Morgunblaðið - 01.06.2021, Side 12

Morgunblaðið - 01.06.2021, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2021 ER PLANIÐ SKÍTUGT? Fáðu tilboð í s: 577 5757 GÖTUSÓPUN ÞVOTTUR MÁLUN www.gamafelagid.is 1. júní 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.68 Sterlingspund 170.83 Kanadadalur 99.6 Dönsk króna 19.7 Norsk króna 14.395 Sænsk króna 14.471 Svissn. franki 133.67 Japanskt jen 1.0964 SDR 173.93 Evra 146.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.6107 Hrávöruverð Gull 1892.45 ($/únsa) Ál 2404.5 ($/tonn) LME Hráolía 69.69 ($/fatið) Brent « Tekjur Síldar- vinnslunnar á fyrsta ársfjórð- ungi námu 6,7 milljörðum króna sé miðað við meðalgengi doll- ars á fjórð- ungnum (128,05). Tekjur fyrir- tækisins á sama fjórðungi í fyrra námu 3,7 milljörðum. Hagnaður nam 2,7 milljörðum, samanborið við tæp- lega milljarðs tap á sama fjórðungi fyrra árs. Viðsnúninginn má fyrst og síðast þakka loðnuvertíð en engin slík var í fyrra. Í lok marsmánaðar voru eignir Síldarvinnslunnar 77,2 milljarðar króna (miðað við gengi dollars í lok fjórðungsins, 126,31) og skuldir fé- lagsins 32,3 milljarðar. Eigið fé þess er 44,9 milljarðar og eiginfjárhlut- fallið 58%. Er þetta fyrsta ársfjórð- ungsuppgjör Síldarvinnslunnar sem birt er eftir að félagið var skráð á markað á fimmtudag í síðustu viku. Í gær nam velta með bréf félagsins 161,8 milljónum króna og hækkaði gengi þeirra um 0,3%. Markaðsvirði félagsins í Kauphöll nemur nú 110,5 milljörðum króna. Síldarvinnslan hagnast um 2,7 milljarða króna Útgerð Síld- arvinnslan. STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is „Helstu tíðindin í nýjum þjóðhags- reikningum eru þau að okkar mati að þjóðarútgjöldin, þ.e. einka- og samneysla og fjárfesting, eru tekin að aukast á ný. Þetta er í fyrsta sinn sem þau gera það frá því að faraldurinn hófst.“ Þetta seg- ir Gústaf Stein- grímsson, hag- fræðingur hjá Landsbankanum, en í gær birti Hagstofan þjóð- hagsreikninga fyrir fyrsta fjórð- ung ársins. Þar kemur fram að landsframleiðsla hafi dregist saman um 1,7% á fyrsta fjórðungi ársins, samanborið við sama fjórðung síðasta árs. „Það er því áframhaldandi sam- dráttur í útflutningi sem dregur landsframleiðsluna niður en aukin þjóðarútgjöld eru að okkar mati skýrt merki um að við séum á réttri leið.“ Bendir Gústaf á að þótt sam- dráttur hafi mælst á fyrsta fjórð- ungi ársins geri Landsbankinn ráð fyrir því að hagvöxtur á yfirstand- andi ári muni nema 4,9%. Kraftar leysast úr læðingi „Við gerum ráð fyrir mjög kröft- ugum bata á seinni árshelmingi og einna helst vegna mikils vaxtar í út- flutningi sem við spáum að verði þegar erlendir ferðamenn fara að streyma til landsins. Við gerum ráð fyrir að 800 þúsund ferðamenn komi til landsins á þessu ári. En það er ekki aðeins fjöldinn sem skiptir máli í því sambandi því við gerum einnig ráð fyrir aukinni dvalarlengd sem eykur útflutningsvöxtinn og þar með hagvöxt. Eftir að farald- urinn hófst hefur dvalarlengdin aukist og við gerum ráð fyrir að svo verði áfram á næsta ári. Sú for- senda hefur talsverð áhrif ein og sér.“ Í hagsjá sem Landsbankinn birti í gær kemur fram að einkaneysla hafi aukist á síðasta fjórðungi og að það sé í fyrsta sinn sem það gerist frá því að kórónuveiran setti allt úr skorðum. Bendir bankinn á að neysluþróun út frá kortaveltu sýni að hún hafi dregist saman á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Hins veg- ar hafi mikill viðsnúningur átt sér stað í mars og það skýri 0,8% aukn- ingu einkaneyslu á fjórðungnum. „Síðan kom mikil neysluaukning í mars en þá jókst kortaveltan um 20% milli ára.“ Bendir Gústaf á að þessi aukning hafi áfram birst í tölum aprílmán- aðar þegar vöxturinn mældist 25% frá sama mánuði í fyrra. „Þetta gefur okkur ástæðu til þess að ætla að við séum að fá kröftugan annan fjórðung ársins og það styður spá okkar um kröftugan hagvöxt á árinu í heild.“ Minni samdráttur Útflutningur dróst saman um 20% miðað við sama fjórðung fyrra árs samkvæmt þjóðhagsreikningun- um. Er samdrátturinn minni en á fjórðungunum á undan. Samdrátt- inn má sem fyrr rekja til samdrátt- ar í þjónustuútflutningi sem aftur byggist á hruni ferðaþjónustunnar. Dróst hann saman um 52% á fjórð- ungnum. Vöruútflutningur jókst hins vegar um 4,6% og skýrist hann af auknum útflutningi sjávarafurða og annars konar útflutningi en stór- iðju en á því sviði varð samdráttur milli ára. Innflutningur dróst saman um 11,3% á fjórðungnum og tengist helst samdrætti í þjónustuinnflutn- ingi og tengist hann helst hruni í ferðalögum Íslendinga erlendis. Hins vegar varð einnig samdráttur í vöruinnflutningi þótt hann mælist nú aðeins 1,5%, sem er mun minni samdráttur en verið hefur á fjórð- ungunum á undan. Þjóðarútgjöldin tekin að vaxa á ný eftir nokkurt hlé 2% 1% 0% -1% -2% -3% -4% -5% -6% -7% 1. ársfj. 2. ársfj. 3. ársfj. 4. áársfj. 1. ársfj. 2020 2021 Heimild: Hagstofa Íslands Hlutdeild einstaka liða í hagvexti Magnbreyting frá sama fjórðungi fyrra árs Fjármunamyndun Birgðabreytingar Einkaneysla Utanríkisviðskipti Samneysla - Landsbankinn spáir 4,9% hagvexti í ár - Mikil neysluaukning í marsmánuði Gústaf Steingrímsson Tekjur pítsukeðjunnar Pizzunnar á síðasta ári námu rúmum einum millj- arði króna. Hákon Atli Bjarkason, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, seg- ir í samtali við Morgunblaðið að keðj- an hafi verið í miklum uppbygging- arfasa og margir nýir staðir hafi bæst við síðustu misseri. Rekur níu veitingastaði Allt í allt rekur Pizzan níu veitinga- staði. Fyrsti staðurinn var opnaður í Smiðsbúð í Garðabæ árið 1998. Hon- um hefur nú verið lokað. Í kjölfarið fylgdi staður á Strandgötu í Hafnar- firði árið 2007 og árið 2009 bættust við staðir á Reykjavíkurvegi í Hafnar- firði, í Núpalind í Kópavogi og Hvera- fold í Reykjavík. Árið 2019 var opnað í Fellsmúla og á Hringbraut í Reykja- vík og loks var opnaður staður í Lóu- hólum í Breiðholti og á Garðatorgi í Garðabæ árið 2020. Níundi staðurinn var svo opnaður á Glerártorgi á Ak- ureyri fyrr á þessu ári. Góðar viðtökur á Akureyri Aðspurður segir Hákon að nýju staðirnir hafi hlotið góðar viðtökur. Hann segir að kórónuveiru- faraldurinn hafi ekki gert fyrirtækinu neina skráveifu að heitið geti enda hafi fólk verið duglegt að panta mat í faraldrinum. Spurður að því hvort fleiri staðir séu á teikniborðinu, segir Hákon að allt sé í skoðun í þeim efn- um ef góðar staðsetningar bjóðist. tobj@mbl.is Skjáskot/ja.is Flatbaka Veitingastaður Pizzunnar í Núpalind í Kópavogi. Tekjur Pizzunnar yfir einn milljarð - Faraldurinn gerði ekki skráveifu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.