Fréttablaðið - 27.11.2021, Qupperneq 78
Rafmagnsgítar Rafmagnsbassi Klassískur gítar KassabassiKassagítar Gítarbanjó
Fiðla
26.900
Heyrnartól
Míkrafónar
í úrvali
Þráðlaus míkrafónn
Gítarinn ehf
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • S. 552 2125 • gitarinn@gitarinn.is • www.gitarinn.is
Hljómborð í úrvali
Ukulele
Kajun tromma
í úrvali
Jólagjafir
Gítarmagnari
fyrir rafmagnsgítara
Magnari fyrir kassagítar
og míkrafón
Kassagítarar
á tilboði
Hljómborð
á tilboði
Brynjólfur Björnsson, kaup-
maður í Brynju, hefur staðið
þar vaktina í 55 ár. Hann
tekur vitaskuld þátt í versl-
unarháttum nútímans.
thordisg@frettabladid.is
„Mér þykja Black Friday og Cyber
Monday skemmtileg viðbót við
lífið og tilveruna. Við Íslendingar
erum nýjungagjarnir og gleypum
allt frá Ameríku, en mér finnst
skrýtið þegar afslættir þessa daga
standa fram til 10. desember, þar
sem þeir eru stílaðir inn á þessa
helgi og svo búið.“
Þetta segir Brynjólfur Björns-
son, kaupmaður og eigandi
Verslunarinnar Brynju, sem staðið
hefur opin gestum og gangandi á
Laugavegi 29 í 102 ár.
„Brynja er síungur öldungur og
alltaf með puttann á púlsinum,“
segir Brynjólfur og hlær. Hann
hefur fylgir því nýjasta eftir, þótt
verslunin sé nú orðin meira en
aldargömul.
„Við höfum alltaf tekið þátt í
Black Friday og Cyber Monday,
en gefum hins vegar ekki 30 til
70 prósenta afslátt eins og títt er,
því við f lytjum inn svo mikið af
vörum sjálfir. Við leggjum á þær
Síungur öldungur með puttann á púlsinum
Brynjólfur í
Brynju segist
vissulega sakna
þess þegar
Laugavegurinn
var aðalversl-
unargatan í
Reykjavík,en
sem betur fer
haldi enn margir
í þá hefð að
labba Lauga-
veginn á að-
ventunni til að
kaupa jólagjafir
og komast í gott
jólaskap.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
hóflega álagningu sem viðskipta-
vinir njóta árið um kring, en í til-
efni þessara tilteknu daga bjóðum
við ýmis góð tilboð,“ greinir
Brynjólfur frá.
Tilboðin má til dæmis finna á
heimasíðunni brynja.is.
„Eftir að við opnuðum heima-
síðuna hefur verslun þar inni
aukist ár frá ári og þaðan seljum
við mikið um allt land. Það er
mikill þægindaauki fyrir lands-
byggðarfólk að geta skoðað og
keypt vörur á netinu, og æ f leiri
sem læra að nýta sér vefverslun.
Héðan úr Reykjavík er líka mikið
pantað á netinu og sótt í búðina,
en Reykvíkingum þykir gott að
geta skotist eftir tilbúnum pakka
úr vefversluninni; það er f ljótlegra
en að stoppa við í búðinni og leita
þar hófanna.“
Eldist vel í líflegri verslun
Brynjólfur hefur staðið vaktina
við búðarborðið í Brynju í 55 ár.
