Fréttablaðið - 27.11.2021, Qupperneq 116
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
„Tvær langdregnustu fréttir ára-
tugarins, annars vegar klúðrið í
Borgarnesi og hins vegar heims-
faraldur Covid-19, voru hitamál í
vikunni, líkt og aðrar vikur,“ segir
Ólöf Skaftadóttir, annar ritstjóra
Innherja. „Ekki er gott að segja
hvernig sóttvarnalæknir komst að
þeirri niðurstöðu að sennilega yrðu
Íslendingar rafmagnslausir ef þeir
undirgengjust ekki þær takmark-
anir á athafnafrelsi sem honum
hugnast best.
Hann lét hafa eftir sér að allt sem
við byggjum líf okkar á, meðal annars
rafmagnsflutningar, myndu lamast
vegna útbreiddra veikinda. Þar kom
það. Ekki hafa enn borist fregnir af
rafmagnsleysi hjá Svíum síðustu
mánuði, þrátt fyrir takmarkalaust
samfélag sem byggir á frelsi einstakl-
ingsins og heilbrigðri skynsemi.
Ný ríkisstjórn virðist síðan ekki
ætla að halda hvíldardaginn heil-
agan en fyrirhugað er að kynna
nýjan stjórnarsáttmála á sunnu-
daginn. Ráðherrakapallinn verður
forvitnilegur og ekki síst í hvaða
hugmyndafræðilegu höndum heil-
brigðiskerfið lendir.
Kaupglaðir Íslendingar á netinu
hafa ekki látið sitt eftir liggja en Inn-
herji greindi frá því að vefverslunin
Boozt hefði selt fyrir tæpan milljarð
hérna síðustu fimm mánuði.
Blaðamannaverðlaun vikunnar
fara svo klárlega til hvers þess sem
sér um samsettar myndir á DV.
Myndin af Degi borgarstjóra af til-
efni Mexíkóferðar hans, með som-
brero og sólgleraugu, er sjálfstætt
listaverk.“ n
Tvær langdregnustu fréttir áratugarins enn og aftur
Ólöf Skaftadóttir, ritstjóri Innherja.
MYND/AÐSEND
n Fréttir vikunnar
Ólöf Skaftadóttir
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
20%
AFSL ÁT TUR
A F Ö L LU M V Ö R U M*
TILBOÐ GILDIR ALLA HELGINA
* Gildir ekki ofan á önnur tilboð og
ekki af vörum frá Hästens.
PREMIUM DÚNKODDI
Stærð: 50 x 70 cm (800 gr).
Fylling: 50% andardúnn og
50% smáfiður.
Nú 13.520 kr.
Fullt verð: 16.900 kr.
PREMIUM DÚNSÆNG
Stærð: 140 x 200 cm. (600 gr).
Fylling: 50% andardúnn og
50% smáfiður.
Nú 19.920 kr.
Fullt verð: 24.900 kr.
www.betrabak.is
CORNFLOWER RÚMFÖT
140x220 cm. 100% Egypsk bómull.
Nú 20.720 kr.
Fullt verð: 25.900 kr.
KOSY STORMUR
HEIL SUINNISKÓR
Ýmsar stærðir og litir.
Nú 7.920 kr.
BAÐSLOPPAR
Nú frá 19.920 kr.
Fullt verð frá: 24.900 kr.
KOSY STORMUR
HEIL SUINNISKÓR
Ýmsar stærðir og litir.
Nú 7.920 kr.
Fullt verð: 9.900 kr.
Sverrir Sigurðsson lauk arki-
tektanámi í Finnlandi, fyrstur
Íslendinga, og lenti þaðan
eftir krókaleiðum í Abú Dabí,
þar sem hann hafði eftirlit
með hallarbyggingu furstans.
Kvennabúrið þar vafðist tals-
vert fyrir honum, enda hafði
hann vitaskuld aldrei áður
komið að slíkum byggingum.
toti@frettabladid.is
Arkitektinn Sverrir Sigurðsson
hefur komið vægast sagt víða við
á löngum og ævintýralegum ferli,
sem hann rekur í endurminninga-
bókinni Á veraldarvegum. Þar segir
hann meðal annars frá því þegar
honum var, nokkuð óvænt, falið
eftirlit með hallarbyggingu furstans
í Abú Dabí þar sem að mörgu undar-
legu var að huga. Ekki síst við hönn-
un og byggingu kvennabúrsins sem
var stór hluti hallarinnar.
