Fréttablaðið - 27.11.2021, Síða 38
Eivør hefur drepið niður fæti í alls konar tónlistarstefnum og má þar nefna djass, klassíska tónlist og elektrónískt popp.
meðvitað valið tónlistina fram
yfir myndlistina. „Maður getur ekki
gefið sig allan í bæði. En ef ég finn
tíma, þá mála ég.“ Hún útilokar ekki
að halda málverkasýningu og bætir
við: „Ég er örugglega komin með nóg
af málverkum í það.
Ég sæki alltaf í kyrrðina og nátt-
úruna, og að vera ein með sjálfri
mér. Það hjálpar mér að endurstilla
mig og fá yfirsýn.“
Hún nefnir í því samhengi bústað
í Færeyjum. „Hann er aðeins í burtu
frá öllu, rétt við sjóinn. Þar er ekkert
að gerast, engin búð og ekki neitt.“
Hún sækir kyrrðina líka í hug-
leiðslu og segir áhugann alltaf hafa
verið til staðar, en fyrir ári síðan hafi
hún byrjað fyrir alvöru. „Ég fann að
ég þurfti að róa hugann. Ég er alltaf
með svo margt í gangi og mikið af
pælingum. Mér finnst gaman að
gera alls konar! Svo allt í einu kemur
kaos, og þá þarf ég þessa ró, þannig
að ég geti fengið aftur þessa orku.“
Hún segist nota TM-hugleiðslu-
aðferðina, sem er skammstöfun á
enska heitinu Transcendal Medita-
tion. „Ég var búin að heyra af þessu
frá mörgum í listasenunni, þetta er
svona David Lynch-hugleiðslan,“
segir hún og glottir. „Hann er til
dæmis að kenna þetta. Þessi hug-
leiðsla er mjög einföld og það er
hægt að gera hana alls staðar og
hvenær sem er.“
Margir metalhausar að hlusta
Eivør ítrekar mikilvægi þess að fara
eigin leiðir. „Það er auðvelt að brenna
út ef maður nærir ekki listina. Mikil-
vægt að halda fast í það að gera það
sem mann langar að gera. Listamenn
þurfa að vera smá egóistar, maður
þarf bara að skapa. Maður er kannski
með einhverja hugmynd sem mann
langar að gera og kveikja líf í, en um
leið og maður fer að reyna að gera
þetta fyrir einhvern annan, þá missir
maður stöffið.
Þetta er eitthvað sem er mjög
mikilvægt í listinni, maður þarf
að vera sannur. Ég skapa alltaf það
sem mig langar að heyra. Svo er fólk
ekki alltaf sammála því,“ segir hún
glettin.
Eivør hefur drepið niður fæti í
alls konar tónlistarstefnum og má
þar nefna djass, klassíska tónlist
og elektrónískt popp. Þó hefur hún
alltaf haldið fast í þjóðlagataugina
og segir hlustendahópinn því æði
fjölbreyttan: „Alls konar fólk er að
hlusta; krakkar, gotharar og svo
eldri borgarar. Og það er svo mikið
af metalhausum á tónleikum úti í
heimi.“
Og það er sterk tenging við málm-
tónlistarsenuna á nýjustu plötu
Eivarar. Norski tónlistarmaðurinn
Einar Selvik á með henni lag á nýju
plötunni, en hann er fyrrverandi
meðlimur svartmálms-bandsins
Gorgoroth, auk þess að fara fyrir
hinu geysivinsæla þjóðlagabandi
Wardruna, sem treður upp í Hörpu
seinna á þessu ári. Þá hefur hann
einnig samið tónlist fyrir sjónvarps-
þættina Vikings.
Þau Eivør eiga því kvikmynda-
tónlistina sameiginlega, en hún
samdi til dæmis tónlist fyrir sjón-
varpsþættina The Last Kingdom.
