Fréttablaðið - 27.11.2021, Síða 60

Fréttablaðið - 27.11.2021, Síða 60
domstolasyslan.is Lögfræðingur Helstu verkefni og ábyrgð Starfið er fjölbreytt og felur m.a. í sér að leysa úr lögfræðilegum álitaefnum á verksviði dómstólasýslunnar, svara erindum svo sem frá dómsmálaráðuneytinu, öðrum stjórnvöldum, Alþingi og almenningi, veita umsagnir um lagafrumvörp, undirbúa setningu reglna og annast eftirlit með framkvæmd reglna sem dómstólasýslan hefur sett svo og þjónusta nefndir sem aðsetur hafa hjá henni. Menntunar og hæfnikröfur » Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi » Haldgóð reynsla af störfum á sviði lögfræði og þekking á stjórnsýslurétti » Reynsla af störfum í stjórnsýslu og reynsla og þekking af starfsemi dómstóla er æskileg » Góð tölvu- og tæknifærni » Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti » Mjög góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku. Gott vald á einu Norðurlandamáli er æskilegt » Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni » Sjálfstæði, skilvirkni og nákvæmni í vinnubrögðum » Mjög góð samvinnu- og samskiptahæfni Um dómstólasýsluna Dómstólasýslan annast og er í fyrirsvari fyrir sameiginlega stjórnsýslu dómstólanna allra með það að markmiði að efla og styrkja sameiginlega stjórnsýslu þeirra og um leið stuðla að samræmingu í framkvæmd er varðar innri starfsemi allra dómstiganna þriggja. Dómstólasýslan gerir tillögur um hvað eina sem getur orðið til úrbóta í störfum dómstóla og löggjöf sem um þá gilda. Framundan eru krefjandi verkefni við að leiða dómstólana áfram inn í nýja tíma stafrænnar umbreytingar og rafræns réttarfars. Endurupptökudómur, nefnd um dómarastörf og dómnefnd um mat á hæfni umsækjenda um embætti dómara hafa aðsetur hjá dómstólasýslunni og njóta þjónustu hennar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Haraldsdóttir framkvæmdastjóri í síma 432- 5010. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er fyrir ástæðu umsóknar og hæfni til að gegna starfinu. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Um fullt starf er að ræða. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Stéttarfélags lögfræðinga við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Sótt er um starfið á alfred.is Umsóknarfrestur er til og með 12. desember nk. Dómstólasýslan leitar að öflugum og áhugasömum lögfræðingi til að starfa að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum. Tækjavarðastöður Borgarholtsskóli Eftirfarandi stöður eru lausar við Borgarholtsskóla frá 1. janúar 2022. Laust er til umsóknar 100% starf tækjavarðar iðngreina við Borgarholtsskóla. Í starfi tækjavarðar iðngreina felst fyrst og fremst að þjónusta kennslu í málm- og bíliðngreinum ásamt því að vera hluti af stoðteymi skólans sem heyrir undir rekstrarstjóra fasteigna. Menntunar- og hæfnikröfur. Leitað er eftir einstaklingi sem: • hefur iðnmenntun, sérstaklega á sviði málmiðn- greina og/eða bíliðngreina eða sem hefur ríka reynslu af að vinna á þessu sviði • hefur ríka þjónustulund og getur starfað sjálf- stætt. • getur séð um birgðastöðu tengda kennslunni • getur séð um minniháttar viðhald á kennslu- tækjum og fasteignum skólans. Laust er til umsóknar 55% starf tækjavarðar listnáms við Borgarholtsskóla. Tækjaverði í listnámi er ætlað að mynda hlekk í öflugu teymi tækjavarða undir stjórn rekstrarstjóra fasteigna við að þjónusta skólastarfið almennt en þó sérstaklega nemendur og kennara listnáms- brautar. Tækjavörður ber ábyrgð á öllu sem við- kemur skráningu, flokkun, merkingum, útlánum og innköllun tækja og sér um að uppfæra tækja- lista listnámssviðs. Tækjavörður þarf að hafa áhuga og þekkingu á margmiðlunar-, ljósmynda- og kvikmyndabúnaði og geta miðlað þekkingu sinni til notenda. Æskilegt er að hann geti gert við einfaldar bilanir og nauðsynlegt að hann sé nákvæmur og sam- viskusamur í skráningu útlána. Tækjavörður iðngreina heyrir beint undir rekstrar- stjóra fasteigna og tækjavörður listnáms undir rekstrarstjóra fasteigna og sviðsstjóra listnáms. Kjör eru skv. kjarasamningi ríkisins við Sameyki. Öll kyn eru hvött til að sækja um. Nánari upplýsingar um störfin veitir Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, skólameistari Borgarholtsskóla, asta.adalsteinsdottir@borgo.is. Umsókn ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til skólameistara fyrir 6. desember 2021. RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri. 14 ATVINNUBLAÐIÐ 27. nóvember 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.