Morgunblaðið - 01.06.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 01.06.2021, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2021 Sjálfstæðismenn um land allt halda nú prófkjör fyrir al- þingiskosningar í haust. Ólíkt flestum öðrum flokkum er flokksmönnum gef- inn kostur á að hafa áhrif á uppröðun á lista. Margt karla og kvenna er í boði og mikilvægt að vel tak- ist til um fram- kvæmdina. Vel hefur tekist til í Suður- kjördæmi og Norðaustur- kjördæmi. Á næstu þremur vikum verða prófkjör í hinum kjördæmunum. Óhik- að má segja að fáir stjórnmálaflokkar, ef nokkur, búi yfir sam- bærilegu mannvali og Sjálfstæðisflokk- urinn. Á þeim bæ eru ekki stunduð ábyrgðarlaus yfirboð og upp- hlaupspólitík. Almennt má segja að fólk sé ekki sér- staklega pólitískt. Það vill sem mestan frið fyr- ir ágengni stjórnmálanna, en gerir þó kröfur. Allir vilja lifa í sátt við menn og málefni, þótt okkur greini á um margt. Það er eðlilegt. Við blasir að nútímasamfélag þróast hraðbyri og sósíalisminn er ekki valkostur nú frekar en áð- ur, hann er mein. Ég vil hvetja alla sem vettlingi geta valdið til þess að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Þannig gefum við flokknum rödd í höfuðborginni og styrkjum stöðu hans í komandi kosningum. Eftir Brynjar Níelsson » Við blasir að nútíma- samfélag þróast hraðbyri og sósíalisminn er ekki valkostur nú frekar en áður, hann er mein. Brynjar Níelsson Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þátttaka er nauðsynleg – þéttum raðirnar Stutta svarið við þessari spurn- ingu er já – því miður. Skemmst er að minnast nýlegra frétta um furðulega óráðsíu Reykjavík- urborgar í kaupum á raforku án útboðs með tuga milljóna um- framgreiðslum, framúrkeyrslu í framkvæmdum við jarðgerð- arstöð Sorpu upp á 1,5 milljarða og fjölmargt annað mætti nefna, eins og braggamálið og stráin í Nauthólsvík. Öll þessi afglöp kosta skattgreiðendur stórfé sem nýta mætti til annarra þarfari verkefna. Þótt utanumhald fjármála hjá Reykjavík- urborg sé hræðilegt í einu orði sagt, þá er rík- issjóður ekki alsaklaus heldur. Þar – eins og hjá mörgum öðrum opinberum aðilum sem sýsla með fjármuni annarra manna en sjálfra sín – gætir allt of oft óráðsíu, kæruleysis og til- finningaleysis fyrir því hvernig best megi nýta þá takmörkuðu skattpeninga sem stjórnvöld- um ríkis og sveitarfélaga er trúað fyrir af skattgreiðendum. Við eigum því skýlausa kröfu til þess að þeim peningum sé ráðstafað á sem hagkvæmastan hátt – að við öll fáum sem mest fyrir peninginn. Rétt eins og hver einasta fjölskylda gerir í sínum heimilisrekstri, að leita eftir hagstæðustu tilboðum og mestu gæð- unum í verslunum þegar keypt er inn til heim- ilisins. Með því að nýta peningana betur og fá meira fyrir minna skapast líka svigrúm til áframhaldandi skattalækkana. Nú eru í gangi gríðarlegar framkvæmdir í samgöngumálum, ekki síst í nágrenni höf- uðborgarinnar. Ýmsar þeirra eru verkefni sem ég barðist fyrir að kæmu til framkvæmda þeg- ar ég gegndi embætti samgönguráðherra árið 2017. En það verður að segjast alveg eins og er að mér rennur til rifja fyrirhyggjuleysið sem blasir við í ýmsum af þessum brýnu verk- efnum. Það er augljóst að hægt hefði verið að nýta peningana miklu betur en gert er með því að sýna skynsemi, hagsýni, aðhald og fyr- irhyggju. Bútasaumur Nefnd skulu nokkur dæmi um það sem ég vil kalla bútasaum í samgöngumálum, þar sem verið er að spara eyrinn en kasta krónunni sem þykir ekki góð fjársýsla. Nú er t.a.m. í gangi löngu tímabær tvöföldun Suðurlandsvegar á milli Hveragerðis og Selfoss. Hún gengur hægt, en er mjög aðkallandi til að greiða fyrir umferð, auka umferðaröryggi og fækka slys- um, sem hafa verið allt of algeng á þessum kafla. En það sem þarna er í gangi kalla ég bútasaum. Þarna er verið að tjalda til fárra nátta með því að leggja 2+1-veg að mestu, þegar augljóst er að byggja þarf 2+2 þarna innan fárra ára. Tvöföldun í báðar áttir hefði verið rétta lausnin, ásamt viðeigandi mislægum gatnamót- um í stað hringtorga á þessum kafla. Það var hugmynd mín og tillaga árið 2017 þegar ég gegndi embætti samgöngu- og