Morgunblaðið - 01.06.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2021
ÚTSKRIFTARGJÖF
Með Óskaskríni gefurðu upplifanir í stað hluta og það sem meira er,
þú gefur viðtakandanum færi á að velja sína uppáhalds upplifun
úr fjölda freistandi möguleika sem leynast í hverju boxi.
Óskaskrínin eru á mismunandi verði og höfða til fjölbreytilegs
smekks og ólíkra áhugasviða viðtakenda.
UPPLIFUN ÍGEFÐU
577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
Geir Ágústsson, „sjálfkrýndursérfræðingur um samfélags-
mál,“ skrifar í sínum pistli:
- - -
Ég hef lesið ým-islegt um
styttingu vinnuvik-
unnar, t.d. hjá
verksmiðjum, hug-
búnaðarhúsum og
víðar. Reynslan er
almennt góð. Fólk
einbeitir sér betur þegar það þarf
ekki að einbeita sér eins lengi.
Skilvirkni eykst. Tímasóun
minnkar.
- - -
En gæti nú ekki verið að ásumum vinnustöðum leiði
stytting vinnuvikunnar einfald-
lega til lengri biðraða?
- - -
Víða þar sem nú þegar eruflöskuhálsar, svo sem í af-
greiðslu Sýslumannsins í Reykja-
vík eða skurðstofum heilbrigðis-
stofnana, verða einfaldlega til
enn stærri flöskuhálsar þegar
starfsfólkið vinnur styttri vinnu-
daga.
- - -
Allt þetta tal um styttinguvinnuvikunnar virðist svo
vera drifið af hagsmuna-
samtökum opinberra starfsmanna
sem í sjálfu sér er grunsamlegt.
- - -
Sömu laun fyrir minni vinnu?
- - -
Já, vissulega, en því bætt við aðskilvirkni aukist og vinnu-
gleði!
- - -
En hvað með skjólstæðingana?Skítt með þá, þeir hafa ekk-
ert val.
- - -
Og kannski það sé kjarni máls-ins.“
Geir Ágústsson
Hin hliðin?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Mannanafnanefnd hafnaði ekki einu
nafni í síðustu viku þegar hún kvað
upp úrskurði í þeim málum sem lágu
fyrir henni. Alls voru sjö ný nöfn sam-
þykkt, þar af fimm eiginnöfn sem
bætt hefur verið á mannanafnaskrá.
Karlar geta því borið nafnið Gosi sem
eiginnafn, en einnig nöfnin Haron og
Martel, enda voru þessi nöfn talin í
fullu samræmi við lög.
Gosi er nafn sem margir kannast við
úr ævintýrinu um strákinn með nefið
sem stækkaði þegar hann laug en orð-
ið getur einnig þýtt galgopi eða verið
dregið af nafnorðinu eldgos. Kven-
kynsnafnið Egilína var svo samþykkt
líka sem eiginnafn en nafnið er dregið
af karlmannsnafninu Egill. Nafnið El-
ísabet verður hægt að rita sem Eliza-
beth, líkt og drottning Bretlands ritar
sitt nafn, þrátt fyrir að það sé ekki í
samræmi við íslenska stafsetningu. Í
rökstuðningi nefndarinnar kom fram
að þessi ritháttur yrði að vera sam-
þykktur þar sem hefð hefur skapast
um nafnið, en í dag bera 16 íslenskar
konur nafnið Elizabeth.
Föðurkenningin Thorsdóttir var
samþykkt sem kenning við föður að
nafni Tornike. Nú mega bæði konur
og karlar bera nafnið Krossá sem
millinafn, en ekki sem ættarnafn
enda óheimilt að búa til ný ættarnöfn
á Íslandi. thorab@mbl.is
Gosi og Egilína meðal nýrra nafna
- Engu nafni hafnað - Fimm ný eig-
innöfn - Krossá leyft sem millinafn
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Nöfn Gosi, hér í uppfærslu Borgar-
leikhússins, er nafn sem margir
kannast við úr samnefndu ævintýri.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Auðvitað vonumst við til þess að
þetta muni halda nokkuð vel. Það er
búið að bólusetja gríðarlega marga.
Nú fer virkilega að reyna á þetta
hjarðónæmi sem við höfum verið að
tala um, sjá hvernig það mun
vernda yngri hópana,“ sagði Þór-
ólfur Guðnason sóttvarnalæknir við
mbl.is í gær en hvorki greindist
kórónuveirusmit innanlands á
sunnudag né við landamærin.
Rúmlega 90.000 manns eru nú
fullbólusettir gegn Covid-19 og tæp-
lega 80.000 manns hálfbólusettir,
þ.e. hafa fengið einn skammt af
bóluefni og eiga eftir að fá annan.
Aðspurður sagði Þórólfur að hjarð-
ónæmi næðist ekki við einhverja
sérstaka prósentu bólusettra.
„Hjarðónæmi er þessi áhrif sem
bólusetningin hefur á verndun hjá
óbólusettum. Ég vonast til þess að
hjarðónæmið muni hjálpa okkur
verulega núna,“ sagði Þórólfur.
3.000 sýni tekin en engin smit
Þrátt fyrir að engin smit hefðu
greinst á sunnudag voru tæplega
3.000 sýni tekin. Dregið verður í
handahófskennda bólusetningu á
höfuðborgarsvæðinu í dag en slík
bólusetning er hafin víða á lands-
byggðinni. Í Reykjavík verða lík-
lega árgangar 1975 til 2005 í pott-
inum.
Í gær voru 39 manns í einangrun
með Covid-19. 232 voru í sóttkví og
1.576 í skimunarsóttkví. Fjórtán
daga nýgengi innanlandssmita var í
gær 7,9 en nýgengi landamæra-
smita 2,2. Tveir lágu á sjúkrahúsi
með Covid-19.
Fer að reyna á
hjarðónæmið
- Engin smit greindust á sunnudag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pottur Ragnheiður Ósk hjá Heilsu-
gæslunni með pottinn sem verður
dregið úr í dag fyrir bólusetningar.