Fréttablaðið - 27.11.2021, Side 100
Með því að dansa hver
fyrir sig heima í stofu
fögnuðu þessar konur
aldrinum og lífinu.
Á sýningunni sækir
Guðlaug Mía Eyþórs-
dóttir innblástur í
íslenska þjóðmenn-
ingu og sýnir ný verk
byggð á nærumhverfi
Íslendinga fyrri alda.
DANS
Reykjavík dansfestival
Listrænir stjórnendur: Brogan
Davison og Pétur Ármannsson
Tjarnarbíó og Borgarleikhúsið
Sesselja G. Magnúsdóttir
Reykjavík dansfestival var haldin
17.-20. nóvember 2021 og hýsti
Tjarnarbíó hátíðina að mestu. Covid
hafði áhrif á þessa hátíð eins og
önnur síðustu tvö ár. Af þeim sökum
varð að fresta opnunarpartíinu og
verkinu Craver eftir RVK Dance
Project, en í því er samband tónlist-
ar og hreyfinga á hefðbundnu dans-
gólfi á skemmtistað skoðað og átti
viðburðurinn að vera á skemmti-
staðnum Húrra.
Undanfarin ár hefur þátttaka
óþjálfaðra dansara og líkama sem
sjaldan sjást á sviði verið áberandi í
RDF. Unglingum og eldra fólki hefur
verið afhent sviðið og í ár var fötl-
uðum boðið að deila sviðsljósinu
með þjálfuðum dönsurum. Í sýn-
ingunni Stefnumót, samstarfi Listar
án landamæra og RDF, mættust í
þrem pörum þjálfaðir dansarar og
fatlaðir einstaklingar. Útkoman var
þrjú ágætis verk, sem öll áttu það þó
sammerkt að hreyfingin hafði lítið
hlutverk og tækifæri til að þenja út
formið og þá um leið ögra samstarf-
inu, voru ekki nýtt til fullnustu.
Ásrún Magnúsdóttir og Rebekka
Sveinbjörnsdóttir notuðu tímann
saman til að kanna Asíu í Reykjavík
og kynntu þá rannsókn fyrir okkur
áhorfendum með hjálp þýðingar-
forrits Google, tónlistarmyndbönd-
um og myndum frá ferðum þeirra
um borgina. Skemmtileg hugmynd
og ágætis útfærsla sem hefði mátt
lífga upp á með f leiri uppbrotum
eins og að nota hljóð-effekta og
dansa við myndböndin.
Ásgeir Helgi Magnússon og Star-
ína (Ólafur Helgi Móberg), gerðu
glamourus dragsýningu þar sem
söngur var í aðalhlutverki.
Fallegur dúett
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Kol-
brún Dögg Kristjánsdóttir sköpuðu
tvískipt verk. Annars vegar fengu
áhorfendur að heyra ótrúlega fal-
legan texta eftir Kolbrúnu Dögg
um hvernig fötlunin læddist inn í líf
hennar og yfirtók fæturna, svo hún
gat ekki lengur gengið. Hins vegar
dönsuðu þær saman fallegan dúett
sitjandi á gólfinu eftir að Kolbrúnu
Dögg hafði verið lyft með þar til
gerðum lyftara úr hjólastólnum og
á gólfið. Báðir hlutar verksins voru
fallegir og virkuðu vel en í báðum
bjuggu líka ónýtt tækifæri til list-
rænnar sköpunar.
Lovísa og Kolbrún Dögg völdu að
bjóða áhorfendum að hlusta á texta
Kolbrúnar á meðan þær lágu á svið-
inu. Textinn fékk þannig að njóta
sín, en hann hefði samt mátt magna
upp með því að Lovísa gæfi honum
líf með líkama sínum. Í dúettinum
hefði líka mátt láta reyna meira á
hvernig þessir tveir ólíku líkamar
gætu bætt hvorn annan upp og
stækkað þannig heildarupplifunina
af dansinum.
Aldrinum fagnað
Lovísa Ósk átti einnig opnunarverk
sýningarinnar, When the Bleeding
Stops. Vel gert verk með sterka
sögu. Þar fjallar hún annars vegar
um breytingaskeiðið og þöggunina
sem hefur verið um það skeið í lífi
kvenna og hins vegar um þann
veruleika atvinnudansara að þeir
eru ekki taldir gjaldgengir á sviði
eftir ákveðinn aldur, vegna þess
að líkaminn stendur ekki undir
kröfu um ofurtækni þó að listrænn
styrkur dansarans sé í vexti.
