Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Blaðsíða 126
Múlaþing
'A? v
‘ /fflf.
Bœrinn á Egilsstöðum í Fljótsdal 1899. Frá vinstri eru líklega jjós, skemma, bœjardyr og baðstofa. Rýkur úr
strompi hlóðaeldhúss að bœjarbaki, í hlaðvarpa er matjurtagarður. Vigfús Sigurðsson teiknaði 1901. (Jólakort
útg. af Safnastofnun Austurlands 1993).
og náttúrufræðings, síðara sumarið fóru þeir
um Austurland. Vel virðist hafa farið á með
þeim, og minnist Jónas hans vinsamlega í
bréfum og dagbókum. Gunnar hafði fallega
rithönd og var um tíma sýsluskrifari í Suður-
Múlasýslu.
Þegar Vigfús var á fýrsta ári fluttu foreldrar
hans að Egilsstöðum í Fljótsdal, og ólst hann
þar upp með systkinum sínum: Gunnari (f.
1881), Gunnþórunni (Gunnþóru, f. 1889) og
Mekkínu (f. 1892). Gunnar gerðist bóndi þar,
með konu sinni, Bergljótu Stefánsdóttur frá
Glúmsstöðum. Þau eignuðust 14 böm erupp
komust, og bjuggu mörg þeirra ógift saman
í félagsbúi á Egilsstöðum fram um miðja
síðustu öld, þekkt sem Egilsstaðasystkin. Flest
vora þau hagvirk og sum gædd skyggnigáfu.
Kunnast þeirra var Snorri Gunnarsson smiður
og listasaumari, er lengi átti heima á Jökuldal.
Enn búa afkomendur þeirra rausnarbúi á
Egilsstöðum. Gunnþómnn og Mekkín vom
vinnukonur á Egilsstöðum, munu ekki hafa
gifst eða eignast afkomendur.
Æviágrip
Vigfús var bráðþroska og kom snemma í ljós
að hann bjó yfir óvenju fjölþættum gáfum.
Hann var mjög handlaginn og hugmyndaríkur,
en jafnffamt glaðsinna og félagslyndur, og
hvers manns hugljúfí er kynntust honum.
„Glaðværð og góðvild var Vigfúsi svo töm, að
hverjum manni þótti góð návist hans... Hann
var góður teiknari og listaskrifari, en einkum
virtist honum tónlist og leiklist í blóð borin...
Hann var ljóðelskur, lesinn vel, og fjölfróðari
en almennt gerist um ólærða,“ segir Sigurður
Baldvinsson í minningargrein um hann.
Um æsku Vigfúsar er lítið vitað, t.d.
er ritara ekki kunnugt hvort hann fékk
einhverja tilsögn barnakennara, sem þá
voru á ýmsum bæjum í Fljótsdal, t.d. á
Valþjófsstað og Skriðuklaustri, en þar var
hann vel kunnugur og nánast heimagangur
hjá séra Þórami og Ragnheiði á Valþjófsstað,
þar sem var landsþekkt menningarsetur og
tónlist í hávegum höfð. A Klaustri var Hákon
Finnsson við kennslu um aldamótin, fjölhæfur
124