Fréttablaðið - 27.11.2021, Page 116

Fréttablaðið - 27.11.2021, Page 116
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is toti@frettabladid.is „Tvær langdregnustu fréttir ára- tugarins, annars vegar klúðrið í Borgarnesi og hins vegar heims- faraldur Covid-19, voru hitamál í vikunni, líkt og aðrar vikur,“ segir Ólöf Skaftadóttir, annar ritstjóra Innherja. „Ekki er gott að segja hvernig sóttvarnalæknir komst að þeirri niðurstöðu að sennilega yrðu Íslendingar rafmagnslausir ef þeir undirgengjust ekki þær takmark- anir á athafnafrelsi sem honum hugnast best. Hann lét hafa eftir sér að allt sem við byggjum líf okkar á, meðal annars rafmagnsflutningar, myndu lamast vegna útbreiddra veikinda. Þar kom það. Ekki hafa enn borist fregnir af rafmagnsleysi hjá Svíum síðustu mánuði, þrátt fyrir takmarkalaust samfélag sem byggir á frelsi einstakl- ingsins og heilbrigðri skynsemi. Ný ríkisstjórn virðist síðan ekki ætla að halda hvíldardaginn heil- agan en fyrirhugað er að kynna nýjan stjórnarsáttmála á sunnu- daginn. Ráðherrakapallinn verður forvitnilegur og ekki síst í hvaða hugmyndafræðilegu höndum heil- brigðiskerfið lendir. Kaupglaðir Íslendingar á netinu hafa ekki látið sitt eftir liggja en Inn- herji greindi frá því að vefverslunin Boozt hefði selt fyrir tæpan milljarð hérna síðustu fimm mánuði. Blaðamannaverðlaun vikunnar fara svo klárlega til hvers þess sem sér um samsettar myndir á DV. Myndin af Degi borgarstjóra af til- efni Mexíkóferðar hans, með som- brero og sólgleraugu, er sjálfstætt listaverk.“ n Tvær langdregnustu fréttir áratugarins enn og aftur Ólöf Skaftadóttir, ritstjóri Innherja. MYND/AÐSEND n Fréttir vikunnar Ólöf Skaftadóttir FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 20% AFSL ÁT TUR A F Ö L LU M V Ö R U M* TILBOÐ GILDIR ALLA HELGINA * Gildir ekki ofan á önnur tilboð og ekki af vörum frá Hästens. PREMIUM DÚNKODDI Stærð: 50 x 70 cm (800 gr). Fylling: 50% andardúnn og 50% smáfiður. Nú 13.520 kr. Fullt verð: 16.900 kr. PREMIUM DÚNSÆNG Stærð: 140 x 200 cm. (600 gr). Fylling: 50% andardúnn og 50% smáfiður. Nú 19.920 kr. Fullt verð: 24.900 kr. www.betrabak.is CORNFLOWER RÚMFÖT 140x220 cm. 100% Egypsk bómull. Nú 20.720 kr. Fullt verð: 25.900 kr. KOSY STORMUR HEIL SUINNISKÓR Ýmsar stærðir og litir. Nú 7.920 kr. BAÐSLOPPAR Nú frá 19.920 kr. Fullt verð frá: 24.900 kr. KOSY STORMUR HEIL SUINNISKÓR Ýmsar stærðir og litir. Nú 7.920 kr. Fullt verð: 9.900 kr. Sverrir Sigurðsson lauk arki- tektanámi í Finnlandi, fyrstur Íslendinga, og lenti þaðan eftir krókaleiðum í Abú Dabí, þar sem hann hafði eftirlit með hallarbyggingu furstans. Kvennabúrið þar vafðist tals- vert fyrir honum, enda hafði hann vitaskuld aldrei áður komið að slíkum byggingum. toti@frettabladid.is Arkitektinn Sverrir Sigurðsson hefur komið vægast sagt víða við á löngum og ævintýralegum ferli, sem hann rekur í endurminninga- bókinni Á veraldarvegum. Þar segir hann meðal annars frá því þegar honum var, nokkuð óvænt, falið eftirlit með hallarbyggingu furstans í Abú Dabí þar sem að mörgu undar- legu var að huga. Ekki síst við hönn- un