Sverrir lauk arkitektanámi í Finn-
landi og starfaði síðan við fagið um
áratugaskeið í framandi löndum
Asíu og Afríku og fyrir Alþjóða-
bankann.
Þriggja ára áætlun
„Þetta var nú löng krókaleið,“ segir
Sverrir, um hvernig hann endaði í
Abú Dabí, þar sem hann fékk eftir-
lit með hallarbyggingu furstans í
fangið. „Þegar ég var búinn að læra
þar fannst mér ég ekki vera nógu
gáfaður til að halda beint heim og
vildi fara til þriggja landa. Þetta var
svona þriggja ára áætlun hjá mér.
Ég vildi fyrst fara til annars Norð-
urlands, síðan til þróunarlands og
svo til Bandaríkjanna, áður en ég
færi heim.“
Sverrir fékk síðan vinnu hjá
sænsku fyrirtæki sem sendi hann
til Kúveit. „Ég kom þarna þegar sex
daga stríðinu lauk og þá datt bara
botninn úr öllum verkefnum okkar
en við fundum þetta verkefni í Abú
Dabí. Sem var mjög forvitnilegt, því
kvennabúrið var talsvert stór hluti
hallarinnar og ég hafði auðvitað
aldrei fengist við slíkar byggingar,
segir Sverrir.
Framandi vandamál
„Þetta hefði verið framandi fyrir
alla, hvaðan sem er úr heiminum,“
segir Sverrir, sem kom að bygging-
unni eftir að egypski arkitektinn,
sem hannaði bygginguna, hafði
hlaupist á brott með verklaunin.
„Ég átti að hlaupa í skarðið, sem
þýddi sex vikna dvöl í Abú Dabí, en
satt best að segja var ég hálfkvíðinn
fyrir þessu verkefni, enda hafði aldr-
ei verið minnst á kvennabúrsbygg-
ingar í námi mínu í Helsinki.“
Sverrir segir í bókinni frá því að
hann hafi fundið „fáeinar bækur
sem fjölluðu um líf kvenna í heimi
íslamstrúarmanna á bókasafni í
Kúveit, en þar var ekki margt sem
ég gat stuðst við þegar kom að lausn
þessa vandamáls.“
Fokdýrt furðudót
Faðir furstans, sem Sverrir vann
fyrir, var af fyrsta ættliðnum sem
kynntist fjárfúlgunum sem fylgdu
olíuauðæfum landsins og í krafti
þess hafði brotthlaupni arkitektinn
hvergi sparað við efniskaupin, eins
og Sverrir segir frá í endurminning-
unum:
„Eitt fyrsta verkefnið var að
ákvarða hvað gera ætti við allt
furðulega byggingarefnið sem
egypski arkitektinn hafði pantað.
Honum hafði verið uppálagt að
kaupa allt hið besta og spara ekkert
í því sambandi. Hann hafði greini-
lega gert sitt besta og keypt alls
kyns óhóflega og fjarstæðukennda
muni.“
Sverrir þurfti þannig að finna út
úr því hvað hann ætti að gera við
rúman tug vatnskrana úr massífu 18
karata gulli. „Og hvar ætti að stað-
setja klósettskálarnar sem spiluðu
tvírása hljómlist þegar lokinu var
lyft upp. Þarna voru endalausar
ákvarðanir, því að listinn af furðu-
dótinu var langur.“ n
Sverrir gekk frá kvennabúri
fyrir furstann í Abú Dabí
Á veraldarvegum er íslensk útgáfa Viking Voyager: An Icelandic Memoir, sem Sverrir skrifaði ásamt konunni
sinni, Veronicu Li, og hann segir að þessi útgáfa hefði aldrei orðið að veruleika án hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ensk útgáfa bókarinnar hefur hlotið
bresk Red Ribbon-verðlaun og
viðurkenningu frá bandarísku rit-
höfundasamtökunum Independent
Author Network. MYND/AÐSEND
76 Lífið 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