„Ég hef mikið verið að vinna í kvik-
myndatónlist undanfarin ár. Það er
ákveðin stemning þar sem hefur haft
áhrif á hvernig ég pæli í minni tón-
list. Allt sem maður fer í gegnum, á
þessari ferð, hefur haft einhver áhrif
á hvernig næsta verkefni verður.“
Hún segir hljóðheim kvikmynda-
tónlistarinnar þannig heyrast á nýj-
ustu plötunni: „Heimurinn sem ég
er í núna er svolítið mikið í elektró-
ník. En svo þarf ég alltaf að fara í líf-
rænu hliðina líka. Mér finnst alltaf
gott að finna jafnvægi á milli þess
sem er alveg forritað og þess sem er
spilað.
Stundum hef ég fengið mikinn
innblástur úr öðrum listformum,
frá málverkum en líka bíómyndum.
Það er stundum eins og listaverkið
þekki mann, og kveiki í manni til-
finningu.“
Heppin og þakklát
Aðspurð segir Eivør #MeToo-hreyf-
inguna mikilvæga í tónlistarbrans-
anum, og nefnir í því samhengi við-
horf til kvenna í tónlist. „Það er oft
eins og fólk haldi að vegna þess að
ég sé kona, þá semji ég ekkert sjálf og
pródúseri ekkert. En það er aðeins
að breytast, fólk er að pæla meira í
þessu.“ Hún segist þó sakna þess að
sjá ekki f leiri konur í tónlist: „Ekki
bara söngkonur heldur líka pródú-
senta, trommuleikara og bassa-
leikara.
Ég hef kannski verið heppin. Ég
hef alltaf unnið með karlmönnum
sem hafa borið virðingu fyrir því
sem ég er að gera.“ Hún ítrekar
þó að í stærra samhenginu halli á
konur.
„Ég sá að Björk talaði um í viðtali
að stelpur þyrftu að segja allt tíu
sinnum sem körlum nægði að segja
einu sinni. Þá fór ég að pæla svolítið
mikið í þessu, og að þetta væri rétt
hjá henni. En maður er bara svo
vanur ástandinu.“
Spennir og spengir upp lögin
Eivør heldur í tónleikaferð um
Bandaríkin eftir áramót. „Ég er að
fara á fyrsta headline-túrinn minn
í Ameríku, það er mjög spennandi.
Ég er búin að taka eitt og eitt gigg í
Bandaríkjunum en hef aldrei tekið
heilan túr, svona einn og hálfan
mánuð. En ég er góð í að vera á tón-
leikaferðalagi, mér finnst gaman að
komast í f læði frá einum tónleikum
til þeirra næstu. Mér finnst gaman
að spila lögin oft, þar er eins og
maður spenni þau og spengi upp og
þá kemur eitthvað nýtt.“ Hún bætir
síðan við: „Svo er auðvitað spenn-
andi að hitta hlustendur.“
Jólatónleikarnir verða í Eldborg
5. desember. Þar hyggst Eivør taka
blöndu af lögum frá ferlinum í bland
við jólatónlist: „Ég kem með bandið
mitt og nokkra leynigesti, ég get
auðvitað ekki sagt frá því hverjir
þeir eru. En bandið er svona fjöl-
skyldan á tónleikaferðalaginu. Þetta
eru allt strákar frá Færeyjum, en ég
er til dæmis búin að spila með Mika-
el, bassaleikaranum mínum, í 23 ár.
Trommuleikarinn og píanistinn eru
svo nýjasta viðbótin í hópinn.“
Hún ítrekar í lokin þakklæti til
tónleikagesta og aðdáenda, og segir
að ekkert sé sjálfsagt. „Ég er alltaf
mjög þakklát, tek því ekki sem
gefnu. Það er gott að fólk nenni að
hanga með mér í þessari brjáluðu
ferð,“ segir hún og brosir. n
Ég hef kannski verið
heppin. Ég hef alltaf
unnið með karlmönn
um sem hafa borið
virðingu fyrir því sem
ég er að gera.
Alls konar fólk er að
hlusta; krakkar, goth
arar og svo eldri borg
arar. Og það er svo
mikið af metalhausum
á tónleikum úti í
heimi.
Víkurhvarfi 6 - 203 Kópavogur - Sími 412 1700 - idex@idex. is
www.idex.is
Byggðu til framtíðar með lausnum frá IDEX
Betri gluggar - betri heimili
38 Helgin 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFréttablaðið