Fréttablaðið - 27.11.2021, Síða 86
Í nýrri íslenskri prjónabók eru
teknar saman fjölbreyttar upp-
skriftir að sokkaprjóni og formál-
inn er úr ólíklegri átt.
arnartomas@frettabladid.is
Hönnuðurinn Hélène Magnússon gaf
nýlega út nýja prjónabók, Sokkar frá
Íslandi, sem inniheldur eitt og annað
um sögu sokkaprjóns á Íslandi og upp-
skriftir að séríslenskum sokkapörum.
Hélène hefur áður gefið út verðlauna-
prjónabækur, en þetta er í fyrsta skipti
sem hún gefur út bók á eigin spýtur.
„Ég fór aðeins að rannsaka sokkana
á Íslandi, til dæmis þá sem má finna á
söfnum,“ segir Hélène. „Ég hef áður gefið
út prjónabækur en ákvað að taka sokka
fyrir núna því þeir eru bæði einfaldir og
skemmtilegir. Það var rosa spennandi
að afhjúpa söguna á bak við sokkana og
reyna að setja nútímablæ á þá.“
Hélène segist hafa reynt að hafa upp-
skriftirnar aðgengilegar fyrir byrjendur
og lengra komna. Bókin inniheldur
sautján sokkauppskriftir með sterkum
íslenskum blæ, en Hélène sótti inn-
blástur í gamla íslenska sokka, eldgaml-
ar uppskriftir, en einnig í hefðbundna
íslenska vettlinga. Sokkarnir eru prjón-
aðir að ofan eða frá tánum, með ansi
mörgum af brigðum á hælum og tám,
og alls kyns aðferðir notaðar.
„Ein uppskriftin í bókinni er vest-
firskir sokkar, sem er bara eitthvað sem
ég bjó til,“ segir Hélène og hlær. „Laufa-
viðarvettlingar eru til og ég dró inn-
blásturinn frá þeim. Maður sér strax
hvaðan innblásturinn kemur!“
Sokkabandið sem notað er í bókinni,
Katla Sokkaband, er hannað af Hélène
sjálfri fyrir sokkaprjón, en það er þriðja
garnið sem hún hefur framleitt úr sér-
valinni íslenskri lambsull.
„Það er ekki mikið til af fíngerðu
íslensku sokkabandi á Íslandi svo ég bjó
það sjálf til úr hágæða íslenskri lambsull
sem ég sérvel fyrir mýktina.“
Prjónarnir sameina
Formáli bókarinnar stingur aðeins í stúf
en hann er af dýrari kantinum. Hann er
skrifaður af ítalska blaðamanninum og
stjórnmálarýninum Lorettu Napoleoni,
sem er meðal annars þekkt fyrir bækur
sínar um hryðjuverkastarfsemi. Hvernig
kom það nú til?
„Eitt af því sem mér finnst svo gaman
við að prjóna er að maður kynnist
fólki úr svo ólíkum áttum,“ segir
Hélène. „Við Loretta kynntumst í við-
tali sem tekið var við okkur báðar þegar
hún gaf út sína eigin fyrstu prjónabók,
The Power of Knitting. Hún hefur
prjónað alla sína ævi og skrifaði bókina
þegar hún gekk í gegnum persónulega
erfiðleika.“ ■
Nútímablær á eldgamla sokka
Hélène hlaut
Fjöruverðlaunin
á Góugleði árið
2007 fyrir Rósa-
leppaprjón í nýju
ljósi.
Mynd/Aðsend
Það verður varla
íslenskara en
prjónasokkar og
bárujárn.
Hélène reynir að setja eigið stílbragð á
gamlar uppskriftir.
Ítalski blaðamaðurinn Loretta Napo-
leoni er einnig mikil prjónakona og
skrifar formála bókarinnar.
Elsku faðir, tengdafaðir og afi okkar,
Jens Arinbjörn Jónsson
bóndi frá Smyrlahóli,
Haukadal, Dalabyggð.
Síðast til heimilis að
Flétturima 2, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 18. nóvember.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju, fimmtudaginn
2. desember kl. 14, með nánustu ættingjum og vinum.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á MS-félag Íslands.
Arndís Gyða Jensdóttir Gísli Freyr Þorsteinsson
Laufey Jensdóttir Reynir Einarsson
Ingólfur Jensson
Berglind Jóna Jensdóttir Jón Helgi Hreiðarsson
Haukur Emil Vernharðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
systir og amma,
Inga H. Ágústsdóttir
snyrti- og fótaaðgerðafræðingur,
lést þriðjudaginn 9. nóvember.
Útförin fer fram frá Neskirkju
mánudaginn 20. desember kl. 13.00.
Ágúst Guðmundsson Þuríður Reynisdóttir
Lýður Guðmundsson
Sigrún Guðmundsdóttir Kristján Kristjánsson
Lovísa Ágústsdóttir
Ágústa, Tómas, Alexander og María
Elskulegur bróðir okkar,
mágur og frændi,
Þorsteinn Aðalbjörnsson
Norðurgötu 30, Sandgerði,
lést á dvalarheimilinu Lundi
mánudaginn 22. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Jón Aðalbjörnsson Sigríður Sigmundsdóttir
Ragna Aðalbjörnsdóttir Ásgeir Árnason
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát
og útför okkar ástkæra
Guðmundar Péturssonar
Gulaþingi 34, Kópavogi.
F. h. aðstandenda,
Jóna E. Jónsdóttir
Hjartans þakkir til allra þeirra
er heiðruðu minningu
Skúla H. Flosasonar
og sýndu okkur hlýju og kærleika við
andlát hans og útför.
Ljósið fylgi ykkur.
Þóra Björk Sveinsdóttir
Kristín Heiða Skúladóttir Guðni Þór Þorvaldsson
Eyrún Skúladóttir Karl Erlendsson
Nanna Hlín Skúladóttir Steingrímur Birkir Björnsson
Pétur Heiðar Snæbjörnsson
Hrafn Gunnar Hreiðarsson
Ívar Skúli Logason
Valur Snær Logason Sara Rut Jóhannsdóttir
Sveinn Helgi Karlsson
Þóra Kristín Karlsdóttir
Björn Breki Steingrímsson
Sunneva Rán Steingrímsdóttir
Baldvin Hreiðar Hrafnsson
Hjartans þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför okkar ástkæru frænku,
Geirlaugar Ingvarsdóttur
frá Balaskarði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi.
Systkinabörn og fjölskyldur.
46 Tímamót 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFréttablaðið