Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 15.12.1951, Síða 57
55
vel framkvæmanleg, sem einn þáttur í búskap. Var því liafili kornyrkja
f stærri stíl, um leið og hafizt var handa um stofnun Tilraunastöðvar-
innar á Sámsstöðum. En jafnframt framleiðslu á byggkorni, voru hafnar
tilraunir með 4 korntegundir, þ. e. bygg, hafra, rúg og hveiti. Einnig
voru gerðar tilraunir með ertur til þroskunar.
Þessar kornræktunartilraunir voru allumfangsmiklar á árunum 1927—
’40. Hefur verið samin skýrsla urn þessar tilraunir, og var hún gefin út
ávegum Atvinnudeildar Háskóla Islands 1946. Tilraunirnar fjölluðu
um afbrigðaval, um sáðtíma, sáðmagn, sáðaðferðir, sáðskipti, áburðar-
tegundir, áburðarmagn, dreifingartíma á köfnunarefnisáburði fyrir korn-
rækt o. fl. Var á þessum árum lögð allmikil álrerzla á kornyrkjutilraunir.
Var um tíma urn helmingur allra tilraunareita í sambandi við kornyrkju-
tilraunir.
Frá 1940 til 1950 hafa kornyrkjutilraunirnar aðallega verið með af-
brigðaval á byggi og höfrum, en auk þess hveiti.
Telja má að ég hafi unnið samfellt að kornyrkju í 29 ár hér á landi,
og vil ég á grundvelli þessarar reynslu og niðurstöðum tilraunanna, full-
yrða að bygg og hafra má rækta til fullrar þroskunar. Báðar þessar teg-
undir hafa reynst ágætlega, sem útsæði, liafi nýting og þroskun verið
góð, og jafnast vel á við útlent korn.
Vetrarrúgur þroskaðist hér í öllum betri árum. Vetrarhveiti náði
einnig allgóðum þroska. Aftur á móti hefur mér reynst vorhveiti van-
gæfara með þroskun en vetrarhveitið. En livorki rúgur né hveiti getur
talizt árviss ræktun.
d. Kartöflurœkt.
Frá því árið 1934 hafa árlega verið einhverjar tilraunir í kartöflu-
rækt. Mest áherzla hefur verið lögð á afbrigða-tilraunir, og er á þessu
árabili búið að gera samanburð á fjölmörgum afbrigðum, og má telja að
árangur þessara tilrauna sé þegar allmikill, því ýms af þeim afbrigðum,
sem reynzt hafa vel á Sámsstöðum, eru nú ræktuð víðsvegar á landinu.
Má þar einkum nefna Gullauga, sem er einhver bezta matarkartaflan,
Ben Lomond, nokkuð fljótvaxin og gefur mikla uppskeru. Einnig má
nefna afbrigðin Rosofolia og Green Mountain, sem einnig eru góðar
kartöflur, þó þær séu ekki eins góðar til matar og Gullauga.
Þá hafa einnig verið gerðar tilraunir í kartöflum með áburðarteg-
undir, áburðarmagn af búfjáráburði og tilbúnum áburði og einnig fiski-
nrjöl. Um útrýmingu illgresis, um sáðdýpi, um moldarspírun kartaflna
og ræktun útsæðis í mýri, móa- og sandjarðvegi. Þá hafa og kartöflur
verið í sáðskiptitilraunum.