eða sölu, getum við farið í samstarf við aðila sem eru með mannlega inn- viði til að vinna að okkar sýn,“ segir Þorsteinn. Erum með skýra stefnu Hann segir að ákvarðanir um hvaða verkefni Marel styrkir séu teknar af forstjóranum, lykilstjórnendum og stjórn fyrirtækisins. Verkefnið í Brasilíu hafi verið skýrt og „sam- ræmst okkar sýn og metnaði“ að sögn Þorsteins. „Við erum með skýra stefnu sem hjálpar okkur mikið að taka ákvarð- anir. Fjármunirnir sem við leggjum til eru umtalsverðir, til dæmis í Bras- ilíu 37 milljónir króna. Við settum 162 milljónir króna í samstarfsverk- efni með Rauða krossinum í Súdan. Marel hefur einnig styrkt vatns- verkefni Rauða krossins í Malaví um rúmlega 90 milljónir íslenskra króna. Við þurfum að vita að þetta sé að fara á réttan stað og sé gert með réttum hætti.“ Ekki sé f lókið fyrir fyrirtæki að leita til Rauða krossins eins og Marel hafi gert, enda búi starfsfólk hans yfir gríðarlegri þekkingu og reynslu. Lítið hefur farið fyrir samstarfs- verkefnum Marel og Rauða krossins fram að þessu og segir Þorsteinn skipta máli að nálgast málaflokk- inn af auðmýkt. „Við viljum með því fyrst og fremst hvetja fleiri fyrirtæki til að kanna þessa möguleika og átta sig á því að ástandið þarfnast okkar, íslenskra fyrirtækja, bæði hérna heima og erlendis.“ Björg segir að íslensk fyrirtæki vilji leggja sitt af mörkum en fresti stundum slíkri ákvörðun fram til næsta árs eða þarnæsta árs. „Það er frábært, komið til okkar á næsta ári, en af hverju ekki strax? Þessa ákvörðun er svo auðvelt að taka í dag. Viðmótskraftur Rauða kross- ins verður ekki til staðar nema við séum í samstarfi við fyrirtæki og við höfum sannarlega fundið fyrir því á tímum Covid að fyrirtæki eru að sýna aukinn vilja til að taka þátt,“ segir Björg að lokum. ■ Björg, Þorsteinn og Katrín. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Þorvarður Pálsson thorvardur @frettabladid.is 26 Helgin 9. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.