Fréttablaðið - 27.11.2021, Side 8
Við höfum ekki aukið
framleiðsluna hjá
okkur en við erum að
búa til verðmætari
vöru.
Upplýsingafulltrúi Norðuráls
Tekjur af áli 80 milljarðar á
þremur mánuðum. Norðurál
fer í 16 milljarða króna fjár-
festingarverkefni og bætir við
sig tugum starfsmanna. Meiri
útflutningstekjur á þriðja
ársfjórðungi en af útflutningi
sjávarafurða.
bth@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Tekjur af áli og álafurðum
námu nálægt 80 milljörðum króna á
þriðja fjórðungi þessa árs. Aukning-
in er 72% milli ára í erlendri mynt.
Skýringarnar eru miklar verð-
hækkanir á heimsmarkaðsverði
á áli síðustu mánuði. Ein megin-
ástæða hækkunarinnar er minna
heimsframboð, ekki síst þar sem
Kínverjar hafa dregið úr álfram-
leiðslu vegna breyttrar stefnu þar-
lendra stjórnvalda í umhverfismál-
um. Álverð sveiflast gjarnan upp og
niður, en hefur nú ekki verið hærra
í 13 ár.
Sólveig Bergmann, upplýsinga-
fulltrúi Norðuráls, staðfestir upp-
gang. Hún segir að í kjölfar Covid
hafi spurn eftir áli aukist á ný, ekki
síst í samgöngum. Álið sem Norður-
ál framleiði fari til Evrópu. Um sé að
ræða grænt ál, einhverja umhverfis-
vænustu álframleiðslu heims.
„Okkar ál fer mikið í íhluti í bif-
reiðar, byggingar og tæknibúnað,“
segir Sólveig.
Hún segir að Norðurál hafi gert
langtímasamning við austur-
rískt framleiðslufyrirtæki um
kaup á 150.000 tonnum af Natur-
Al, grænni vörulínu. Það sé fyrsti
langtímasamningur um grænt ál á
heimsvísu.
Þá muni Norðurál innan skamms
fara í 16 milljarða króna fjárfest-
ingarverkefni til að framleiða ál-
sívalninga. Arion banki fjármagni
verkefnið undir merkjum grænnar
fjármögnunar, enda dragi það veru-
lega úr losun CO2. Starfsfólki hafi
fjölgað, sumpart vegna styttingar
vakta. Fleiri ráðningar séu í píp-
unum, 40 starfsmenn verði ráðnir
þegar framleiðsla hefst á nýrri
framleiðslulínu. Um 90 störf verði
á framkvæmdatímanum.
„Við höfum ekki aukið fram-
leiðsluna hjá okkur en við erum að
búa til verðmætari vöru, erum að
færast nær fullunnari afurð,“ segir
Sólveig.
Samk væmt upplýsingum frá
Hagstofunni var greitt um 62 pró-
senta hærra verð fyrir álafurðir frá
Íslandi á þriðja ársfjórðungi þessa
árs en á sama tímabili í fyrra.
Útf lutningstekjur af áli urðu á
þriðja ársfjórðungi meiri en tekjur
af sjávarafurðum. Fágætt er að slík
staða komi upp, en Samtök fyrir-
tækja í sjávarútvegi benda á að það
eigi þó aðeins við um brúttó tekjur
en ekki hreint framlag greinanna
til útflutningstekna eða verðmæta-
sköpunar í hagkerfinu. n
Uppgangur í álframleiðslu
og stórfjölgun starfsmanna
Verðmætaaukning hefur orðið í álafurðum innanlands undanfarið, á sama tíma og Kínverjar draga úr framleiðslu.
Svört
HELGI
26.-27. nóvember
30-70%
afsláttur af
völdum vörum
Plankaparket
Harðparket
Flísar
Mottur
Háfar
Opnunartími:
Laugardagurinn 27. nóv. opið frá 11-14
Sjáðu tilboðin á Parki.is Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi
8 Fréttir 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