Fréttablaðið - 09.10.2021, Síða 27
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 9. október 2021
Lukka Pálsdóttir segist hafa áhyggjur af yngstu kynslóðinni varðandi heilsu hennar í framtíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ástandsskoðun til betri heilsu
Greenfit er heilsubætandi fyrirtæki sem hefur það að leiðarljósi að aðstoða fólk við að
bæta heilsuna á varanlegan hátt. Með ástandsskoðun er hægt að fyrirbyggja heilsuleysi. 2
sandragudrun@frettabladid.is
Dagurinn í dag, 9. október, er í
Bandaríkjunum tileinkaður Leifi
Eiríkssyni. En hann er eins og
þekkt er talinn vera fyrsti evrópski
maðurinn sem steig á land, ásamt
samferðafólki sínu, í Norður-Amer-
íku. Dagurinn fær þó ekki mikla
athygli þar í landi, en á svipuðum
tíma, eða annan mánudag í októ-
ber, halda Bandaríkjamenn upp á
Kólumbusardaginn, en þann dag er
opinber frídagur þar vestra.
Á tímabili vildu margir frekar
halda upp á dag Leifs Eiríkssonar
en Kólumbusardaginn, en fyrr-
nefndi dagurinn náði aldrei sömu
hylli og sá síðarnefndi af ýmsum
ástæðum. Margir Bandaríkjamenn
í dag vita hvorki af deginum, né til-
vist Íslendingsins Leifs Eiríkssonar.
Ekkert merkilegt
Í dag er þó minni ágreiningur
um það hvorum deginum beri
að fagna eða hvor mannanna átti
meiri þátt í innflutningi Evrópu-
búa til Bandaríkjanna. Ýmsir telja
að frekar ætti að fagna sérstökum
degi frumbyggja, enda skipti
ekki máli hvor kom fyrr, Leifur
Eiríksson eða Kristófer Kólumbus,
báðir uppgötvuðu stað sem þeir
höfðu aldrei komið á áður, en það
sé ekkert merkilegt í sjálfu sér því
milljónir manna hafi þegar búið
þar er þeir mættu á svæðið. n
Dagur Leifs
Degi Leifs Eiríkssonar er fagnað í
Vesturheimi í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY