Morgunblaðið - 01.06.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Fyrir sjö árum var kunngjört á vef
Landhelgisgæslunnar að nýr litur,
rauður/rauðgulur, hefði verið valinn
á björgunarþyrlur hennar. Þessi lit-
ur varð fyrir valinu því talið var að
þyrlurnar sæjust betur þannig, t.d.
af fólki í neyð.
Í dag hefur Landhelgisgæslan yf-
ir að ráða þremur þyrlum, sem allar
eru í íslensku fánalitunum, bláhvít-
ar. Þær eru af gerðinni Airbus Heli-
copters.
Eftirfarandi frétt birtist á vef
Gæslunnar föstudaginn 17. október
2014: „Þyrla Landhelgisgæslunnar
TF-GNA lenti í Reykjavík í gær-
kvöldi eftir langa fjarveru en þyrlan
var staðsett í Noregi þar sem hún
fór m.a. í umfangsmikla skoðun og
var síðan málið í nýjum lit þyrlna
Landhelgisgæslunnar. Eru nú tvær
þyrlur Landhelgisgæslunnar sem
bera þann lit, TF-GNA og TF-
SYN.“
Nýjar þyrlur og lakkið gott
Hvers vegna var hætt að mála
þyrlur Gæslunnar rauðar? Þeirri
spurningu svarar Ásgeir Erlends-
son upplýsingafulltrúi:
„Leiguþyrlurnar þrjár, TF-EIR,
TF-GRO og TF-GNA, komu til
landsins í þeim lit sem þær voru í
fyrir. Vélarnar eru nýlegar og
ástandið á lakkinu afar gott. Mikill
kostnaður fylgir því að mála þyrlur
og ekki þótti réttlætanlegt að verja
fjármunum í að breyta um lit fyrir
þann takmarkaða tíma sem samn-
ingur þessara þriggja leiguvéla
kveður á um. Kominn var tími á
málningu eldri vélanna á sínum tíma
og þá var jafnframt horft til lengri
leigutíma en nú. Engin ákvörðun
hefur verið tekin um hvort þyrlur
Landhelgisgæslunnar verði rauðar/
rauðgular eða í fánalitum Íslands í
framtíðinni.“
Landhelgisgæslan leigir þyrl-
urnar þrjár af norska fyrirtækinu
Axel Ugland Holding. Leigusamn-
ingarnir gilda fyrir TF-GRO og TF-
GNA til 28. febrúar 2025 en til 30.
apríl 2026 fyrir TF-EIR.
Landhelgisgæslan hefur um ára-
tugaskeið notast við flugvélar og
þyrlur við löggæslu, eftirlit, leit og
björgun auk annarra verkefna. 10.
desember 1955 eignaðist Landhelg-
isgæslan sína fyrstu flugvél og er al-
mennt miðað við þá dagsetningu
sem upphaf flugrekstrar stofnunar-
innar. Þetta var flugbátur af gerð-
inni PBY-6A Catalina með einkenn-
isstafina TF-RAN.
Fyrsta þyrlan kom 1965
Hinn 30. apríl 1965 urðu þáttaskil
í starfsemi Landhelgisgæslunnar
þegar hún tók í notkun sína fyrstu
þyrlu. Hún var af gerðinni Bell 47j
og var keypt til landsins í samvinnu
við Slysavarnafélag Íslands. Árið
1972 eignaðist Landhelgisgæslan
svo sína fyrstu eiginlegu björg-
unarþyrlu, TF-GNA. Hún var af
tegundinni Sikorsky S-62, sérstak-
lega hönnuð til gæslu yfir sjó og gat
borið tíu farþega eða sex menn í
sjúkrakörfum. Þá var þyrlan búin
björgunarspili sem gat híft tvo
menn í senn og auk þess með flot-
holt til að lenda á sjó eða í djúpum
snjó. 1985 kom hingað til lands
Dauphin II-þyrla sem fékk einkenn-
isstafina TF-SIF. Þessi þyrla var í
þjónustu stofnunarinnar í rúma tvo
áratugi eða allt þar til hún lenti í
sjónum við Straumsvík sumarið
2007.
Árið 1995 urðu svo enn ein þátta-
skilin í flugrekstrinum þegar Land-
helgisgæslan keypti öfluga björg-
unarþyrlu af gerðinni Aerospatiale
Super Puma AS-332L1. Þessi þyrla,
sem fékk einkennisstafina TF-LIF,
var bæði stærri og öflugri en þær
þyrlur sem Gæslan hafði áður haft
yfir að ráða og búin tækjum til leitar
og björgunar við erfiðari aðstæður
en hinar þyrlurnar réðu við.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rauðar/bláhvítar Vinstri myndin er tekin árið 2015 og sýnir TF-SYN í rauðum búningi en hægri myndin er tekin árið 2020 og sýnir TF-GRO bláhvíta. Bið verður á því að rauði liturinn sjáist á ný.
Bið á því að þyrlurnar verði rauðar
- Allar þrjár þyrlur Landhelgisgæslunnar eru bláhvítar - Kostnaðarsamt að mála þyrlurnar rauðar
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
NÚ FÁST BOSCH
BÍLAVARAHLUTIR HJÁ KEMI
TUNGUHÁLSI 10
Með 105 milljóna króna styrk frá fé-
lagsmálaráðuneytinu verður
Reykjadal gert kleift að taka á móti
500 einstaklingum í sumardvöl og
verða þannig við ósk 90% þeirra sem
sóttu um.
Reykjadalur býður upp á orlofs-
þjónustu fyrir fötluð og lömuð börn
og ungmenni, en um er að ræða
sumarverkefni á vegum Styrktar-
félags lamaðra og fatlaðra. Styrk-
urinn kemur ekki aðeins til með að
hleypa fleirum að heldur einnig að
lengja dvalartíma hjá mörgum.
Síðustu ár hafa verið starfræktar
sumarbúðir Reykjadals í Mosfells-
dal en nú bætast við sumarnám-
skeið, ævintýrabúðir, sumarfrí fyrir
fullorðið fatlað fólk og sumarfrí fjöl-
skyldunnar á Vík og á Húsavík.
Covid-19 hefur reynt mikið á þær
fjölskyldur sem Styrktarfélagið
heldur utan um og því kærkominn
styrkur sem gerir Reykjadal kleift
að gera sumarstarfið fyrir fötluð
börn og ungmenni fjölbreyttara og
metnaðarfyllra en áður, að sögn
Margrétar Völu Marteinsson, for-
stöðukonu Reykjadals.
thorab@mbl.is
Sumarstarf. Frá hesthúsi Black beach horse riding tours, þar sem aðilar að
styrktarsamningi um sumarbúðir Reykjadals komu saman nýverið.
105 milljónir í sum-
arstarf Reykjadals
- Hægt að taka á móti 500 í sumardvöl