Fréttablaðið - 27.11.2021, Qupperneq 12
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitir
árlega styrki til verkefna á sviði umhverfis- og
auðlindamála. Styrkirnir eru ætlaðir til verk-
efna á vegum aðila utan ríkisstofnana, sem
sannanlega falla undir verkefnasvið ráðu-
neytisins.
Einnig eru veittir rekstrarstyrkir til félagasam-
taka sem starfa á sviði umhverfismála.
Markmið rekstrarstyrkjanna er að stuðla að
opnum og frjálsum skoðanaskiptum um um-
hverfis- og auðlindamál og að efla almenna
vitund um gildi umhverfismála.
Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði sem
fram koma í reglum ráðuneytisins um verk-
efna- og rekstrarstyrki.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.stjornaradid.is/verkefni/umhverfi-
og-natturvernd/styrkir-og-sjodir/
Umsóknarfrestur er til kl. 23:59, 7. janúar 2022.
Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á
eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Styrkir til verkefna og rekstrar
lausir til umsóknar
Stjórnarráð Íslands
Forsætisráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Heilbrigðisráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Utanríkisráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Félagsmálaráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Fjármála- og
efnahagsráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Umhverfi s- og
auðlindaráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Mennta- og
menningarmálaráðuneytið
Merki að neðan í raðauglýsiungar
fyrir ráðun ytin miðað við ca. 2 dálka auglýsingar....
ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI Á 1.690 KR. EF ÞÚ SÆKIR, 22.–29. NÓV. 2021
Geðhjálp hefur farið af stað
með verkefnið Geðlestina, til
að efla geðrækt ungmenna.
Þunglyndi unglinga hefur
versnað í faraldrinum.
mhj@frettabladid.is
COVID-19 Grímur Atlason, fram-
kvæmdastjóri Geðhjálpar, segir það
alveg ljóst að þunglyndiseinkenni
og vanlíðan á Íslandi hafi aukist
í faraldrinum, sérstaklega meðal
ungmenna.
Grímur segir ungt fólk á Íslandi
líða mikið þegar aðgerðir eru hertar
og kallar hann eftir að stjórnvöld
horfi á heildarmyndina þegar verið
er að ákveða sóttvarnaaðgerðir.
Geðhjálp hefur verið að mæta
vanda ungmenna með verkefninu
Geðlestinnni, sem heimsækir nem-
endur á grunnskólaaldri.
„Markmiðið er að ef la geðrækt
meðal barna og ungmenna í ljósi
þess að þetta er mjög flókið. Í fyrsta
lagi er mjög flókið að vera unglingur
og það hefur alltaf verið flókið, en
það er mjög f lókið í dag,“ segir
Grímur.
„Það er svo margt sem að spilar
inn í og svo kemur þetta Covid ofan
í það. Sem gerir það að verkum að
þau eru búin að vera í sóttkví og
mikið álag á þeim rétt eins og öðrum.
Maður horfir á það að það er engin
heildræn hugsun í aðgerðum stjórn-
valda,“ segir Grímur og bætir við að
Geðhjálp hafi skrifað heilu og hálfu
minnisbækurnar í tengslum við geð-
ræn vandamál og faraldurinn. Að
hans mati er hins vegar alltaf bara
horft á eina breytu, sem eru Covid-
veikindi og dauðsföll.
„Það hafa ekki dáið margir úr
Covid á þessu ári, og ég ætla ekki að
gera lítið úr því, en ástandið núna
er þannig að það eru fáir að deyja.
Það deyja færri úr Covid núna
heldur en deyja úr f lensu, en við
förum samt með hvert einasta and-
lát eins og það sé alveg það versta
sem hefur komið fyrir okkur,“ segir
Grímur.
