Morgunblaðið - 16.06.2021, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 2021
✝
Hulda fæddist í
Reykjavík
þann 25. ágúst
1930. Hún lést þann
26. maí 2021 á
Landspítalanum
eftir stutt veikindi.
Foreldrar Huldu
voru Kristjana Þor-
steinsdóttir, f. 26.9.
1900, d. 30.6. 1945,
og Jón Hjörtur Vil-
hjálmsson, f. 17.7.
1900, d. 24.8. 1938. Systkini
Huldu voru Helga, Guðjón og
samfeðra Hjördís.
Hulda bjó alla sína tíð í
Reykjavík. Fyrst á Seltjarn-
arnesi en eftir að faðir hennar
lést flutti hún ásamt móður og
systkinum á Njálsgötuna þar
sem hún ólst upp, en hún var að-
eins 8 ára þegar faðir hennar
lést.
Hulda giftist þann 3.7.1954
eiginmanni sínum Markúsi K.
Stefánssyni, f. 23.1. 1928, d. 8.5.
2010, og bjuggu þau í Reykjavík
til 1995 er þau fluttu í Kópavog-
inn. Eftir lát Markúsar flutti
Hulda í Gullsmára 9 og bjó þar
til æviloka. Börn þeirra eru 1)
Kristjana, f. 19.2.1952, maki Jón
Albert Sighvatsson, f. 14.6.
1949. Börn þeirra eru: 1.a. Svan-
Börn þeirra eru Gunnar Helgi,
Ólafur Þór og Sindri Már. 3) El-
ín Erna, f. 9.12. 1956, maki Páll
Gíslason, f. 20.7. 1951. Börn
þeirra eru: 3a. Margrét Páls-
dóttir, f. 2.1. 1978, sambýlis-
maður Pétur Már Ómarsson, f.
29.5. 1976. Fyrir átti Margrét
þrjú börn, Erni, Sunnu og Egil,
með fyrri eiginmanni sínum
Jóni Egilssyni. Fyrir átti Pétur
tvö börn, Rannveigu og Ómar.
3b. Ingibjörg Eva Pálsdóttir, f.
4.7.1980, maki Kristian Snede
Larsen, f. 9.5. 1979. Börn þeirra
eru: Ísak, Jóel Daníel og Símon.
3c. Atli Pálsson, f. 18.11. 1984,
maki Vala Hauksdóttir, f. 13.2.
1992. Barn þeirra er: Ísar
Steinn. 4) Auður Ásdís, f. 13.12.
1962, maki Viðar Einarsson, f.
12.4. 1959. Börn þeirra eru: 4a.
Einar Rafn, f. 22.3. 1982, maki
María Kristín Gröndal, f. 29.10.
1980. Fyrir átti María tvær dæt-
ur, Örnu og Andreu. 4b.Tinna
Viðarsdóttir, f. 19.11. 1986,
maki Heimir Snær Jónsson, f.
24.5. 1985. Börn þeirra eru: Jó-
hanna Líf og Alexandra Líf. 4c.
Stefán Örn Viðarsson, f. 27.12.
1990. 5) Stefán, f. 1.5. 1968.
Börn hans eru: Sigrún Hulda, f.
28.12. 2001, og Arnór Elí, f.
26.6. 2004, sem hann á með Guð-
laugu Arnórsdóttur.
Útför Huldu fer fram frá
Langholtskirkju í dag, 16. júní
2021, og hefst athöfnin kl. 13.
hvít Hulda Jóns-
dóttir, f. 18.11.
1971, maki Sig-
urður G. Krist-
insson, f. 24.9. 1969.
Börn þeirra eru:
Katrín María,
Gunnar Örn og
Auður Björg og
barnabörnin 2. 1.b.
Markús Örn Jóns-
son, f. 9.4. 1977,
maki Berglind
Garðarsdóttir, f. 16.9. 1977.
Börn þeirra eru: Oliver, Elísabet
og Tómas. Fyrir átti Berglind
dóttur, Hrafnhildi Evu. 2) Ingi-
björg Elísabet, f. 11.11. 1954,
maki Helgi Kristjánsson, f. 19.7.
1951. Börn þeirra eru: 2a. Krist-
ján Helgason, f. 13.3. 1976, maki
Hrefna Garðarsdóttir, f. 9.6.
