Fréttablaðið - 27.11.2021, Page 41
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 27. nóvember 2021
Encanto býr til einstaka jólagleði í
litadýrð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Jólamynd Disney, Encanto, var
frumsýnd um allan heim á mið-
vikudag. Mikil tilhlökkun hefur
verið eftir myndinni, enda þykir
hún einstaklega fallega gerð.
Myndin er tölvugerð teiknimynd
og er sextugasta teiknimyndin úr
smiðju Walt Disney í fullri lengd.
Aðstandendur myndarinnar komu
saman fyrr í þessum mánuði til
að sjá myndina, en leikarar sem
ljá persónum raddir sínar voru að
hittast í fyrsta sinn. Allir þurftu að
vera bólusettir og sýna nýtt nei-
kvætt Covid-próf.
Höfundar tónlistar í myndinni
eru margverðlaunaðir, Lin-Manuel
Miranda og Germaine Franco,
sem er fyrsta kventónskáldið til
að gera tónlist við Disney-mynd.
Myndin gerist í Kólumbíu og
fjallar um óvenjulega fjölskyldu
sem býr á töfrandi stað sem nefnist
Encanto. Hvert einasta barn sem
þar fæðist býr yfir ofurkrafti nema
eitt, Mirabel.
Tólf íslenskir leikarar
Salka Sól talar fyrir Mirabel í
íslensku útgáfunni en í þeirri
ensku er það Stephanie Beatriz.
Hún er hvað þekktust fyrir leik
sinni í Brooklyn Nine-Nine. Alls
fara tólf íslenskir leikarar með tal-
hlutverk í myndinni.
Myndin hefur fengið góða gagn-
rýni og öll smáatriði þykja stór-
kostleg. Litadýrð og líflegt dýralíf
gleður áhorfendur. Myndin ætti því
að heilla yngri sem eldri um jólin. n
Salka Sól raddar
Mirabel í Encanto
Hjá Birgisson er mikið úrval af glæsilegum gólfefnum, jafnt parketi sem flísum. Öll gólfefni og hurðir eru á tilboðinu um helgina. mYnd/BIRGIsson
Aðventutilboð hjá Birgisson
Það er mikið um að vera hjá Birgisson þessa dagana. Boðið er upp á góðan afslátt og fría
heimsendingu um land allt. Nú er rétti tíminn til að fjárfesta í parketi, flísum og hurðum. 2