Fréttablaðið - 27.11.2021, Síða 24
5
Vilhjálmur var kosinn
Íþróttamaður ársins
fimm sinnum.
24 Íþróttir 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 27. nóvember 2021 LAUGARDAGUR
Í dag eru 65 ár síðan Vil-
hjálmur Einarsson setti
Ólympíumet í þrístökki
og var í forystu í nokkra
klukkutíma. Hann endaði í
öðru sæti og vann þar með
fyrstu verðlaun Íslendings á
Ólympíuleikum.
benediktboas@frettabladid.is
„Ég held að þetta sé stærsta afrek
íþróttasögu Íslands enn þann dag
í dag,“ segir Sigurbjörn Árni Arn-
grímsson, skólastjóri og frjáls-
íþrótta-alfræðiorðabók, um afrek
Vilhjálms Einarssonar sem stökk á
þessum degi 16,26 metra í þrístökki
á Ólympíuleikunum í Ástralíu.
Stökkið var Ólympíumet og
stóð í rúmar tvær klukkustundir
þangað til ríkjandi Ólympíumeist-
ari, Brasilíumaðurinn Adhemar
da Silva, stökk níu sentimetrum
lengra og vann. Vitold Kreyer varð
í þriðja sæti og Bandaríkjamaður-
inn Bill Sharpe varð í fjórða sæti, en
hann leiddi eftir fyrstu umferð með
stökki upp á 15,88 metra.
Þetta voru fyrstu Ólympíuverð-
laun Íslendings og er Vilhjálmur
enn eini Íslendingurinn sem hefur
sett Ólympíumet. Biðu Íslendingar
í 28 ár eftir næstu verðlaunum á
Ólympíuleikunum.
„Að setja Ólympíumet er ekkert
gert á hverjum degi og Vilhjálmur
nær að vera í forystu, gjörsamlega
óþekktur, í einhverja klukkutíma
fyrir fjórða stökk da Silva.
Óly mpíu leik ar er u st ær st a
íþróttakeppni heims og við getum
sagt að silfrið hjá handboltalands-
liðinu sé mjög gott, en handbolti er
Afrek sem verður
seint leikið eftir
Vilhjálmur stökk aðeins fjórum sinnum í Melbourne árið 1956.
Vilhjálmur varð annar í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu á þessum degi árið 1956.
16,70
Íslandsmet Vilhjálms
er 16,70 og stendur
enn.
örgrein miðað við frjálsar íþróttir á
Ólympíuleikum. Þess vegna tel ég
að þetta sé enn þá stærsta íþrótta-
afrek sem Íslendingur hefur unnið,“
segir Sigurbjörn.
Hann bendir á að Vilhjálmur hafi
aðeins stokkið fjórum sinnum á
meðan da Silva stökk sex sinnum.
„Hann þoldi ekki mikið af stökkum
í einu. Skórnir voru auðvitað miklu
verri og í raun bölvað rusl. Hann
reyndi að fá meiri dempun og mýkt
en tók ekki öll stökkin sín.“
Þegar kom að því að útnefna í
fyrsta skipti afreksíþróttamann í
heiðurshöll ÍSÍ á afmælishátíð sam-
bandsins, var Vilhjálmur sá fyrsti
sem var tekinn þar inn.
Sigurbjörn bendir á að stökk upp
á 16,70, sem er Íslandsmet Vilhjálms
frá 1960, sé frambærilegt enn þann
dag í dag og að hann kæmist á f lest
stórmót. „Aðstaðan var frábær í
gamla daga. Melavöllurinn var sam-
bærilegur við aðra velli úti í heimi.
Auðvitað var hér skítaveður, en hér
var toppaðstaða. Svo liðu árin og
aðrir tóku fram úr okkur.
Það var líka bannað að vera
atvinnumaður á Ólympíuleikum,
sem taldi líka. Þá var unnið og farið
svo á æfingu. En samt er ótrúlegt að
ná Ólympíumeti,“ segir Sigurbjörn.
Einn sá besti
Vilhjálmur Einarsson var einn af
fremstu þrístökkvurum heims árin
1956-1962. Meðal afreka Vilhjálms
var 3. sæti á Evrópumeistaramóti
árið 1958, 5. sæti á Ólympíuleik-
unum í Róm á Ítalíu árið 1960,
með stökki upp á 16,37 metra, og
6. sæti á Evrópumeistaramóti í Bel-
grad árið 1962, þar sem hann lauk
ferlinum. „Ferill hans var frábær.
Íslendingum var boðið að koma
og keppa úti um allan heim, svo
framarlega sem silfurmaðurinn
væri með,“ segir Sigurbjörn Árni. n
Vilhjálmur var sá fyrsti sem var
tekinn inn í heiðurshöll ÍSÍ. MYND/ÍSÍ
Kósýkvöld með Eyfa
2. 9. 19. desember
Ljúf tónlist
yfir ljúffengum mat
Borðapantanir í síma 5627335
caruso@caruso.is
AUSTURSTRÆTI 22
Aðalfundur
Golfklúbbsins Odds 2021
Aðalfundur Golfklúbbsins Odds verður haldinn í golfskálanum
í Urriðavatnsdölum þriðjudaginn 7. desember kl. 20:00*.
Dagskrá:
• Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
• Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
• Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning sem síðan skal borinn upp til
samþykktar.
• Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna skv. 19. gr. ef einhverjar
eru.
• Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
• Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár. Fjárhagsáætlun næsta
árs kynnt.
• Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
• Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
• Kosning þriggja manna í kjörnefnd.
• Önnur málefni ef einhver eru.
Stjórn Golfklúbbsins Odds.
*Tekið verður tillit til þeirra samkomutakmarkana sem í gildi verða þann
7. desember. Allar nánari upplýsingar um fundinn og framkvæmd hans er
hægt að nálgast á heimasíðu GO, oddur.is, við munum einnig senda út tölvu-
pósta og tilkynningar á samfélagsmiðla með upplýsingum þegar nær dregur.
Fundurinn verður sendur út á facebook.