Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.11.2021, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 27.11.2021, Qupperneq 36
Eivør Pálsdóttir var ekki nema 13 ára gömul þegar hún byrjaði að spila á dans- leikjum. Þá þurfti hún að hafa mömmu sína með til að fá inngöngu. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og nýverið gaf hún út plötu í miðjum heimsfaraldri og hélt 100 þúsund manna tónleika í streymi, án þess að ná að greiða sér almennilega. Færeyska tónlistarkonan Eivør Pálsdóttir nýtur þess að hafa nóg að gera. Hún hefur nýlokið tón- leikaferðalagi um Evr- ópu þar sem hún fylgdi eftir nýrri plötu sem kom út á síðasta ári, og í byrjun nóvember hlaut hún Tón- listarverðlaun Norðurlandaráðs fyrir yfirgripsmikið framlag sitt til norrænnar tónlistarsenu og fær- eyskrar tónlistar og tungu. Í byrjun desember slær hún síðan upp árleg- um jólatónleikum hér á landi. Nýja árið hefst svo með tónleikaferð um Bandaríkin. Það st a fa r f y r irha f na rlau s stjörnu ljómi af færeysku tónlistar- konunni Eivøru Pálsdóttur, þegar hún mætir blaðamanni á kaffihúsi á vindasömu vetrarkvöldi í miðbæ Reykjavíkur. Hún er klædd í síða svarta kápu og heldur á stórum poka úr f lottri tískuverslun, og minnir svolítið á gullaldarstjörnu frá Hollywood. Það er stutt í hlátur- inn og hún fórnar höndum, spurð út í jólatónlist og Færeyjar. Færeyska tónleikahefðin ung „Það er alls ekki jólatónlistarsena í Færeyjum. Ég hef heldur aldrei gefið út jólaplötu, en hef verið gestur á alls konar jólatengdum tónleikum á Íslandi,“ segir hún. Eivør segist nýta þannig tækifærið til að heimsækja íslenska vini. „Í Færeyjum er stór kántrí-sena. Hún er mikið til fyrir fólkið sem situr heima í stofu úti á landi og vill bara heyra þannig tónlist. En svo er líka stór neðanjarðartónlistarsena. Þar er fullt af f lottu ungu tónlistar- fólki sem er að gera spennandi hluti, en synd að ekki sé mikill vettvangur fyrir það. Annað hvort er í boði risa- stórt flott tónlistarhús, eða einhver pínulítill staður.“ Eivør segir að þar þurfi að brúa bilið, en þó sé þróunin í rétta átt. „Þegar ég byrjaði var ekki hægt að spila tónleika neins staðar. Ég byrj- aði að spila í böndum þegar ég var 13 ára og einu tækifærin snerust um að spila á dansleikjum. Fólk fór eig- inlega ekki á tónleika. Ég var þannig alltaf að spila fyrir dansi og þurfti að hafa mömmu með, ég var svo ung og ég mátti ekki vera þarna.“ Hún segir að færeyska tónleikahefðin hafi með árunum þróast og síðan náð út fyrir böllin. Fyrst um sinn hafi nokkrir gestir hreiðrað um sig nær sviðinu til þess að hlusta, en síðan hafi þeim farið fjölgandi. Og nú sé komin sena. „Ég byrjaði að spila með bandi sem heitir Clickhaze upp úr 1999. Þetta var hópur tónlistarunnenda sem höfðu ástríðu gagnvart tónlist, af því tagi sem ég gat tengt við.“ Í framhaldinu stofnaði hópurinn tónlistarklúbbinn GRÓT, sem stóð fyrir litlum tónleikum. „Fljótlega stækkaði þetta og varð að samfélagi tónlistarunnenda og Fyrir mér er aðalmálið það að koma fram, en tónlistin breytist, fer á flug og fær vængi þegar maður spilar. Listamenn þurfa að vera smá egóistar Eivør sneri sér að lagasmíðum og tónleika- haldi í streymi þegar Covid-19 faraldurinn skall á, og fékk algjört sjokk yfir þeim gríðarlega fjölda sem fylgdist með. Fréttablaðið/ Valli Nína Richter ninarichter @frettabladid.is tónlistarsenan fór að blómstra fyrir alvöru.“ Hún bætir við að margt hafi gerst í tónlistarsenu Færeyja síðustu 20 árin. „Í dag eru Færeyingar mjög áhuga samir um alls konar tón- leikahald og það gleður mig rosa- lega mikið.“ Streymi fyrir 100 þúsund manns Eivør er útsjónarsöm og fann nýja fleti á tónlistarferlinum þegar hún gaf út plötuna Segl, í miðjum heims- faraldri. „Fyrir mér er aðalmálið það að koma fram, en tónlistin breytist, fer á flug og fær vængi þegar maður spilar.“ Hún var þó snögg að aðlaga sig breyttum aðstæðum. Hún hélt röð smærri útgáfutónleika í Nor- ræna húsinu í Færeyjum, hljóðritaði og gaf út á plötu, og gat þannig fært hlustendum tónleikaupplifunina, að einhverju leyti, heim í stofu. Hún hefur á seinni árum tekið tæknina og samfélagsmiðla í sátt. „En það er heilmikil vinna sem fylgir þessu. Fyrir nokkrum árum hafði ég alls ekki séð fyrir mér að ég gæti orðið þessi samfélags- miðlatýpa. En svo hef ég reynt að læra aðeins inn á þetta og reynt að skipuleggja tímann. Það er auðvelt að vera alltaf í símanum, en ég reyni að slökkva inni á milli. Þetta var allt svo skrýtið, þegar öllum tónleikum var aflýst.“ Eivør segist þá hafa snúið sér að lagasmíðum og tónleikum í streymi, að heiman. „100 þúsund manns horfðu á fyrsta streymið á Youtube,“ segir hún og hlær. „Ég var í algjöru sjokki, ekki búin að greiða mér almennilega. En það var magnað að upplifa hvernig heimurinn leitaði leiða til að tengjast og koma saman.“ Allt í einu kemur kaos Hún segir síðustu tvö ár hafa verið krefjandi: „Ég fékk engar tekjur og maður þurfti bara að bjarga sér.“ Hún bætir síðan við að hún hafi málað mjög mikið og segist nota myndlistina til að fá útrás fyrir sköpunargleðina: „Ég mála þegar ég er ekki að ferðast. Það er þessi löngun til að skapa eitthvað, ég verð pínu klikkuð ef ég næ ekki að losa um þessar tilfinningar.“ Hún ítrekar þó að hún hafi Ég mála þegar ég er ekki að ferðast. Það er þessi löngun til að skapa eitthvað, ég verð pínu klikkuð ef ég næ ekki að losa um þessar tilfinn- ingar.  36 Helgin 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFréttabLaðið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.