sveit- arstjórnarráðherra. Það segja mér verktakar og aðrir sérfræðingar sem við þessi verkefni glíma að a.m.k. 20% kostnaðar hefði sparast við 3. áfanga með því að bjóða út í einu lagi 2. og 3. áfanga Suðurlandsvegar. Samlegðaráhrif framkvæmdanna hefðu leitt til minni tilkostn- aðar og þar með lægra verðs, skattgreiðendum og vegfarendum til hagsbóta. Þessi fram- kvæmd er prýðilegt dæmi um að skynsamleg- ast hefði verið að hugsa stærra, gera meira og gera betur. Bjóða hefði átt út í alútboði áð- urnefndan vegarkafla ásamt brú yfir Ölfusá í einu lagi sem leitt hefði til mun meiri hag- kvæmni og miklu minni þarfar fyrir gjaldtöku á Ölfusárbrú en ella. Óráðsía Því miður má finna mörg minni dæmi um óráðsíuna í þessum bransa. Tökum eitt nýlegt: Hið ágæta fyrirtæki Loftorka smíðaði mót fyr- ir göng undir Vesturlandsveg sem ætluð eru til að koma gangandi umferð, og eflaust hjólandi og ríðandi líka, undir þjóðveginn hættulaust. Það var til fyrirmyndar hvernig að verkinu var staðið. Nú er verið að byggja sams konar und- irgöng í Garðabæ. Eru þá ekki notuð sömu mótin og notuð voru á Vesturlandsveginum með prýðilegum árangri? Nei. Það var ekki hægt. Nú, hvers vegna ekki? Göngin í Garða- bæ áttu að vera aðeins breiðari en hin! Vegna þessara sentímetra var ekki hægt að nota til- búnu mótin frá Loftorku, sem þó kostuðu 10 milljónir eða ríflega það. Þar með var 10 millj- ónum fleygt út um gluggann vegna krafna um breidd á undirgöngum sem okkur flestum eru illskiljanlegar – en við erum auðvitað látin borga reikninginn. Dýrir sentímetrar það. Það er augljóst að með því að staðla framleiðslu svona eininga og fleiri, eins og t.d. mislægra gatnamóta, er hægt spara háar fjárhæðir. Þegar grunnur var tekinn að nýjum spítala á Landspítalalóð var í upphaflegu útboði reiknað með því að keyra allt grjótið langt út fyrir bæ- inn en á endanum var samið við Faxaflóahafnir um að nota efnið í uppfyllingu til hafnargerðar. Kjörið hefði verið að keyra efnið í sjó yst á Grandanum í Reykjavík og hafa þar lager af efni í undirstöðu fyrir Sundabraut sem hægt hefði verið að flytja þangað á prömmum. Það eru ekki margir sem vita að grjót til vegagerð- ar er rándýrt og kostnaðarsamt að afla þess og flytja. Svona dæmi eru fjölmörg. Þegar mislægu gatnamótin á Reykjanesbraut við Vallahverfið í Hafnarfirði voru byggð fylgdi með samningur um gerð hljóðmana. Í stað þess að nota grjótið sem til féll þegar sprengt var fyrir mislægu gatnamótunum í hljóðmanir meðfram veginum hirti verktakinn grjótið og geymir nú í námu sem hann hefur yfir að ráða. Efnið sem var notað í manirnar var uppgröftur úr hús- grunnum og annað slíkt sem húsbyggjendur þurftu að losa sig við. Grjótið sem hirt var verður geymt þar til það nýtist til vegagerðar og gefur verktakanum samkeppnisforskot t.d. þegar næsti áfangi í tvöföldun Reykjanes- brautar verður boðinn út. Þetta dæmi sýnir ágætlega fyrirhyggju verktakans, en skort á því sama hjá Vegagerðinni. Ráðdeild Ég spurði í upphafi þessa pistils: Erum við að kasta milljörðum á glæ? Svarið er já – og við verðum að sýna meiri ráðdeild í fram- kvæmdum, bæði stórum sem smáum. Ég býð mig áfram til starfa á Alþingi og set þar á oddinn vilja minn, þekkingu og reynslu til stýra framkvæmdum við þessi verkefni og önnur álíka, í því mikla átaki til bættra sam- gangna sem í vændum er. Vonandi fæ ég stuðning ykkar til þeirra verka og annarra slíkra. 2. sætið í prófköri Sjálfstæðisflokksins í Kraganum, sem ég óska eftir stuðningi í, gæti ráðið þar miklu um. Hugsum stærra, gerum meira og gerum betur. Það mun, þegar upp verður staðið, spara okkur milljarða í samgöngufram- kvæmdum. Eftir Jón Gunnarsson »Nefnd skulu nokkur dæmi um það sem ég vil kalla bútasaum í samgöngumálum, þar sem verið er að spara eyr- inn en kasta krónunni, sem þykir ekki góð fjársýsla. Jón Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. Erum við að kasta milljörðum á glæ? Viðbrögð við Rækt- um Ísland! gefa fyr- irheit um að umræðu- skjalið geti orðið grundvöllur að víð- tækri sátt um land- búnaðarstefnu fyrir Ísland. Ég hef lagt ríka áherslu á náið samráð við mótun stefnunnar og því