Heilsuvernd - 01.05.1947, Síða 10
Heilsuhæli
Náttúrulækningafélags íslands
Það hefir lengi verið takmark óska og vona þeirra,
er að Náttúrulækningafélagi íslands standa, að takast
mætti að koma upp heilsuhæli, sem starfrækt væri í anda
þessarar stefnu.
Starfsemi þessa hælis mundi vera tvíþætt: 1. Taka á
móti sjúklingum iil lækninga. 2. Kenna mönnum, á
lwern hátt koma megi í veg fyrir sjúkdcma, fyrst og
fremst þá, sem eru bein afleiðing langvarandi neyzlu
ónáttúrlegrar og illa samsettrar fæðu og annarra óeðli-
legra tifnaðarhátta.
Slíkum hælum, sem hér er fyrirhugað, fer stöðugt
fjölgandi erlendis. Til þeirra sækir árlega fjöldi fólks
nýja heilsu, nýja von, nýjan skilning, ný viðhorf til lífs-
ins og nýjan lífsþrótt.
í þessum hælum er fengin víðtæk reynsla og dýrmæt
fyrir því, að lifandi fæða er einhver veigamesta vörn
og sókn gegn fjölda þeirra sjúkdóma, er þjá dauðlegt
mannkyn og rænir það heilsu og hamingju.
Því miður er heilsuleysi í einni og annarri mynd svo
algengt, að fólk er næstum farið að trúa því, að vanheilsa
sé eðlilegt og óumflýjanlegt ástand. En því fer fjarri.
Náttúrulækningastefnan lítur svo á, og byggir þar á
fenginni reynslu og rannsóknum, að góð heilsa eða full-
komin heilbrigði og sú hamingjutilfinning, sem henni
er samfara, geti orðið hlutskipti flestra manna. Vér upp-
skerum eins og vér sáum.
Náttúrulækningastefnan leitast við að kynnast sem
bezt því lögmáli, sem ræður fullominni heilbrigði, og