Morgunblaðið - 01.06.2021, Page 1

Morgunblaðið - 01.06.2021, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1. J Ú N Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 127. tölublað . 109. árgangur . Friðjón Friðjónsson í 4. sæti Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 4. – 5. júní Frjálsara samfélag, betra Ísland Tökum forystu SUNGU KVEÐJU- SÖNGVA FYRIR UTAN KIRKJUNA HJARTAÐ SLÆR AUSTUR Á FJÖRÐUM SPILAMENNSKAN HEFUR VERIÐ Í RÉTTA ÁTT NÝR DISKUR FRÁ INGÓLFI STEINSSYNI 29 LEIKMAÐUR MAÍMÁNAÐAR 26TÍMAMÓT HJÁ HERÐI 4 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Hækkun fjárframlaga ríkisins til hjúkrunarheimila um einn milljarð í frumvarpi fjármálaráðherra til fjár- aukalaga á Alþingi er ánægjuleg en dugir þó ekki til í þennan fjársvelta málaflokk að sögn Gísla Páls Páls- sonar, formanns Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. „Það má segja að þetta sé lítill plástur á stórt sár. Að sjálfsögðu fögnum við alltaf auknum framlögum en það hefði mátt vera meira,“ segir hann. Vænta þess að fá meira Í frumvarpinu eru útgjöld ríkis- sjóðs aukin um 14,6 milljarða og hall- inn eykst um rúma 8 milljarða. Að stærstum hluta er um að ræða út- gjaldatillögur vegna aðgerða til að mæta samfélagslegum og efnahags- legum afleiðingum kórónuveirunnar en einnig er lagt til eins milljarðs kr. tímabundið framlag til hækkunar á daggjöldum hjúkrunarheimila vegna rekstrarvanda þeirra. Gísli Páll minnir á að stjórnvöld eru nýbúin að fá óháða úttekt á fjárþörf heimilanna sem þurfi um 2,7 milljarða til að ná endum saman. „Við væntum því þess að fá meira á þessu ári eða í versta falli í byrjun næsta árs,“ segir hann. „Plástur á stórt sár“ - Segir framlag til hjúkrunarheimila jákvætt en dugi ekki MHalli eykst »6 „Þetta gekk þokkalega, en frekar hægt. Það er margt nýtt fólk í þjálfun á vegum Öryggismiðstöðvarinnar. Það eru verk- takar sem eru að vinna fyrir heilsugæsluna og okkur.“ Þetta segir Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavík- urflugvelli, um gang landamæraeftirlits á vellinum. Von er á yfir 2.000 farþegum í gegnum Leifsstöð í dag og fjölgar þeim töluvert frá í gær þegar rúmlega 800 manns fóru í gegnum flugstöðina. Hann segir óteljandi margar útgáfur PCR- vottorða frá Evrópu tefja verulega fyrir. »4 Morgunblaðið/Eggert Fjölbreytt PCR-vottorð tefja afgreiðslu á Keflavíkurflugvelli „Við höfum krafist þess að Danir skýri undanbragðalaust hvort það hafi verið fylgst með íslenskum hagsmunum, þar með talið íslensk- um stjórnmálamönnum, embættis- mönnum, stofnunum, fyrirtækjum eða einstaklingum hér á landi,“ seg- ir Guðlaugur Þór Þórðarson, utan- ríkis- og þróunarmálaráðherra, um fregnir þess efnis að leyniþjónusta danska hersins, FE, hafi aðstoðað bandarísku þjóðaröryggisstofnun- ina NSA við hleranir á æðstu ráða- mönnum í Þýskalandi, Svíþjóð, Nor- egi og Frakklandi. Danska ríkis- útvarpið, DR, greindi frá sam- starfi FE og NSA á sunnudags- kvöldið. Sam- kvæmt svari fréttamanna DR við fyrirspurn Morgunblaðsins hafði ekki fundist neitt um Ísland í þeim gögnum sem þá hafði verið farið yfir. Það útilokaði þó ekki að njósnað hefði verið um Ísland. »13 Spurt hvort fylgst hafi verið með íslenskum hagsmunum Guðlaugur Þór Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.