Fréttablaðið - 27.11.2021, Síða 110
Jólasýning Þorra og Þuru
verður frumsýnd um helgina,
þriðja árið í röð og Agnes
Wild, höfundur verksins, segir
helgina sannkallaða hátíð
fyrir sig og leikhópinn.
odduraevar@frettabladid.is
Leikhópurinn Miðnætti frumsýnir
Jólasýningu Þorra og Þuru um helg-
ina þannig að Agnes Wild, höfundur
verksins, og hin í hópnum hafa haft
í nógu að snúast, þar sem þau hafa
verið að æfa tvær aðrar sýningar,
Leitina að jólunum og hina geysi-
vinsælu barnaleiksýningu Tjaldið,
sem er sýnd í Borgarleikhúsinu.
„Það gengur mjög vel og við erum
mjög tilbúin fyrir helgina,“ segir
Agnes, en auk Jólasýningar Þorra og
Þuru er hópurinn að fara að leggja
upp í sýningarferðalag á leikskóla
víðs vegar um landið með Leitina
að jólunum. Allt tengist þetta síðan,
þar sem persónurnar Eysteinn og
Hulda, úr farandsýningunni eru
einnig kunnuglegir karakterar úr
heimi Þorra og Þuru.
Covid strik í reikninginn
Í raun er um endurfrumsýningu á
Jólasýningu Þorra og Þuru um helg-
ina að ræða, en verkið var fyrst sýnt
árið 2019 og síðan náðist einungis
ein sýningarhelgi í fyrra vegna
kófsins mikla.
„En þetta er samt svona þriðja
árið sem við sýnum þetta,“ segir
Agnes. Birna Pétursdóttir bætist
í hóp leikara að þessu sinni og fer
með hlutverk Þuru í stað Sigrúnar
Harðardóttur.
„Þannig að þetta er frumsýningin
hennar um helgina,“ bætir Agnes
við lauflétt og er tilbúin til að fall-
ast á að það sé uppsöfnuð eftirspurn
eftir jólasýningum eins og þessari
vegna hrakfaranna í fyrra.
„Ég held það. Salan gengur mjög
vel og við vorum að bæta við auka-
sýningu til að þjóna eftirspurninni.
Það var auðvitað mjög leiðinlegt í
fyrra að komast svona lítið í þessar
jólasýningar og frábært að það sé
hægt að gera fólki kleift að heim-
sækja leikhús í ár,“ segir Agnes.
„Það er líka svo jólalegt og gaman
að fara í sparifötin og fara í leik-
húsið á jólasýningu. Leikmyndin
hjá okkur er líka svo ótrúlega falleg
og svo jólaleg og það eru jólatré og
jólasnjór og þetta er algjör ævin-
týraheimur hjá okkur í Tjarnarbíói.“
Hópurinn gaf nýverið út bókina
Þorra og Þuru og jólakristalinn.
„Hún er upp úr sögunni á leiksýn-
ingunni. Þannig að fólk getur farið
á sýninguna og haldið svo áfram að
lesa heima. Þannig að þetta er bæði
frumsýning hjá okkur og eiginlega
svona útgáfuhelgi líka.“ n
Það er líka svo jólalegt
og gaman að fara í
sparifötin og fara í
leikhúsið á jólasýn-
ingu.
Agnes Wild,
Jólatré og snjór í ævintýra
veröld þeirra Þuru og Þorra
Jólasveinninn
lætur sig ekki
vanta frekar en
jólasnjórinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Þura og Þorri
koma kát út úr
kófinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
TÖLVULEIKIR
Calld of Duty: Vanguard
Útgefandi: Activision Blizzard
Framleiðandi: Sledgehammer
Games
Kemur út á: PlayStation 5, Xbox
One, Microsoft Windows
einarthor@frettabladid.is
Það ríkir jafnan eftirvænting þegar
nýr Call of Duty-leikur lítur dagsins
ljós. Á dögunum kom út enn einn
leikurinn í þessari sívinsælu seríu,
Call of Duty Vanguard, og að þessu
sinni er flakkað um hina ýmsu víg-
velli á tímum seinni heimsstyrj-
aldarinnar.
Leikurinn býður upp á ýmsa
möguleika í spiluninni en eins
og svo oft áður er netspilunin hið
eiginlega f laggskip. Í Vanguard er
auðvelt að gleyma sér í hinum ýmsu
bardögum gegn spilurum úti í heimi
og stenst leikurinn ágætlega þær
væntingar sem til hans eru gerðar
að því leyti; borðin eru að minnsta
kosti nokkuð fjölbreytt og ágætlega
útfærð.
Aðrir geta einnig fundið eitthvað
við sitt hæfi, hvort sem um er að
ræða í einspiluninni (e. campaign)
eða Zombies. Á undanförnum
árum hafa framleiðendur lagt sífellt
minni áherslu á einspilunina, sem
á köflum hefur verið stutt og jafn-
vel eins og hálfgert sýnishorn af
leiknum.
Þó einspilunin sé ekki ýkja löng
að þessu sinni er hún vel heppnuð
og heldur manni vel við efnið. Þeir
sem spila Vanguard gætu ef til vill
fengið þá tilfinningu að leiknum
svipi of mikið til fyrri leikja í serí-
unni.
Það er þó ljóst að ekki er hægt
að finna upp hjólið á hverju ári og
því skiljanlegt að breytingarnar
séu ekki brjálæðislega miklar frá
ári til árs. Það er líka engin þörf á
að breyta sífellt góðri uppskrift þó
gömul sé. n
NIÐURSTAÐA: Góður leikur en
býsna kunnuglegur.
Gamli góði tætarinn er mættur aftur
BARÓNSTÍGUR
KEFLAVÍK OG AKUREYRI
8-24
24/7
okkar uppáhalds úr
WWW.EXTRA.IS
2499kr.pk.
Kirkland pakkaslaufur 50 stk
Kirkland
Jólapappír 36 M
1999
kr.stk.
2499
kr.stk.
Kirkland
Jólapappír 3 rúllur
!!
VINSÆL VARA
70 Lífið 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