Fréttablaðið - 27.11.2021, Blaðsíða 4
bth@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Mikið er leitað til
Sjúkratrygginga Íslands vegna mála
sem tengjast háum tannréttinga-
kostnaði barna. „Já, það er mikið
leitað til okkar,“ segir Ingibjörg K.
Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri trygg-
ingasviðs hjá Sjúkratryggingum.
Kostnaður getur hlaupið á millj-
ónum fyrir foreldra barna sem þurfa
tannréttingar á sama tíma og styrkur
frá Sjúkratryggingum hefur ekki
hækkað í áratugi og dekkar aðeins
örlítið brot kostnaðar í mörgum til-
vikum. 150.000 króna styrkur sem
nú er greiddur ætti að vera 340.000
krónur miðað við vísitöluhækkanir.
„Ég verð að vísa á ráðuneytið,
þetta er bundið í reglugerð og þessi
grein sem varðar þessa styrki hefur
ekki breyst í mörg ár. Þetta er ekkert
sem við hér höfum stjórn á,“ segir
Ingibjörg.
Spurð um misrétti í þessum
efnum, að styrkurinn hafi ekki
hækkað á sama tíma og verð þjón-
ustu hafi hækkað og megi því færa
rök fyrir að tannréttingar barna hafi
ekki verið dýrari fyrir heimili um
áratuga skeið, segir Ingibjörg:
„Ég held að það sé ekki rétt að ég
tjái mig um mína skoðun persónu-
lega.“
Ein ástæða þess að lagfæringar
á tannréttingakerfinu hafa ekki
orðið sem skyldi, eru að mati tann-
sérfræðinga sem Fréttablaðið hefur
rætt við, að samskiptum tannlækna,
ráðuneytis og Sjúkratrygginga
Íslands hafi verið ábótavant.
„Nei, þetta get ég staðfest, ég veit
ekki betur en að samskiptin hafi
verið jákvæð, við höfum verið með
samsráðsnefnd og hún hefur gengið
mjög vel,“ segir Ingibjörg. „En þetta
eru háar fjárhæðir sem geta farið í
tannréttingar. Styrkurinn er stund-
um dropi í hafið,“ bætir hún við.
Ekkert viðbragð barst frá heil-
brigðisráðuneytinu í gær þrátt fyrir
fyrirspurn blaðsins. n
Annríki hjá Sjúkratryggingum vegna tannréttingastyrkja
Styrkir vegna tannréttinga barna eru
oft dropi í hafið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
480.000 KR.
VSK verð
hækkun um
áramótin*
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSKBANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • JEEP.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 1017 • LAUGARDAGA 1216
*Verð á Compass og Renegade hækkar um áramótin vegna VSK hækkana.
**Bjóðum upp á 35”40” breytingapakka fyrir Wrangler.
JEEP WRANGLER RUBICON
TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI
JEEP COMPASS
TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI
TRYGGÐU ÞÉR JEEP
Á LÆGRA VERÐI
ALVÖRU JEPPI. ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
Nú er tilvalið að tryggja sér alvöru jeppa
með alvöru fjórhjóladrifi í forsölu.
Áætlað er að bílarnir verði tilbúnir til
afhendingar í desember.
kristinnhaukur@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Íslendingar eru ekki á
meðal þeirra Evrópuþjóða sem
versla mest á netinu. Þeir sem nota
netið til að versla gera það þó í
miklu magni. Þetta kemur fram hjá
Euro stat, tölfræðistofnun Evrópu.
62 prósent Íslendinga hafa keypt
vörur á netinu undanfarna þrjá
mánuði, langt undir hlutfallinu í
Skandinavíu og Þýskalandi. Bretar
tróna á toppnum með 83 prósent.
Af þessum 62 prósentum höfðu
25 keypt í tíu skipti eða oftar, sem
er langhæsta hlutfallið á ESB- og
EES-svæðinu. n
Þeir sem kaupa á
netinu kaupa oft
62 prósent Íslendinga versluðu á
netinu síðustu þrjá mánuði.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
kristinnhaukur@frettabladid.is
DÝRAVERND Veira sem valdið getur
sjúkdómnum blóðþorra hefur fund-
ist í eldislaxi í Reyðarfirði, í sjókví
Laxa fiskeldis. Er þetta í fyrsta sinn
sem veiran finnst hér á landi.