og byggingu kvennabúrsins sem var stór hluti hallarinnar. Sverrir lauk arkitektanámi í Finn- landi og starfaði síðan við fagið um áratugaskeið í framandi löndum Asíu og Afríku og fyrir Alþjóða- bankann. Þriggja ára áætlun „Þetta var nú löng krókaleið,“ segir Sverrir, um hvernig hann endaði í Abú Dabí, þar sem hann fékk eftir- lit með hallarbyggingu furstans í fangið. „Þegar ég var búinn að læra þar fannst mér ég ekki vera nógu gáfaður til að halda beint heim og vildi fara til þriggja landa. Þetta var svona þriggja ára áætlun hjá mér. Ég vildi fyrst fara til annars Norð- urlands, síðan til þróunarlands og svo til Bandaríkjanna, áður en ég færi heim.“ Sverrir fékk síðan vinnu hjá sænsku fyrirtæki sem sendi hann til Kúveit. „Ég kom þarna þegar sex daga stríðinu lauk og þá datt bara botninn úr öllum verkefnum okkar en við fundum þetta verkefni í Abú Dabí. Sem var mjög forvitnilegt, því kvennabúrið var talsvert stór hluti hallarinnar og ég hafði auðvitað aldrei fengist við slíkar byggingar, segir Sverrir. Framandi vandamál „Þetta hefði verið framandi fyrir alla, hvaðan sem er úr heiminum,“ segir Sverrir, sem kom að bygging- unni eftir að egypski arkitektinn, sem hannaði bygginguna, hafði hlaupist á brott með verklaunin. „Ég átti að hlaupa í skarðið, sem þýddi sex vikna dvöl í Abú Dabí, en satt best að segja var ég hálfkvíðinn fyrir þessu verkefni, enda hafði aldr- ei verið minnst á kvennabúrsbygg- ingar í námi mínu í Helsinki.“ Sverrir segir í bókinni frá því að hann hafi fundið „fáeinar bækur sem fjölluðu um líf kvenna í heimi íslamstrúarmanna á bókasafni í Kúveit, en þar var ekki margt sem ég gat stuðst við þegar kom að lausn þessa vandamáls.“ Fokdýrt furðudót Faðir furstans, sem Sverrir vann fyrir, var af fyrsta ættliðnum sem kynntist fjárfúlgunum sem fylgdu olíuauðæfum landsins og í krafti þess hafði brotthlaupni arkitektinn hvergi sparað við efniskaupin, eins og Sverrir segir frá í endurminning- unum: „Eitt fyrsta verkefnið var að ákvarða hvað gera ætti við allt furðulega byggingarefnið sem egypski arkitektinn hafði pantað. Honum hafði verið uppálagt að kaupa allt hið besta og spara ekkert í því sambandi. Hann hafði greini- lega gert sitt besta og keypt alls kyns óhóflega og fjarstæðukennda muni.“ Sverrir þurfti þannig að finna út úr því hvað hann ætti að gera við rúman tug vatnskrana úr massífu 18 karata gulli. „Og hvar ætti að stað- setja klósettskálarnar sem spiluðu tvírása hljómlist þegar lokinu var lyft upp. Þarna voru endalausar ákvarðanir, því að listinn af furðu- dótinu var langur.“ n Sverrir gekk frá kvennabúri fyrir furstann í Abú Dabí Á veraldarvegum er íslensk útgáfa Viking Voyager: An Icelandic Memoir, sem Sverrir skrifaði ásamt konunni sinni, Veronicu Li, og hann segir að þessi útgáfa hefði aldrei orðið að veruleika án hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Ensk útgáfa bókarinnar hefur hlotið bresk Red Ribbon-verðlaun og viðurkenningu frá bandarísku rit- höfundasamtökunum Independent Author Network. MYND/AÐSEND 76 Lífið 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.