1982, fyrir átti Kristján tvö
börn, Markús og Jenný Yrsu,
með fyrri eiginkonu sinni Rögnu
Björk Ragnarsdóttur. Fyrir átti
Hrefna tvö börn, Garðar Frey
og Sverri Óla. 2b. Jóhanna
Helgadóttir, f. 22.6. 1977, maki
Valdimar Ármann, f. 21.10.
1977. Börn þeirra eru Inga
Huld, Óðinn Valdimar og Iðunn
Rut. 2c. Ingólfur Helgason, f.
7.4. 1986, maki Linda Björk
Gunnarsdóttir, f. 28.7. 1990.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hvíl í friði elsku mamma og
tengdamamma,
Kristjana (Kiddý) og
Jón (Nonni).
Elsku mamma, nú er komið að
kveðjustund. En eftir lifa minn-
ingar um yndislega mömmu. All-
ar ferðirnar sem við fórum með
ykkur pabba, útilegur, veiðitúrar
og berjaferðir. Og ekki má
gleyma ferðunum ykkar pabba að
heimsækja okkur Palla til Dan-
merkur. Það var notalegt að hafa
ykkur hjá okkur. Þú varst mikil
prjónakona og eftir þig liggja
margar peysur sem afkomendur
þínir elska að vera í. Þú elskaðir
að veiða og voru ófáir veiðitúrarn-
ir sem þið pabbi fóruð í. Og seinni
árin voruð þið farin að spila golf
og var farið alla daga sama hvern-
ig viðraði. Eitt sinn var tengda-
sonurinn að keyra fram hjá með
syni sínum og sagði, hvaða kol-
brjálaða fólk er að spila golf í
þrettán stiga frosti? Pabbi, þetta
eru amma og afi. Ekki má gleyma
að minnast á bláu töskuna. Það
var mikil eftirvænting þegar farið
var í ferðir hvort bláa taskan væri
ekki örugglega með. Í henni var
alls konar góðgæti sem þú komst
með. Og enn í dag tala barnabörn-
in um bláu töskuna hennar ömmu.
Það verður skrítið að geta ekki
komið við í Gullsmáranum til að fá
kaffisopa og spjall. Síðasta ár var
þér erfitt elsku mamma og ég á
eftir að sakna þína en þú varst
hvíldinni fegin. Veit að pabbi mun
taka á móti þér með bros á vör.
Hvíl í friði elsku mamma.
Þín dóttir
Elín.
Elsku Hulda amma.
Ég rifja upp góðar minningar
af heimsóknum til þín, alltaf var
eitthvað hægt að brasa hjá þér.
Við spiluðum saman spil með
grænu BYR-spilunum þínum og
ég aðstoðaði þig við að vinda garn
upp í hnykla, sem voru alls ekki
fáir. Ávallt var hægt að treysta á
að það væri til ein jólakaka til við-
bótar inni í frysti og Smint-pakk-
inn var sjaldan langt í burtu hjá
ykkur afa. Ég minnist þess að
hafa staðið inni í þvottahúsi hjá
ykkur þar sem mátti finna ýmis-
legt áhugavert og dáðst að öllum
skrautlegu Quality Street-dósun-
um en skildi þó aldrei hvaða
Mackintosh var talað um.
Ég kveð þig með sorg í hjarta,
en veit þó að þú ert aldrei farin,
minning þín lifir og styrkur þinn
fylgir mér. Takk fyrir allt.
Þín
Inga Huld.
Elsku Hulda amma hefur kvatt
og er nú komin aftur í faðm Krúsa
afa eins og hún óskaði. Söknuður-
inn er sár en minningarnar hlýjar.
Með okkur lifa ómetanlegar
minningar um sterka, staðfasta
og duglega konu, en umfram allt
var amma hlý og skemmtileg.
Fólkið hennar ömmu var henni
mikilvægt og hún hafði alltaf tíma
fyrir fólkið sitt.
Amma brölti um landið í
Bronconum með afa í óteljandi
veiðiferðir, veiddi risalaxa, var
töffari við árbakkann með klút um
uppsett hárið og jafnan glæsileg
heima fyrir. Hún var afbragðs-
kokkur, steikti fiskibollur og sil-
ung, gróf lax og útbjó kjötsúpu,
sultur og grauta. Amma hafði
gaman af því að baka og hún bak-
aði margar uppskriftir í einu og
fyrir jólin bakaði hún iðulega
fjöldann allan af smákökusortum,
við amma deildum þeim áhuga.
