Fréttablaðið - 27.11.2021, Síða 84
Tónskáldið Þórður Magnússon
gaf nýlega út tónlist við kvik-
myndina Saga Borgarættarinnar,
fyrstu leiknu kvikmyndina sem
tekin var upp á Íslandi.
arnartomas@frettabladid.is
Fyrsta leikna kvikmyndin sem tekin var
upp á Íslandi, Saga Borgarættarinnar,
fagnar 100 ára afmæli sínu í ár. Í tilefni af
tímamótunum var kvikmyndin nýlega
endurgerð og var fyrr í mánuðinum sýnd
í Bíó Paradís. Myndin byggir á skáldsögu
Gunnars Gunnarssonar og var tekin upp
á Keldum á Rangárvöllum, Reykholti í
Borgarfirði, Reykjavík og Hafnarfirði.
„Kvikmyndasafn Íslands og Gunn-
arsstofnun ákváðu að ráðast í stafræna
endurgerð á myndinni,“ segir Þórður
Magnússon tónskáld, sem sá um að
semja tónlistina fyrir endurgerðina.
„Þá þurfti setja einhverja tónlist við
og ákveðið var að semja nýja tónlist í
stað þess að vera að nota gamla eins og
hingað til hefur verið gert.“
En hvernig byrjar maður á að semja
tónlist fyrir 100 ára gamla kvikmynd?
„Maður byrjar á því að taka ákvarð-
anir – hvað hentar og hvað hentar
ekki?“ segir Þórður. „Ég tók þá ákvörð-
un að reyna að fylgja tímanum, að vera
staddur þarna í kringum 1920 tónlistar-
lega séð. Nálgunin var ekki eins og þegar
Giorgio Moroder notaði meðal annars
tónlist eftir Queen við endurgerð Metro-
polis á sínum tíma.“
Tónlist Þórðar við myndina var nýlega
gefin út og er aðgengileg á veitum á borð
við Spotify.
Myndin kom á óvart
Þórður segir að myndin sjálf hafi komið
honum mikið á óvart.
„Ég hafði heyrt um Sögu Borgarættar-
innar en aldrei séð hana, þegar ég fékk
þetta verkefni. Ég var með þá fordóma
að þetta hlyti að vera tæknilega gölluð
mynd því hún væri svo gömul og gerð
við svo frumstæðar aðstæður,“ segir
hann. „Síðan kemur í ljós að myndin
er býsna tæknilega fullkomin og eins
góð og kvikmyndir gerðust á þessum
tíma. Danska tökuliðið sem vann að
myndinni var í raun með þeim fremstu
í heiminum á þessum tíma.“
Þá segir Þórður að myndin standi
einnig á eigin fótum, utan tækninnar.
„Kvikmyndagerð er svo ung á þessum
tíma að ég hélt kannski að það væri ekki
búið að fullkomna ákveðna dramatík
og hvað væri hægt að gera í bíó,“ segir
hann. „En myndin smellur og leikurinn
er býsna góður.“
Guðmundur Thorsteinsson, eða
Muggur eins og hann er iðulega kall-
aður, fer með eitt af aðalhlutverkunum
í myndinni, og segir Þórður að hann hafi
verið prýðisleikari.
„Hann er býsna góður leikari,“ segir
hann. „Hann leikur aðalsöguhetju mynd-
arinnar, Ormar, bæði sem ungan mann
og miðaldra, og tekst ansi vel til.“ ■
Samdi nýja tónlist við fyrstu
kvikmynd tekna upp á Íslandi
Þórður ákvað að halda sig við tónlist sem samsvaraði tíðarandanum. Fréttablaðið/Ernir
Muggur stóð sig með prýði í hlutverki Ormars. Mynd/SkjáSkot
Maður byrjar á því að taka
ákvarðanir – hvað hentar
og hvað hentar ekki?
Ástkær systir, mágkona og frænka,
Helga Gunnarsdóttir
lést á Landspítalanum Fossvogi
mánudaginn 15. nóvember.
Útförin hefur farið fram.
Gunnar Gunnarsson Harpa Harðardóttir
Herdís Erna Gunnarsdóttir Hörður Gauti Gunnarsson
Gunnar Helgi Gylfason, Einar Gylfason,
Hanna Lára Gylfadóttir
Elskulegi eiginmaður minn,
lífsförunautur og ferðafélagi,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Reynir Benediktsson
skipstjóri,
lést á sjúkrahúsi í Alicante þann
11. nóvember. Útförin fer fram í kyrrþey
frá Ástjarnarkirkju, Hafnarfirði, 2. desember kl. 14.00 að
viðstöddum fámennum hópi aðstandenda og vina.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Umhyggju,
félag langveikra barna.
Jóhanna Gunnarsdóttir
Rúnar Reynisson
Einar Ingi Reynisson
Benedikt Reynisson Rósa Óskarsdóttir
Gunnar Reynisson Sigríður Kristín Kristþórsdóttir
Kristþór Reynir Gunnarsson, Ása Margrét Gunnarsdóttir
Konráð Ari, Reynir Erling og Óskar Glói Benediktssynir
Ástkær móðir okkar, amma,
langamma og langalangamma,
Guðmunda Jóhanna
Dagbjartsdóttir
Sörlaskjóli 9,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 2. desember kl. 13.00.
Í ljósi aðstæðna verða einungis hennar
nánustu viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á slóðinni: laef.is/munda
Börnin.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Okkar innilegustu þakkir til allra sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju,
vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Andrésar Jónassonar
Kríulandi 17, Garði.
Guðlaug Bragadóttir
Bragi Andrésson Anna Grabowska
Jónas Andrésson
Valur Andrésson Rósa Marteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
44 Tímamót 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFréTTablaðiðTímAmóT FréTTablaðið 27. nóvember 2021 LAUGARDAGUR