Fréttablaðið - 27.11.2021, Blaðsíða 60
domstolasyslan.is
Lögfræðingur
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið er fjölbreytt og felur m.a. í sér að
leysa úr lögfræðilegum álitaefnum á verksviði
dómstólasýslunnar, svara erindum svo sem frá
dómsmálaráðuneytinu, öðrum stjórnvöldum,
Alþingi og almenningi, veita umsagnir um
lagafrumvörp, undirbúa setningu reglna og
annast eftirlit með framkvæmd reglna sem
dómstólasýslan hefur sett svo og þjónusta
nefndir sem aðsetur hafa hjá henni.
Menntunar og hæfnikröfur
» Fullnaðarnám í lögfræði með embættis-
eða meistaraprófi
» Haldgóð reynsla af störfum á sviði lögfræði
og þekking á stjórnsýslurétti
» Reynsla af störfum í stjórnsýslu og reynsla
og þekking af starfsemi dómstóla er æskileg
» Góð tölvu- og tæknifærni
» Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá
sig í ræðu og riti
» Mjög góð færni til að tjá sig í ræðu og riti
á ensku. Gott vald á einu Norðurlandamáli
er æskilegt
» Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
» Sjálfstæði, skilvirkni og nákvæmni í
vinnubrögðum
» Mjög góð samvinnu- og samskiptahæfni
Um dómstólasýsluna
Dómstólasýslan annast og er í fyrirsvari fyrir
sameiginlega stjórnsýslu dómstólanna allra
með það að markmiði að efla og styrkja
sameiginlega stjórnsýslu þeirra og um leið
stuðla að samræmingu í framkvæmd er varðar
innri starfsemi allra dómstiganna þriggja.
Dómstólasýslan gerir tillögur um hvað eina
sem getur orðið til úrbóta í störfum dómstóla
og löggjöf sem um þá gilda. Framundan eru
krefjandi verkefni við að leiða dómstólana áfram
inn í nýja tíma stafrænnar umbreytingar og
rafræns réttarfars. Endurupptökudómur, nefnd
um dómarastörf og dómnefnd um mat á hæfni
umsækjenda um embætti dómara hafa aðsetur
hjá dómstólasýslunni og njóta þjónustu hennar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín
Haraldsdóttir framkvæmdastjóri í síma 432-
5010. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn skal
fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er fyrir ástæðu umsóknar og hæfni til að
gegna starfinu.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu
gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur
rennur út. Um fullt starf er að ræða. Laun
greiðast samkvæmt kjarasamningi Stéttarfélags
lögfræðinga við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Sótt er um starfið á alfred.is
Umsóknarfrestur er til og með
12. desember nk.
Dómstólasýslan leitar að öflugum og áhugasömum lögfræðingi til að starfa að
fjölbreyttum og krefjandi verkefnum.
Tækjavarðastöður
Borgarholtsskóli
Eftirfarandi stöður eru lausar við Borgarholtsskóla
frá 1. janúar 2022.
Laust er til umsóknar 100% starf tækjavarðar
iðngreina við Borgarholtsskóla.
Í starfi tækjavarðar iðngreina felst fyrst og fremst
að þjónusta kennslu í málm- og bíliðngreinum
ásamt því að vera hluti af stoðteymi skólans sem
heyrir undir rekstrarstjóra fasteigna.
Menntunar- og hæfnikröfur.
Leitað er eftir einstaklingi sem:
• hefur iðnmenntun, sérstaklega á sviði málmiðn-
greina og/eða bíliðngreina eða sem hefur ríka
reynslu af að vinna á þessu sviði
• hefur ríka þjónustulund og getur starfað sjálf-
stætt.
• getur séð um birgðastöðu tengda kennslunni
• getur séð um minniháttar viðhald á kennslu-
tækjum og fasteignum skólans.
Laust er til umsóknar 55% starf tækjavarðar
listnáms við Borgarholtsskóla.
Tækjaverði í listnámi er ætlað að mynda hlekk í
öflugu teymi tækjavarða undir stjórn rekstrarstjóra
fasteigna við að þjónusta skólastarfið almennt en
þó sérstaklega nemendur og kennara listnáms-
brautar. Tækjavörður ber ábyrgð á öllu sem við-
kemur skráningu, flokkun, merkingum, útlánum
og innköllun tækja og sér um að uppfæra tækja-
lista listnámssviðs.
Tækjavörður þarf að hafa áhuga og þekkingu á
margmiðlunar-, ljósmynda- og kvikmyndabúnaði
og geta miðlað þekkingu sinni til notenda.
Æskilegt er að hann geti gert við einfaldar bilanir
og nauðsynlegt að hann sé nákvæmur og sam-
viskusamur í skráningu útlána.
Tækjavörður iðngreina heyrir beint undir rekstrar-
stjóra fasteigna og tækjavörður listnáms undir
rekstrarstjóra fasteigna og sviðsstjóra listnáms.
Kjör eru skv. kjarasamningi ríkisins við Sameyki.
Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ásta Laufey
Aðalsteinsdóttir, skólameistari Borgarholtsskóla,
asta.adalsteinsdottir@borgo.is.
Umsókn ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti
til skólameistara fyrir 6. desember 2021.
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
14 ATVINNUBLAÐIÐ 27. nóvember 2021 LAUGARDAGUR