Ósjaldan fylgdist ég með ömmu
sinna verkefnum í eldhúsinu, við
áttum saman prjónastundir, sam-
töl um allt og ekkert yfir kaffi-
bolla og kökum og spilastundir við
eldhúsborðið, allt eru þetta nú
dýrmætar minningar.
Amma og afi héldu fallegt
heimili þar sem okkur var alltaf
tekið opnum örmum, árlega voru
haldin fjölmörg fjölskylduboð en
jólaboðin annan í jólum stóðu þar
upp úr. Amma hafði gaman af því
að ferðast, fara í siglingu eins og
hún kallaði það, en áður en hún
fór þreif hún gjarnan heimilið
hátt og lágt, lagði tuskur í klór og
þurrkaði af með dyggri aðstoð
Mr. Sheen, ég fór oft og aðstoðaði
hana. Hjá ömmu voru hlutirnir í
röð og reglu, hún var ekki mikið
fyrir að breyta út af vananum.
Í gegnum árin voru amma og
afi afskaplega samrýmd en afi var
alltaf hennar dyggasti aðdáandi.
Til fjölda ára stunduðu þau saman
laxveiði og seinni árin nutu þau
þess að fara saman í golf í góðra
vina hópi. Þau voru dugleg að
heimsækja fólkið sitt, ferðuðust
til London til okkar fjölskyldunn-
ar og heimsóttu okkur í frí út á
land. Ömmu var umhugað um
fólkið sitt, fór ætíð yfir hver var að
gera hvað og hvernig þeim vegn-
aði, það gerði hún fram á síðustu
stundu.
Þegar ég kvaddi ömmu í síð-
asta skipti sagði hún við mig: Jóa
mín, ég bið að heilsa öllum sem ég
þekki, ég svaraði: já amma, ég
veit, og ekki þeim sem þú þekkir
ekki, hún hló við og svaraði á
móti: nei, ekki þeim sem ég þekki
ekki. Þessi lokakveðja kjarnaði
ömmu mína, henni var fólkið sitt
hugleikið og gaf því af tíma sínum.
Ömmu verður sárt saknað,
minningar um léttan hlátur,
ömmukoss og mjúkan vanga ylja.
Elsku amma, takk fyrir allt,
hvíl í friði.
Jóhanna (Jóa) og fjölskylda.
„Já, halló.“
„Hæ.“
„Er þetta hún Ingibjörg Eva!“
Svona hófust öll símtöl með
ömmu, eitt „hæ“ og hún var ekki í
vafa hver var á línunni. Amma
þekkti fólkið sitt. Hver var er-
lendis, hver átti afmæli, hvenær
var farið í sumarfrí og hver var
að gera hvað. Allt þetta var
amma með á hreinu. Eitt símtal
til ömmu og ég var upplýst um
helstu fréttir og annað sem skipti
minna máli. Þess á ég eftir að
sakna.
Kótelettur, grjónagrautur,
pönnukökur, lambahryggur,
hjónabandssæla, brúnkökur,
súkkulaðikaka, kleinur, lummur
og flatkökur. Það voru alltaf kon-
unglegar móttökur þegar litið
var inn til ömmu. Hjá ömmu
stóðu dyrnar ávallt opnar, kaffið
og kökurnar voru ekki langt und-
an og amma naut þess að spjalla
um allt og ekkert. Heimsóknir til
Íslands verða tómlegar án þess
að geta litið inn til ömmu hvenær
sem er.
Amma hafði gaman af því að
spila og spiluðum við mikið sam-
an þegar ég var yngri. Scrabble
tók hún alvarlega og það var von-
laust að vinna hana. Amma sagði
oft við mig: „Manstu þegar þú
braust allar neglurnar?“ og svo
hló hún. Það var ekkert gefið eft-
ir í kleppara, ég þurfti að hafa
mig alla við og kostaði það stund-
um brotnar neglur.
Strákarnir mínir þrír hafa not-
ið góðs af prjónaskap ömmu, það
eru ófáar peysurnar sem þeir
hafa fengið í afmælis- og jólagjaf-
ir. Íslensku langömmupeysurnar
hafa verið þekktar í skólanum
þeirra. Allir vita hverjir eiga
þessar fallegu peysur og komast
þær ávallt til skila sama hvar sem
þær hafa gleymst. Í síðasta sam-
tali okkar ömmu ræddum við að
nú væri ég farin að prjóna. Það
þótti henni gaman að heyra.