boða ég ásamt verk- efnisstjórn um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland á næstu 16 dögum til alls 10 funda um allt land. Þeir fundir eru mikilvægir liður í vinnunni, bæði til að kynna skjalið fyrir fólki, en það sem er mik- ilvægara; að hlusta eftir viðhorfi fólks, hugmyndum og ábend- ingum. Þriggja ára vinna Það eru tæplega þrjú ár liðin síðan vinna við mótun land- búnaðarstefnu fyrir Ísland hófst. Samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga, sem leiddur var af Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytenda- samtakanna, og Haraldi Bene- diktssyni alþingismanni, gerði til- lögu til mín um að unnin yrði sviðsmyndagreining um framtíð landbúnaðarins til ársins 2040. Sú vinna var afskaplega umfangs- mikil. Fól meðal annars í sér gagnaöflun með viðtölum, net- könnun, opnum fundum á sex landssvæðum og greiningu á opinber- um gögnum. Haldnar voru vinnustofur þar sem sviðsmyndir um framtíð landbúnaðar voru mótaðar og í kjölfarið hófst úr- vinnsla og samantekt niðurstaðna. Alls tóku um 400 einstaklingar þátt í verkefninu. Það var síðan í september í fyrra sem ég skipaði verkefnis- stjórn um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Í henni sitja Björn Bjarna- son, fyrrverandi ráðherra og þing- maður, og Hlédís Sveinsdóttir, ráðgjafi og verkefnastjóri. Með henni hafa starfað Bryndís Eiríks- dóttir, sérfræðingur í atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytinu, og Sigurgeir Þorgeirsson, fyrrver- andi ráðuneytisstjóri. Nýr tónn Í byrjun maí kynntum við opin- berlega Ræktum Ísland!, umræðu- skjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, sem er afrakstur vinnu verkefnisstjórnarinnar. Í skjalinu er sleginn nýr tónn í umræðu um íslenskan landbúnað sem markar að mínu mati tímamót. Skjalið byggist á þremur lykilbreytum: (1) landnýtingu, (2) loftslags- málum og umhverfisvernd og (3) tækni og nýsköpun. Þessar þrjár breytur setja sterkan svip á 19 meginatriði sem eru dregin fram og rökstudd í skjalinu. Þar er meðal annars komið inn á fæðu- öryggi, matvælaöryggi, land- notkun, bein tengsl bænda og neytenda, kolefnisjöfnun landbún- aðar og menntun, rannsóknir, ráð- gjöf og nýsköpun. Í grein í Morg- unblaðinu 14. maí sl. útskýrir Björn Bjarnason að hver sem les þann texta „sér hins vegar að hann mótast mjög af fjórðu meg- inbreytunni sem skýrðist æ betur eftir því sem leið að verklokum: alþjóðlegum straumum“. Jákvæð viðbrögð Ræktum Ísland! var birt á samráðsgátt stjórnvalda. Þær um- sagnir sem þar komu fram gefa fyrirheit um að skjalið geti orðið grundvöllur að víðtækri sátt um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Slík samstaða er í mínum huga af- skaplega dýrmæt og markar út af fyrir sig tímamót í umræðu um ís- lenskan landbúnað. Að sama skapi er sú samstaða merki um að við séum á réttri leið með þessa vinnu sem að mínu mati er stærsta hagsmunamál íslensks landbún- aðar nú um stundir. Eðlilega hafa og munu koma fram ábendingar um einstaka at- riði og það verður verkefni okkar á næstu vikum að hlusta eftir þeim ábendingum og taka tillit til þeirra eins og kostur er. Þjóðarsamtal Sem fyrr segir er næsti fasi þessa verkefnis alls 10 opnir fund- ir um allt land á næstu 16 dögum. Fyrsti fundur verður haldinn í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri í kvöld. Ég hvet alla til að mæta til þessara funda – hlusta eftir þeim hugmyndum sem liggja fyrir og láta í sér heyra varðandi framhaldið. Ég er fullur tilhlökkunar að eiga samtal við fólk hringinn í kringum landið um framtíð ís- lensks landbúnaðar. Ræða um hvernig við gerum íslenskum land- búnaði sem best kleift að horfa fram á veginn og leiða fram stefnu sem styður við og eflir íslenskan landbúnað til framtíðar. Eftir Kristján Þór Júlíusson Kristján Þór Júlíusson » Það eru tæplega þrjú ár liðin síðan vinna við mótun landbúnaðarstefnu fyrir Ísland hófst. Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þjóðarsátt um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þorvaldseyri Skærgular blómabreiður á akri undir Eyjafjöllum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.