Eftir alvarleg meiðsli og nýjan
kaf la í lífi sínu sem kona, notaði
Lovísa dansinn til að koma sér á
fæturna og kynnast líkama sínum
upp á nýtt. Hún fékk til liðs við sig
hóp kvenna á svipuðum stað í lífinu
og með því að dansa hver fyrir sig
heima í stofu fögnuðu þessar konur
aldrinum og lífinu.
Í When the Bleeding Stops, sagði
Lovísa áhorfendum sögu sína og
sýndi brot af þeim myndböndum
sem hún hafði safnað af dansandi
konum sem sumar mættu svo á
sviðið í lok verksins og dönsuðu
með myndböndunum. Lovísu fengu
áhorfendur aftur á móti ekki að sjá
dansa og njóta þannig ávaxtanna af
þessari heimatilbúnu dansþerapíu
hennar, nokkuð sem hefði verið leið
til að styrkja verkið enn frekar.
Arfleifð Alvin Aily
Tvö önnur verk vöktu athygli á
hátíðinni. Annað var verkið, Dance,
if you want to enter my country, en
í því leggur Mitchikazu Masune út
af frétt um það þegar dansari með
arabískt fornafn var látinn dansa
fyrir landamæraverði á f lugvell-
inum í Tel Aviv til að sanna að hann
væri meðlimur í Alvin Aily-dans-
flokknum sem var á sýningarferð
í Ísrael. Masune rakti söguna á
snilldarlegan hátt og fléttaði saman
frásögn af eigin ferðum í gegnum
mismunandi landamærastöðvar,
örlögum dansarans og arf leifð
Alvin Aily.
Þátttökuverkið Terra Nulius
fjallaði einnig um hugmyndina um
landamæri, eignarhald á landi og
ósýnileg landamæri á milli fólks og
jafnvel mismunandi sjálfsmynda
hvers einstaklings. Á meðan þátt-
takendur fóru sína eigin leið um
borgina hlustuðu þeir á vangaveltur
Paulu Diogo um þessi efni. Textinn
var vel saminn og umhugsunarverð-
ur og formið vel valið til að meðtaka
hann.
Lokasýning RDF var sýningin Rof
eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur.
Ekki verður fjallað um hana hér
en næsta sýning á því verki er 9.
desember. n
NIÐURSTAÐA: Á RDF var fjallað
um áhugaverð og ögrandi við-
fangsefni í ágætis útfærslu. Fyrir
dansáhugamanneskju og aðdá-
anda líkama á hreyfingu innan
sterkrar danssköpunar, saknar
maður dansins (í víðum skilningi
þess orðs) á þessu dansfestivali.
Ögrandi viðfangsefni
Dance, if you want to enter my country fjallar um arfleifð Alvin Aily. MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Sýningin Leppar, pungur og skjóða
stendur yfir í Y gallerýi Hamraborg
12. Á sýningunni sækir Guðlaug Mía
Eyþórsdóttir innblástur í íslenska
þjóðmenningu og sýnir ný verk
byggð á nærumhverfi Íslendinga
fyrri alda.
Í myndlist sinni skoðar Guðlaug
skúlptúríska þætti í manngerðu
umhverfi okkar og gerir tilraun
til að afbyggja merkingu forms og
innihalds, til að skapa möguleika
á nýjum skilgreiningum og sjónar-
hornum áhorfenda.
Guðlaug Mía Eyþórsdóttir (f. 1988)
útskrifaðist með BA gráðu frá Lista-
háskóla Íslands árið 2012 og stund-
aði síðar meistaranám í myndlist við
Koninklijke Academie í Gent, þaðan
sem hún útskrifaðist árið 2018. Guð-
laug hefur staðið að margvíslegum
verkefnum innan myndlistar og
brugðið sér í hlutverk útgefanda,
sýningarstjóra og rannsakanda.
Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga
bæði hér heima og erlendis. n
Verk byggð á nærumhverfi Íslendinga
Verk eftir Guðlaugu Míu. MYND/AÐSEND
Verð þjónustu og íhluta eru um ½ af
því sem hér gerist.
Nánari upplýsingar á
https://www.helvetic-clinics.is/ og í
síma 8 200 725
www.hei.is
HELVETIC CLINICS er framúr-
skarandi tannlækningaþjónusta
í Búdapest. Starfsmenn eru um 50
og sérhæfing mikil og góð.
Sambyggt stofunni á 12 Revay er
gott hótel.
Þetta er miðsvæðis í borginni og stutt
í veitingahús og verslanir.
Clinics
Tannlækningar í Búdapest
60 Menning 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