Elsku amma, ég veit að þú
nýtur þess að vera loksins komin
til afa. Ég veit líka að þú skilar
kveðju til hans frá okkur öllum
og segir honum frá því helsta
ásamt því sem minna máli skipt-
ir.
Ég mun sakna ömmu og minn-
ist hennar af mikilli hlýju.
Ingibjörg Eva Pálsdóttir.
Hulda Jónsdóttir
- Fleiri minningargreinar
um Huldu Jónsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SÓLBERG JÓNSSON
sparisjóðsstjóri,
Bolungarvík,
lést þriðjudaginn 8. júní. Útförin fer fram frá
Hólskirkju laugardaginn 19. júní klukkan 14.
Lucie Einarsson
Ásgeir Sólbergsson Margrét Gunnarsdóttir
Bjarni Sólbergsson
Elísabet Jóna Sólbergsdóttir Guðjón Jónsson
Sölvi Rúnar Sólbergsson Birna Guðbjartsdóttir
María Sólbergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
SOFFÍA EINARSDÓTTIR
frá Þorlákshöfn,
lést 11. júní á lyflæknisdeild HSU Selfossi.
Útförin fer fram frá Þorlákskirkju
föstudaginn 18. júní klukkan 11.
Bettý Grímsdóttir Árni Hrannar Arngrímsson
Arngrímur Árnason
Soffía Sif Árnadóttir
Okkar elsku besti Soffi,
KRISTINN SOFFANÍAS RÚNARSSON,
lést á heimili sínu sunnudaginn 6. júní.
Útför fer fram frá Grundarfjarðarkirkju
laugardaginn 26. júní klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Píeta
samtökin eða önnur mannúðarsamtök.
Kristín Soffaníasdóttir Rúnar Sigtryggur Magnússon
Rut Rúnarsdóttir Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Leon Logi Hafsteinsson
Hulda Vilmundardóttir
Aimée Zeinab Diallo
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSTA SVANHVÍT ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Hvammi,
er lést á Öldrunarheimilinu Hlíð, verður
jarðsungin frá Möðruvallakirkju í Hörgárdal
laugardaginn 19. júní klukkan 14.
Við þökkum starfsfólki Hlíðar fyrir hlýhug og góða þjónustu.
Þórður Magni Eyfjörð Gíslason
Björg Guðrún Gísladóttir
Kolbrún Gísladóttir
Sif Svavarsdóttir
Katrín Guðmunda Einarsdóttir
Magðalena Ósk Einarsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUNNLAUGUR BJÖRNSSON
Nípukoti
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
á Akranesi miðvikudaginn 9. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigrún Þórisdóttir
Eva Gunnlaugsdóttir Sverrir Á. Berg
Sigurður Björn Gunnlaugss.
Þórir Óli Gunnlaugsson
Gunnlaugur, Heiðrún, Ingvar Óli, Einar Örn og Hafþór Ingi
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
GUNNHILDAR BIRNU
BJÖRNSDÓTTUR,
Sævargörðum 3, Seltjarnarnesi.
Bestu þakkir færum við starfsfólki L4 á Landakoti og starfsfólki
á hjúkrunarheimilinu Seltjörn.
Hörður Reynir Jónsson
Sverrir Tynes Ása Kolka
Salome Tynes Pálmi Kristinsson
Jón Reynir Harðarson
Bjarni Birkir Harðarson Rakel Guðmundsdóttir
og barnabörn
Ástkær bróðir og frændi,
SIGBJÖRN JÓHANNSSON
bóndi,
Blöndugerði, Hróarstungu,
lést 10. júní á hjúkrunarheimilinu Dyngju á
Egilsstöðum. Útförin fer fram frá
Egilsstaðakirkju föstudaginn 18. júní klukkan 11.
Fyrir hönd aðstandenda,
Emil Jóhann Árnason
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGURLAUG ÁSGERÐUR
SVEINSDÓTTIR,
andaðist á Dvalarheimili aldraðra Dalbæ,
Dalvík, 14. júní. Útförin verður auglýst síðar.
Guðbjörg Antonsdóttir
Elín Antonsdóttir
Anna Dóra Antonsdóttir Sveinn Sveinsson
Arna Antonsdóttir
Þórólfur Antonsson Hrönn Vilhelmsdóttir
Árdís Antonsdóttir
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn