Heilsuvernd - 01.05.1947, Blaðsíða 11

Heilsuvernd - 01.05.1947, Blaðsíða 11
HEILSUVERND 3 hagnýta sér þá þekkingu til þess að vinna hug á sjúk- dómum og vernda heilsuna. Erlendis vex þessari stefnu ört fglgi meðal allra stétta, og sú reynsla, sem þegar cr fengin, lofar miklu og þarf að verða hvers manns eign, eign altrar þjóðarinnar og allra þjóða. En ekkert getnr stuðlað betur að því en stofnun heilsuhæla, þar sem fólk getur dvalið sér til lækninga og hressingar, hlotið fræðslu og lært að lifa heilnæmu lífi, þreifað á og séð árangur- inn af hinum nýju lækningaaðferðum. En þær eru aðal- lega fólgnar í heilnæmu og viðeigandi mataræði, góðri húðræstingu, útivist og hæfilegri hreyfingu og hvíld. Mikið hefir verið rætt um þörf á fleiri og stærri sjúkra- húsnm, og öllum er sú þörf Ijós. En oss verður líka að vera það Ijóst, að það er vonlanst verk að ætla sér að ráða niðurlögum sjúkdóma með hyggingu nýrra sjúkra- húsa, ef orsakir sjúkdómanna eru látnar afskiptalausar að mestu leyti. Ur þessari vöntun á lieilsuhæli vort að hæta. Enn- fremur hefir nýlega verið ói það hent af Sigurði Sigurðs- syni, herklayfirlækni, að hrýn nauðsyn sé á að koma upp heilsuhæli, þar sem hægt sé að koma fyrir sjúklingum, sem þarfnast ekki sérstakra læknisaðgerða eða eru að ná sér eftir veikindi. Þessir sjúklingar taka það mikið rúm í sjúkrahúsunum, að oft er ekki unnt að konui þangað sjúklingum, er þurfa skjótra læknisaðgerða við, en ef til vill aðeins skamma sjúkrahúsvist. Heilsuhæli vort mundi að sjódfsögðu bæta nokkuð úr þessum vand- ræðum. Og varla þarf að taka það fram, að það verður rekið í samræmi við gildandi lög um sjúkrahús og heilsuhæli og með samþykki heilbrigðisstjórnar lands- ins. Því miður er félag vort ekki svo efnum biíið, að það megni af eigin ramleik að hrinda í framkvæmd hygg- ingu heilsuhælisins. Félagið hefir nýlega keypt jörðina Gröf í Hrunamannahrsppi í Árnessýslu og langar iil að geta komið þar upp þó ekki væri nema vísi að heilsuhæli.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.