„Ég er mættur til vinnu klukkan
átta á morgnana og fer ekki heim
fyrr en hálf sjö. Ég er enn full-
frískur til heilsunnar en kannski
ekki alveg jafn sprækur og ég var á
árum áður, enda verð ég áttræður
í febrúar. Ég held það fari vel með
mann að vinna í jafn líf legri versl-
un og Brynju; ég tala nú ekki um
við Laugaveginn, þar sem maður
hittir svo margt fólk og útlendir
ferðamenn hafa aukið enn á fjöl-
breytileikann. Ég hef gaman af því
að fá útlendinga til mín í búðina
og inn úr dyrunum koma iðulega
Kanar sem versla mikið og tala
um hversu gaman þeim þykir að
koma inn í jafn gamla og rótgróna
búð af þessu tagi, sem þeim eru
horfnar í Ameríku.“
Ásamt Brynju standa tveir aðrir
öldungar í verslunarrekstri við
Laugaveg; Herrafataverslun Guð-
steins og Bakarí Sandholt.
„Tímarnir hafa breyst mikið
síðan ég byrjaði að vinna í Brynju
á sínum tíma og ég sakna þess
þegar Laugavegur, Bankastræti og
Austurstræti voru einu staðirnir
þangað sem allir komu til að gera
jólainnkaupin. Þá ríkti líka allt
annar hugsunarháttur, en fólk
heldur áfram að koma í miðbæinn
til að upplifa jólastemninguna,
kaupa jólagjafir og hitta mann og
annan. Utandyra er fólk afslapp-
aðra og gefur sig á tal við fólk sem
sést kannski sjaldan. Slíka fagn-
aðarfundi sé ég oft í Brynju,“ segir
Brynjólfur, glaður í bragði.
Ekki enn sofnað ofan í diskinn
Brynjólfur segir Black Friday og
Cyber Monday hafa sín áhrif á
jólasöluna.
„Fólk nýtir sér tilboðin og
kaupir jólagjafir. Í jólapakkana fer
allt mögulegt frá okkur, verkfæri
og alls kyns dót, því við erum
með drjúgt og mikið vöruúrval
þótt búðin sé ekki stór. Hér fæst
svo margt sem hvergi fæst annars
staðar því við f lytjum það inn
sjálf. Nú eru lærisstandar til
dæmis vinsæl gjöf, fyrir hangikjöt
og tvíreykt kjöt sem stendur þá í
standinum og fólk getur fengið sér
f lís af á borðinu,“ upplýsir Brynj-
ólfur og er kominn í jólaskap.
„Þetta er mikill uppáhalds-
tími hjá mér og þótt vinnudagar
aðventunnar séu langir og opið
til 22 eftir miðjan desember, gerir
fólkið og gleðin í loftinu það allt
þess virði. Þegar Laugavegurinn
var og hét helsta verslunargata
landsins var alltaf líf og fjör, og
fólk kemst enn í jólaskap við
það eitt að labba í bæinn, kaupa
jólagjafir og gera sér glaðan dag
á Laugaveginum. Því vona ég
að Laugavegurinn haldi áfram
að vera miðpunkturinn í jóla-
stemningu landsmanna. Það er
ríkt í þjóðarsálinni að ganga niður
Laugaveginn fyrir jól og þegar
snjóar á Þorláksmessu eykur það
enn á jólastemninguna,“ segir
Brynjólfur.
Hann viðurkennir að vera oft
orðinn lúinn þegar aðfangadagur
rennur upp.
„En ég hef ekki enn sofnað ofan
í diskinn minn og næ vitaskuld
að halda mér vakandi með rjúpur
á borðum. Ég fór í fimmtíu ár á
rjúpu á Holtavörðuheiði, þar sem
við gistum á sveitabæ í Norðurár-
dal og var þá 15. nóvember alltaf
frátekinn dagur. Annars vaknar
jólagleðin í mínu hjarta í byrjun
desember þegar leikskólarnir
koma með káta krakka sem labba
um Laugaveg og dást að jólaljós-
um og skreytingum. Það er gaman
að sjá hversu börnin eru hrifnæm
og verða vitni að einskærri gleði
þeirra og eftirvæntingu.“ n
Jólagleðin í mínu
hjarta vaknar í
byrjun desember þegar
leikskólabörn labba um
Laugaveginn og dást að
jólaljósunum.
10 kynningarblað A L LT 27. nóvember 2021 LAUGARDAGUR