„Á sama tíma dóu fjörutíu og sjö í
fyrra fyrir eigin hendi og það er bara
það sem er gefið upp. Það er fólk
sem keyrir framan á bíla, keyrir út
í sjó, veltir bílum sínum og tekur of
stóran skammt og svona, en það er
ekki endilega litið á það sem sjálfs-
víg heldur slys.“
Spurður um stöðuna á sjálfs-
vígum í ár, segir Grímur að þær
tölur eigi eftir að koma í ljós. „Það
veit enginn. Landlæknir heldur utan
um dánarmeinaskrá og það kemur
yfirleitt í apríl um árið. Það var bara
í fyrra að það var gefið út að það
hefðu verið þrjátíu sjálfsvíg komin
í ágúst. Það var þá sem við vissum
eitthvað.“
Grímur segir að Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin hafi bent
á það í upphafi faraldursins að
við myndum glíma við geðrænar
áskoranir í kjölfar hertra aðgerða
og að við yrðum að passa mótvægi
í því. Geðhjálp gerði slíkt hið sama
og sendi síðast ítrekun þess efnis við
sumarlok.
„Ég ætla ekki að gera lítið úr far-
aldrinum og lítið úr hættunni, en
við verðum að fara að vega og meta
afleiðingarnar og þá vera með ein-
hverjar mótvægisaðgerðir gagnvart
þeim. Þær eru svo fáar. Ef þær eiga að
vera fáar þá er bara spurning hverjar
eru afleiðingar þess að keyra þessa
stefnu?“ spyr Grímur.
„Við verðum að vita það og meta
það betur í stað þess segja: „Við
gerum bara þetta og það er rétt og
best og það er ekkert annað í boði,““
segir Grímur að lokum. n
Ég ætla ekki að gera
lítið úr faraldrinum og
lítið úr hættunni, en
við verðum að fara að
vega og meta afleiðing-
arnar.
Grímur Atlason,
framkvæmda-
stjóri Geðhjálpar
Segir aðgerðir stjórnvalda
skorta heildræna hugsun
Nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík skimaðir fyrir kórónaveirunni á bókasafni skólans. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
gar@frettabladid.is
FJÖLMIÐLUN Jón Atli Benedikts-
son, rektor Háskóla Íslands og Sig-
mundur Ernir Rúnarsson, aðalrit-
stjóri fjölmiðla Torgs ehf., skrifuðu
í gær undir samning um framleiðslu
nýrrar sjónvarpsþáttaraðar um
rannsóknir vísindamanna á vegum
skólans.
Þáttunum, sem bera heitið Vís-
indin og við, er ætlað að varpa ljósi
á þá margvíslegu rannsóknarstarf-
semi sem fer fram innan Háskóla
Íslands, með viðtölum og umfjöllun
við fremstu fræðimenn skólans,
nemendur þeirra og aðstoðarmenn,
en sú vinna hefur oft og tíðum skil-
að sér út í atvinnulífið hér á landi,
því til aukinnar hagsældar.
Umsjónarmenn þáttanna verða
Þóra Katrín Kristinsdóttir efna-
fræðingur og Sigmundur Ernir.
Saman munu þau þræða ganga
háskólans í leit að því merkilegasta
og fréttnæmasta sem er að gerast í
vísindastarfinu innandyra og úti
á víðavangi. Efni þáttanna verður
einnig aðgengilegt á síðum Frétta-
blaðsins og fréttavefjum þess.
Framleiðslu þáttanna ber upp
á 110 ára afmæli Háskóla Íslands,
sem hefur verið leiðandi í vísinda-
rannsóknum hér á landi frá upp-
hafi síðustu aldar. Þættirnir eru
væntanlegir á dagskrá Hringbrautar
í byrjun næsta árs. n
HÍ og Hringbraut saman í sjónvarpi
Jón Atli og Sigmundur Ernir ásamt Þóru Katrínu, Jóni Erni Guðbjartssyni,
samskiptastjóra HÍ, Sæunni Stefánsdóttur, forstöðumanni Stofnunar Rann-
sóknasetra HÍ og Birni Gíslasyni, kynningarstjóra HÍ. FRÉTTABLAÐIÐ / SIGTRYGGUR
12 Fréttir 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