Fréttablaðið - 27.11.2021, Side 35
Það er áhugavert að
skoða konur sem
standa svo sterkt. Eru
fjárhagslega sjálfstæðar
og hafa þannig getu til
að fara inn í jafningja-
samband.
ingar á markaðnum frá því að þær
hófu síðasta samband og þar til nú.
Það var ekki einu sinni til farsími
þegar þær voru um tvítugt, tæki sem
gegnir nú gríðarlegu hlutverki í til
hugalífinu. Allt þetta sjónræna og
textasmíðin og markaðssetningin.
Markaðsvæðing ástarinnar hefur
magnast gífurlega.“
Berglind Rós segir að viðmiðin
séu á öllum sviðum ástarinnar
orðin ólík því sem þau voru. Bæði
hjá þeim sem eru einhleyp og í leit,
en líka fyrir þau sem eru í sambandi,
því skilnaðartíðni hafi aukist og það
sé samhliða breyttum gildum í sam
félaginu.
„Það skildi enginn fyrir 40 til
50 árum nema það væri aðkall
andi og skýr ástæða fyrir því, eins
og alkóhólismi eða of beldi eða
svik. En núna er einfaldlega nóg
að missa áhugann eða einfaldlega
lýsa breyttum tilfinningum eða
þörfum,“ segir Berglind.
Margar mótsagnir á markaði
Hún segir að í þessu séu svo margar
mótsagnir, því að þegar fólk er svo
komið aftur á markaðinn,
sem er svo opinn og fjöl
breyttur, þá sé svo erfitt,
þrátt fyrir allt framboðið,
sítenginguna og sýnileik
ann, að finna nánd og sterkar
tilfinningar.
„Sem þú hrífst af og verður
ástfangin af. Það þarf svo margt
að fara saman svo það myndist
einhver harmónía hjá fólki. Þetta
eru jafnframt kröfuharðar konur
sem sætta sig ekki við hvað sem er,“
segir Berg lind, en að þetta sé á sama
tíma í mótstöðu við þá kröfu sem við
höfum, um að ástarjátning feli í sér
að maður hafi sérstöðu.
„Við viljum vera sérstök og að við
komandi verði ástfanginn af okkur
því við erum svo sérstök, en svo á
sama tíma segjum við að það sé svo
auðvelt að finna einhvern nýjan
og verða ástfangin. Hver er þá sér
staðan?“
Ástin ekki í hversdeginum
Berglind segir að hún hafi séð
það hjá framakonunum að þær
hafi reynt eftir fremsta megni að
aðgreina ástina frá hversdeginum.
„Konurnar eru flestar með börn, í
krefjandi starfi og vilja fá smá krydd.
Fara í ferðalög, njóta fría og augna
blika og þær vilja ekkert endilega
blanda lífinu með nýja makanum
og börnunum saman, eða hvers
deginum. Rómantíska ástin er upp
hafin og hversdagurinn er þannig
andstaða við hana,“ segir Berglind
og að þetta sé dæmi um nýja gerð af
samningum í ástinni, þar sem það
er vel skilgreint hvar og hvenær fólk
hittist og við hvaða aðstæður.
„Það er skýrt og stýrt skipulag,
alltaf gaman og alltaf þegar þeim
hentar,“ segir Berg lind.
Hú n s eg i r að
af leiðingarnar af
óöryggi á markaði
á s t a r i n n a r s é u
að konurnar leggi
meiri áherslu á vina
tengsl og tengsl við
börn sín, og svo ann
ars konar samninga með
fyrirvörum og skilyrðum,
og segir að í samræmi við það
sé það algengara að fólk gangi inn
í svokölluð tímabönd [e. situation
ship] þar sem fólk ákveður að vera
saman í afmarkaðan tíma, þar til
annar fer, eða einhverju tímabili
lýkur.
„Þær eru í aðstöðu til að setja
fram þessar kröfur,“ segir Berglind
og að konurnar séu meðvitaðar
um að þær séu ekki endilega í leit
að sálufélaga og að þessi nýi maki
eða félagi sem þær leita að, þurfi
ekki að uppfylla allar þeirra kröfur.
Þær eigi vinkonur, ættingja og börn
sem uppfylli stóran hluta þeirra.
Rómansinn og kynlífið er því í for
grunni í hinum nýju samböndum
og á þeirra forsendum. Þær eru
mun meiri gerendur í að móta líf
sitt, bæði einka og vinnulíf, en
jafnöldrur þeirra fyrir 30 árum,
þegar Anna Guðrún þróaði hug
myndina um ástarkraftinn.
„Hin skýru skilyrði koma þó
líka til af því að þeim líður eins og
þær hafi gengið á ástarkrafta sína
í fyrri samböndum og til lengri
tíma fengið of lítið til baka,“ þann
ig að þær eru með varann á sér,
segir Berg lind. Eins séu þær enn að
veita börnunum sínum svo mikið
af þessum krafti og forgangsraði
þeim framar, því þær finni að hann
sé ekki ótakmarkaður á þessum
tímapunkti í lífi þeirra. n
Konurnar eru flestar með börn, í krefjandi starfi og vilja fá smá krydd. Fara í
ferðalög, njóta fría og augnablika og vilja ekkert endilega blanda lífinu með
nýja makanum og börnunum saman, eða hversdeginum. Fréttablaðið/getty
Helgin 35LAUGARDAGUR 27. nóvember 2021 Fréttablaðið