Uppgötvaðist veiran við krufn-
ingu í kjölfar óútskýrðra affalla
í einni kvínni. Verður allur lax í
kvínni af lífaður og úrganginum
fargað með tryggum hætti. n
Blóðþorraveira
fannst í eldisfiski
Ný ríkisstjórn verður kynnt á
morgun. Katrín Jakobsdóttir
verður áfram forsætisráð-
herra og mun að óbreyttu
sitja í því embætti út kjör-
tímabilið.
adalheidur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Ráðherrum Fram-
sóknarf lokksins fjölgar um einn
í nýrri ríkisstjórn Framsóknar-
f lok k s , Sjá l f st æði sf lok k s og
Vinstri grænna, sem kynnt verður
á morgun. Sjálfstæðisf lokkurinn
og Vinstri græn halda sínum fjölda
ráðuneyta. Ráðherrar nýrrar ríkis-
stjórnar verða því tólf og fjölgar um
einn frá því sem nú er. Þetta herma
heimildir Fréttablaðsins.
Sjálfstæðisf lokkur mun fara
með fimm ráðuneyti, Framsókn
fjögur og Vinstri græn með þrjú.
Katrín Jakobsdóttir mun áfram
gegna embætti forsætisráðherra, að
óbreyttu út kjörtímabilið. Em bætti
forseta Alþingis verður skipað
þingmanni úr röðum Sjálfstæðis-
f lokksins. Líklega Birgi Ármanns-
syni.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins verða töluverðar breyt-
ingar innan Stjórnarráðsins sam-
hliða kynningu á stjórnarsáttmála
nýrrar ríkisstjórnar. Ekki aðeins
verða til ný ráðuneyti, heldur verða
málaf lokkar einnig f luttir milli
ráðuneyta.
Eins og Fréttablaðið hefur áður
fjallað um hefur nýtt innviðaráðu-
neyti verið á teikniborðinu frá því
fyrir kosningar, en með því yrðu
húsnæðis- og skipulagsmál færð
inn í sama ráðuneyti og fer með
samgöngumál og málefni sveitar-
stjórna. Einnig hefur komið til
greina að inn í sama ráðuneyti fari
veigamiklir málaf lokkar á sviði
orkumála og iðnaðar.
Meðal annarra málaflokka sem
rætt hefur verið um að færa milli
ráðuneyta eru skógrækt, land-
græðsla og landnýting. Einnig hefur
komið mjög til umræðu að hreyfa
við málaf lokkum sem nú heyra
undir mennta- og menningar-
málaráðuneyti. Þá má einnig búast
við tilfærslum á málaflokkum milli
þeirra ráðuneyta sem fara með
atvinnumál, á sviði iðnaðar, ferða-
mála, landbúnaðar, sjávarútvegs
og nýsköpunar. Málaf lokkar sem
heyrt hafa undir fjármála- og efna-
hagsráðuneytið hafa líka verið á
hreyfingu í viðræðunum og jafnvel
rætt um nýtt viðskiptaráðuneyti.
Nýr stjórnarsáttmáli f lokkanna
verður kynntur innan þeirra í dag,
eftir því sem lög f lokkanna kveða
á um. Flokksráð Vinstri grænna
fundar klukkan tvö og f lokksráð
Sjálfstæðisflokksins kemur saman
í Valhöll klukkan þrjú. Miðstjórn
Framsóknarflokksins fundar einn-
ig klukkan þrjú, á fjarfundi.
Leggi f lokkarnir blessun sína
yfir stjórnarsáttmála og skiptingu
ráðuneyta milli f lokkanna, verður
boðað til þingflokksfunda í fyrra-
málið þar sem ráðherralistar verða
bornir upp til samþykktar.
Að óbreyttu verður svo boðað til
blaðamannafundar eftir hádegi á
morgun, til kynningar á nýrri ríkis-
stjórn og stjórnarsáttmála hennar.
Að því loknu verður haldið til
Bessastaða þar sem síðasti ríkis-
ráðsfundur sitjandi ríkisstjórnar
fer fram. Þar verður ráðherrum
veitt lausn frá sínum embættum.
Þeirra á meðal er Kristján Þór
Júlíusson, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, sem hverfur úr
ríkisstjórn.
Að þeim fundi loknum fer fram
annar fundur í ríkisráði, fyrsti
fundur nýrrar ríkisstjórnar með
forseta Íslands. n
Ráðherrum ríkisstjórnar fjölgar í tólf
og Framsókn bætir við sig ráðherra
Stjórnarmyndunarviðræðurnar hafa staðið óvenjulengi eða í tvo mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Katrín Jakobsdóttir
verður áfram forsætis-
ráðherra.
4 Fréttir 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